5VH Trail Run

5VH Trail Run

Share

Náttúruhlaup / Arctic Running sjá um hlaupið um Fimmvörðuháls (5vhTrailRun). Þetta er ein fe

30/12/2025
07/08/2025

Race Packet Pick-up Tomorrow!

Kæru keppendur, (English below)

Hægt verður að sækja keppnisgögn í verslun 66°Norður í Faxafeni 12, á milli kl. 16:00 og 18:00 á morgun föstudag 8. ágúst. Þessu hefur verið bætt við til að koma í veg fyrir röð við afhendingu keppnisgagna við rásmarkið. Ennþá verður hægt að sækja keppnisgögn kl. 8:30 við tjaldstæðið í Skógum á laugardaginn en við hvetjum ykkur öll sem eigið eftir að sækja að gera það á morgun.

Athugið að búið er að loka fyrir nafnabreytingar og af öryggisástæðum er ekki leyfilegt að hlaupa á nafni annars keppanda.

Veðurspá og skyldubúnaður
Veðurspáin fyrir hlaupið er orðin mjög góð og má búast við að það verði yfirleitt fremur hæg norðlæg eða breytileg átt með sólarglennum á hlaupaleiðinni. Hitinn verður um 5-8°C þegar ofar dregur (>500m) en líklega mun hlýrra í upphafi hlaups í Skógum og allt að 16°C þegar komið er í Þórsmörk ef sólin skín.

Vatnsheldar hlífðarbuxur verða því ekki hluti af skyldubúnaði þó gott sé að hafa þær með. Annan skyldubúnað þarf að hlaupa með á sér: Hlaðinn sími, hlaupavesti/bakpoki, álteppi (fæst í apótekum og útivistarbúðum, lítil flauta (fylgir með mörgum hlaupavestum), léttur regnheldur jakki, húfa/buff, vettlingar, geta borið a.m.k. 1L af vökva, næring (dæmi: gel, súkkulaði, orkustykki), utanvegaskór (trail skór).

Dear Competitors,

You can pick up your race packets at the 66°North store at Faxafen 12, between 16:00 and 18:00 tomorrow, Friday, August 8th. This option has been added to prevent a rush for race packet distribution at the start line on Saturday morning. It will still be possible to pick up race packets at 08:30 at the campsite in Skógar on Saturday, but we encourage everyone who can to pick them up tomorrow in Reykjavík.

Please note that name changes are now closed, and for safety reasons, it is strictly forbidden to run under another competitor's name.

Weather Forecast and Mandatory Equipment

The weather forecast has improved significantly, and you can expect generally light northerly or variable winds with sunny spells along the race route. The temperature will be around 5-8°C at higher elevations (>500m), but likely much warmer at the start of the race in Skógar, and up to 16°C when you reach Þórsmörk if the sun shines.
Therefore, waterproof protective pants will not be part of the mandatory equipment, though it's still good to have them with you.

🌋5VH Trail Run 🏃🏻🏃🏽‍♀️Fimmvörðuhálshlaupið🌋 01/07/2025

Keppendur geta nú tryggt sér sæti í rútum og mat í Volcano Huts í lok hlaupsins.

Competitors can now secure their seats on the buses and a meal at the Volcano Huts at the end of the run.

🌋5VH Trail Run 🏃🏻🏃🏽‍♀️Fimmvörðuhálshlaupið🌋 Við hlökkum til að taka á móti þér þann 9. ágúst í fimmta Fimmvörðuhálshlaupið 🌋Hlaupið er uppselt en hægt er að gera nafnabreytingar út júlí. Það er gert með því að fara inn á „Þín skráning“ á skráningarsíðu hlaupsins. Athugið að aðeins er hægt að nafn...

5VH Trail Run 2025 | Þín skráning | Netskraning.is 06/06/2025

Fimvörðuhálshlaupið 2025 er uppselt.
5VH Trail Run 2025 is sold out (English below).

Endurgreiðsla fæst ekki en hægt er að gera nafnabreytingar til og með 31. júlí á https://netskraning.is/5vhhlaup/mypage.php?lang=is en þar geta kaupendur skráð sig inn með upplýsingum úr staðfestingarpóstinum og gert nafnbreytingar.

Keppnishaldarar eru ekki milliliður á endursölu á miðum og nýr eigandi fær ekki aðra stærð á bol en upphaflegur eigandi miðans pantaði. Verð og fyrirkomulag á endursölu er algjörlega á milli seljanda og kaupanda. Varist að kaupa miða af óprúttnum aðilum í gegnum sölusíður á Facebook.

Bráðlega fá keppendur póst varðandi kaup máltíð eftir hlaup og rútu.

