21/09/2026
ATH!
Hún Tanya er að byrja með ný námskeið hér í Aflagranda 40
- á miðvikudögum
Klassískt Pilates
Nýtt 10-vikna Klassískt Pilates námskeið með Pilates hringi hefst miðvikudaginn 23. september 2026 í Samfélagshúsinu í Aflagranda 40. Tímarnir verða einu sinni í viku kl. 9.30 til 10.25 á miðvikudögum, verð 20.000 kr.
Í Pilates tímunum verður tekið vel á öllum líkamanum án hamagangs. Tímarnir henta öllum aldurshópum og bæði konum og körlum.
Klassískt Pilates byggist á kerfisbundnum æfingum. Á fyrsta stigi er grunnstyrkur byggður upp í kviðvöðvum og vöðvum sem halda við mænuna. En flesta langvinna bakverki má rekja til ónógs stöðugleika í þessum „grunni“ vöðvakerfisins. Næsta stig miðar að því að byggja upp jafnvægi í styrk og teygjanleika vöðva sem umlykja liði. Teygt er á stuttum vöðvum og slappir vöðvar styrktir. Þetta stuðlar að virkari liðamótum og vinnur m.a. gegn liðverkjum. Þegar jafnvægi og stöðugleika er náð er sífellt erfiðari æfingum smám saman bætt við prógrammið og þannig fer líkamanum stöðugt fram.
Með þessum kerfisbundnu æfingum öðlast líkaminn allur meiri styrk og sveigjanleika þar sem djúpvöðvar líkamans, sem við vissum ekki að væru til, eru þjálfaðir. Æfingarnar móta flottar línur líkamans, gefa m.a. fallega og langa vöðva, sterkari kvið, læri og bak. Ennfremur öðlumst við betri líkamsstöðu og aukinn liðleika og drögum þannig úr hættu á meiðslum.
Þar að auki sameinar Pilates teygjur og styrkingu á þann hátt að það kann að virðast auðveldara en önnur æfingakerfi, en staðreyndin er sú að áreynslan er meiri og nær dýpra inn í vöðvana.
Þetta er frábært æfingakerfi sem slegið hefur rækilega í gegn um allan heim.
Leiðbeinandi: Tanya Svavarsdóttir. Skráning með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].
ZUMBA GOLD
Nýtt 10-vikna Zumba Gold dans námskeið hefst miðvikudaginn 23. september 2026 í Samfélagshúsinu í Aflagranda 40. Tímarnir verða einu sinni í viku kl. 10.30 til 11.25 á miðvikudögum, verð 20.000 kr. Zumba Gold er dans og leikfimi sem notar svipaða uppbyggingu og Zumba Fitness, en breytir danssporunum og lækkar hraðann, sem hentar betur dönsurum sem eru 60 ára og eldri. Fólk getur tekið því rólega með Zumba Gold og skemmt sér konunglega í leiðinni. Fólk öðlast betri líkamsstöðu og meiri úthald. Tónlistin er jafn skemmtileg og í Zumba Fitness. Í Zumba Gold hjá Tönyu lærir fólk öll grunnsporin og samhæfingu í dansinum. Fólk lærir Salsa, Merengue, Reggaeton, Cumbia, Disco, magadans, Bollywood, Reggae, Cha-cha-cha, Jive og fl. Leiðbeinandi: Tanya Svavarsdóttir. Skráning með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].