Yngri flokkar KR

Yngri flokkar KR

Share

Fréttasíða fyrir starfið úr yngri flokkum félagsins í knattspyrnu. Endilega smellið við like á síðuna og fylgist með.

Hingað munu koma inn fréttir frá leikjum, mótum, viðburðum og öðru skemmtilegu efni sem tengist starfinu í KR.

05/06/2020

Fyrsta námskeið byrjar á mánudag. Skráning í fullum gangi á kr.felog.is

Patrik á U15 æfingar | knattspyrna 02/03/2020

Patrik Thor valinn á úrtaksæfingar fyrir U15 ára landslið Íslands. Æfingarnar fara fram dagana 4.-6. mars.

Gangi þér vel Patrik!

Patrik á U15 æfingar | knattspyrna Patrik Thor Pétursson, leikmaður 3.fl. KR hefur verið valinn í úrtakshóp U15 landsliðs Íslands. Æfingarnar fara fram dagana 4.-6. mars undir stjórn Lúðvíks Gunnarsson landsliðsþjálfara.

Lára Ósk á U15 æfingum | knattspyrna 26/02/2020

Lára Ósk leikmaður 3.fl. KR hefur verið valin á úrtaksæfingar fyrir U15 ára landslið Íslands. Æfingarnar standa nú yfir og er síðasti æfingadagur í dag.

Vel gert Lára!

Lára Ósk á U15 æfingum | knattspyrna Lára Ósk Eyjólfsdóttir leikmaður 3.fl. KR hefur verið valin á úrtaksæfingar fyrir U15 ára landslið Íslands. Æfingarnar fara fram dagana 24.- 26. febrúar í Skessunni í Hafnarfirði. Við óskum Láru góðs gengis á æfingunum.

21/02/2020

Leikir helgarinnar. Nóg um að vera hjá yngri flokkum KR þessa helgina. Heilir 15 leikir víðs vegar um landið.
Hér má sjá planið hjá öllum okkar flokkum.

Áfram KR

13/02/2020

Nóg um að vera hjá yngri flokkum KR næstu daga og fram í næstu viku. Heilir 18 leikir, allt frá 5.flokki upp í 2.fl. Dagskrá leikjanna má sjá hér á myndinni.

Áfram KR

09/02/2020

Hæ öll

Skipti-fótbolta-skó-markaður í dag, sunnudaginn 9.feb kl 13.30 - 14

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar KR (BUR) í samstarfi við yfirþjálfara stóð fyrir markaði í nóvember þar sem ca 30 skópör fengu framhaldslíf. Nú á sunnudaginn kl 13.30 til 14 inni í KR endurtökum við leikinn. Hugmyndin er að sjá hvort við getum ekki gefið fótboltaskónum lengra líf og sparað fólki útgjöld að einhverju leyti.

Grunur leikur á því að á ansi mörgum heimilum á KR svæðinu séu einhver fótboltaskópör sem eru ekki lengur í notkun, heillegir en eru kannski orðnir of litlir. Flest heimili þurfa að kaupa fótboltaskó á hverju ári sérstaklega á þessa allra yngstu iðkendur sem eru að stækka hratt.

Þannig að allir sem vilja koma eru velkomnir inn í KR á þessum tíma; þeir sem eiga og vilja leggja skó í púkkið gera það og þá sem vantar skó finna sér nýja, engir peningar bara KR andi, bros og samvinna. Siggi Víðis verður á svæðinu og aðstoðar eins og þarf.

Mbk. BUR

31/01/2020

Nóg um að vera hjá yngri flokkunum okkar um helgina. Dagskrá má sjá hér á myndinni.

Áfram KR

27/01/2020

Úrslit helgarinnar í yngri flokkum:

4.fl.kk A 4-2 sigur gegn Fylki
4.fl.kk B 7-3 sigur gegn Fylki
4.fl kk C 3-4 tap gegn Fylki

A liðið situr í efsta sæti RVK mótsins og hafa unnið alla sína sjö leiki.

Leikjunum hjá 5.fl. kvk var svo frestað og verða þeir spilaðir síðar.

Áfram KR

23/01/2020

Leikir hjá yngri flokkunum okkar um helgina. Dagskrá má sjá hér að neðan. Leikirnir eru allir í Reykjavíkurmótinu.

5. flokkur kvenna:

Laugardagur 25. janúar klukkan 10:00 Fylkir-KR (A-lið)
Laugardagur 25. janúar klukkan 10:00 Fylkir-KR (C-lið)
Sunnudagur 26. janúar klukkan 13:00 FH2-KR (D-lið)

4. flokkur karla:

Laugardagur 25. janúar klukkan 12:00 KR-Fylkir (A-lið)
Laugardagur 25. janúar klukkan 13:20 KR-Fylkir (B-lið)
Laugardagur 25. janúar klukkan 14:40 KR-Fylkir (B-lið)

Áfram KR!

Facebook síða yngri flokka KR | knattspyrna 20/01/2020

Síðan komin í loftið. Endilega hakið við like og fylgist með.

Facebook síða yngri flokka KR | knattspyrna Markmiðið er að þetta verði upplýsingavettvangur fyrir starfið sem er í gangi í yngri flokkum félagsins. Þangað munu koma upplýsingar um leiki sem eru framundan, úrslit þeirra ásamt öðrum fréttum sem koma frá heimasíðunni. Einnig verður reynt að koma með ýmsa fræðslu bæ....

20/01/2020

Verið velkomin á nýja Facebook síðu sem ætluð er yngri flokkum félagsins í knattspyrnu. Hingað munu koma inn upplýsingar um leiki og mót, úrslit, fréttir frá heimasíðunni ásamt ýmsu öðru skemmtilegu efni sem tengist yngri flokka starfinu í KR.

Endilega smellið við like á síðuna og fylgist með.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Frostaskjol 2
Reykjavík
107