Refunds are not available, but name changes can be made until July 31st at https://netskraning.is/5vhhlaup/mypage.php?lang=en. There, purchasers can log in with information from their confirmation email and make name changes.

The race organizers are not an intermediary in the resale of tickets, and the new owner will not receive a different shirt size than the original ticket holder ordered. The price and arrangements for resale are entirely between the seller and the buyer. Beware of purchasing tickets from unscrupulous parties through sales pages on Facebook.

Competitors will soon receive an email regarding the purchase of a post-race meal and bus transportation.

5VH Trail Run 2025 | Þín skráning | Netskraning.is

08/11/2024

✅ Skráning hefst kl. 12:00 í dag! 🥳

Tryggðu þér sæti í þessa mögnuðu hlaupaáskorun 🌋

Nánari upplýsingar á 5vhhlaup.is
Skráning fer fram hér: netskraning.is/5vhhlaup/

07/11/2024

Skráning í Fimmvörðuhálshlaupið opnar á morgun kl. 12:00! 🥳
Registration opens tomorrow!

Keppnin verður haldin í fimmta sinn og héðan í frá verða veitt sérstök verðlaun fyrir hlaupara sem hafa tekið þátt Fimmvörðuhálshlaupið fimm sinnum 🏆

Nánari upplýsingar á 5vhhlaup.is
Skráning fer fram hér: netskraning.is/5vhhlaup/

Photos from 5VH Trail Run's post 12/08/2024

Við erum himinlifandi með viðburðinn og vonum að þið, kæru keppendur, nutu dagsins með okkur. Við erum afskaplega þakklát öllu frábæra staffi okkar, 66Norður, Björgunarsveitin Dagrenning Hvolsvelli, og að sjálfsögðu ykkur, kæru þátttakendur, sem gerðu þennan dag mögulegan.

Úrslit má finna hér: https://timataka.net/5vh-hlaup-2024/
Myndir úr hlaupinu eru á glænýrri síðu sem aðalljósmyndarinn okkar, Gummi St., var að setja í loftið: https://sportmyndir.is/ #/gallery/12

Í karlaflokki sigraði Þorsteinn Roy Johannsson á nýju brautarmeti! Annar var Stefán Pálsson og þriðji Jón Gunnar Gunnarsson.

Í kvennaflokki sigraði Halldóra Ingvarsdóttir. Elín Edda Sigurðardóttir náði öðru sætinu og í þriðja sæti var hún Elísabet Margeirsdóttir okkar í Náttúruhlaupum.

Við óskum þessu magnaða íþróttafólki innilega til hamingju með árangurinn og um leið ykkur öllum sem tóku þátt, hvort sem markmiðið hafi verið að klára hlaupið og njóta þess eða ná einhverjum tímamörkum að auki.

Það eru forréttinda að geta farið svona krefjandi en stórkostlega leið, allir keppendur geta verið stoltir af þeim árangri.

Við þökkum kærlega fyrir frábæran dag og hlökkum til að taka á móti ykkur að ári liðnu 🙌

Við erum strax farin að huga að 5VH Trail Run 2025 en þá verður hlaupið fimm ára!

í tilefni þess munum við kynna ýmsar nýjungar og vonumst til að sjá ykkur sem flest, enda er Fimmvörðuhálsinn leið sem allir hlauparar sem geta, þurfa að fara að minnsta kosti einu sinni á ári 🌋✅

Photos from 5VH Trail Run's post 09/08/2024

Rósa og Milla eru að merkja brautina ✅

Merkingar sem notaðar verða eru:
1. Bláir fánar með lógói hlaupsins
2. Blá örva skilti
3. Klemmur með rauðum og hvítum merkingum

Veðurspáin er fín, þetta verður góður dagur! Athugið að Krossá er kvísluð. Göngubrýr voru settar í gær yfir straummestu hlutana en keppendur munu þurfa að vaða nokkrar sprænur. EKKI nota Gore Tex skó 😅

Munið að trackið er aðeins til viðmiðunar og aldrei 100% nákvæmt þar sem leiðin breytist aðeins á milli ára, sérstaklega m.t.t. hvar göngubrýrnar yfir Krossá eru staðsettar. MERKINGAR GILDA ALLTAF FRAM YFIR TRACKIÐ.

Góða skemmtun á morgun og gangi ykkur vel 🙌

08/08/2024

Mikið hlökkum við til laugardagsins 😀

Þar sem margir eiga eftir að sækja keppnisgögn, munum við einnig afhenda gögn á morgun, föstudag á milli 16:00 -18:00 í húsnæði 66°N Faxafeni.

Ekki er lengur hægt að nafnabreyta eða kaupa sig inn í keppnina.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Reykjavík