– Umsóknir um endurgreiðslur nú hafnar –
Kæru kylfingar og viðskiptavinir Eagle golfferða,
Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir þá miklu þolinmæði og skilning sem þið hafið sýnt á meðan við höfum unnið að því að leysa úr þeim flækjum sem sköpuðust eftir fall Play Air og þær miklu röskun á starfsemi okkar sem því fylgdi. Ferlið hefur verið bæði umfangsmikið og tímafrekt, og okkur þykir innilega leitt að uppgjör mála hafi dregist svona á langinn.
Nú getum við þó loks komið með mikilvægar og jákvæðar fréttir:
Viðskiptavinir geta nú sótt um endurgreiðslur úr Ferðatryggingasjóði.
Eftir töluverða vinnu við að ganga frá öllum nauðsynlegum upplýsingum, skjölum og staðfestingum saman við Ferðamálastofu og Ferðatryggingasjóð, liggur nú fyrir formleg heimild fyrir farþega til að leggja fram kröfur um endurgreiðslu vegna þeirra ferða sem aflýst var.
Við biðjumst velvirðingar á að þessi niðurstaða hafi tekið lengri tíma en við vonuðum, en við vildum tryggja að allt væri rétt framkvæmt frá upphafi og að málið leystist farsællega fyrir alla viðskiptavini, starfsmenn, viðskipta- og samstarfsaðila svo allir gangi sáttir frá borði.
Hvernig fer umsóknarferlið fram?
* Ferðatryggingasjóður tekur nú við umsóknum farþega vegna ferða sem ekki var hægt að endurgreiða beint af okkar hálfu.
* Nánari leiðbeiningar um framhald ferlisins, hvaða gögn þarf að skila og hvar sótt er um, má finna á vef Ferðamálastofu.
* Ef upp koma spurningar eða þörf á staðfestingum frá okkar hálfu, erum við reiðubúin að aðstoða eftir bestu getu.
Við skiljum vel að þessi staða hefur valdið mörgum vonbrigðum og óvissu. Markmið okkar frá fyrsta degi hefur verið að tryggja rétt farþega og vinna náið með viðeigandi aðilum að því að koma öllum málum í réttan og tryggan farveg.
Við erum þakklát fyrir þann skilning og stuðning sem margir hafa sýnt og höldum áfram að vera til staðar fyrir ykkur meðan endanlega er gengið frá öllum málum.
Með virðingu og vinsemd,
Árni Freyr Hallgrímsson
Eagle Golfferðir
Einstakar golfferðir fyrir íslenska kylfinga! Skipulagðar ferðir með fararstjóra 🏌️♀️
Sérferðir fyrir einstaklinga, pör og hópa ⛳️
Eagle golfferðir hafa ekki getað afgreitt endurgreiðslur til viðskiptavina vegna aflýstra ferða innan þeirra þröngu tímamarka sem þessu er gefin í lögum. Fyrir þessu eru þó að okkar mati eðlilegar skýringar.
Fall Play Air setti starfsemi Eagle golfferða, eins og fleiri ferðaskrifstofa, í algert uppnám. Á einni nóttu stóð fyrirtækið skyndilega frammi fyrir því að flugfélagið sem ferja átti viðskiptavini þess í bókaðar ferðir vikurnar og mánuðina á eftir var lýst gjaldþrota. Keyptir flugmiðar í gegnum Play urðu ónothæfir og engir raunhæfir kostir voru á því að bóka nýja flugmiða í þessar ferðir með öðrum flugfélögum, ýmist vegna kostnaðar eða að slíkir flugmiðar voru ekki í boði. Því var ekki um annað að ræða en að aflýsa mörgum ferðum. Aflýsing ferðar af hálfu Eagle golfferða tryggði rétt viðskiptavina til fullrar endurgreiðslu, ýmist frá Eagle golfferðum beint eða í gegnum ferðatryggingasjóð á vegum Ferðamálastofu. Hjá þeim sjóði eru geymdir fjármunir frá Eagle golfferðum til tryggingar á endurgreiðslum til viðskiptavina auk þess sem að til staðar er samtryggingarsjóður sem tryggir endurgreiðslur að fullu ef og þegar tryggingafé Eagle golfferða tæmist.
Rekstrar- og fjárhagsstaða Eagle golfferða er því miður sú, vegna þess áfalls sem gjaldþrot Play Air var og fjárhagslegra skakkafalla sem af þessu hlutust, að félagið getur ekki tryggt öllum viðskiptavinum fulla endurgreiðslu á jafnræðisgrundvelli innan þess 14 daga frests sem félagið hefur til þess. Hins vegar hefur félagið unnið af kappi á undanförnum vikum að ljúka öllum ferðum sem mögulegt var að ljúka, til að halda aflýsingum ferða í lágmarki og takmarka þannig tjón viðskiptavina, félagsins og ferðatryggingasjóðs. Samhliða hefur félagið unnið að því að endurheimta fjármuni sem greiddir voru Play Air en þeir fjármunir verða endanum nýttir til endurgreiðslu til farþega. Þessi vinna tekur því miður nokkurn tíma en vonir félagsins standa til þess að henni ljúki á næstu dögum.
Óskastaðan væri sú að viðskiptavinir gætu strax sótt endurgreiðslur sínar til ferðatryggingasjóðs. Afstaða sjóðsins, sem byggir á þeim lagaákvæðum sem um hann gilda, hefur hins vegar verið sú að viðskiptavinir geti ekki gert kröfur sínar til sjóðsins fyrr en ferðaskrifstofa sem aflýsir ferð hefur formlega verið lýst ógjaldfær og/eða leyfi hennar afturkallað af hálfu Ferðamálastofu. Í báðum tilvikum þarf fyrst að eiga sér stað lögformlegur ferill sem líka tekur tíma.
Við hjá Eagle golfferðum höfum fullan skilning á óánægju viðskiptavina með þá töf sem orðið hefur á endurgreiðslu ferða og uppgjöri vegna aflýsinga. Okkur þykir óendanlega miður að ekki hafi verið hægt að ljúka öllu uppgjöri fyrr og erum afar þakklát fyrir alla þolinmæði sem okkur hefur verið sýnd. Við viljum þó árétta, sem vonandi skiptir á endanum mestu máli, að endurgreiðsluréttur farþega er að fullu tryggður, í síðasta lagi í gegnum ferðatryggingasjóð, og ásetningur okkar er að öll endurgreiðslumál verði komin í fullnægjandi farveg innan daga frekar en vikna.
Með bestu kveðjum,
Árni Freyr Hallgrímsson
Framkvæmdastjóri Eagle Golfferða
Kæru kylfingar og viðskiptavinir Eagle golfferða.
Við erum að gera okkar besta til að bregðast við þessum erfiðu tíðindum. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að aðstoða þá sem hafa keypt af okkur ferðir.
Það er mikil óvissa sem fylgir ástandi á borð við það sem við sjáum nú. Við vorum fullvissuð um að Play myndi halda áfram rekstri og vorum í góðri trú þegar við bókuðum flug með félaginu.
Eins og gefur að skilja er þetta flókin staða. Við biðjum um þolinmæði ykkar. Við lofum ykkur að við gerum allt sem við getum við að leysa úr þeirri stöðu sem komin er upp, með hagsmuni farþega okkar að leiðarljósi.
28/09/2025
Hver er völlurinn? ⛳️🏌️
27/09/2025
Hver er völlurinn? ⛳️
25/09/2025
Sælkeraferð til Ítalíu, komdu í golf með Loga og Jóni! ⛳️🏌️🍷🇮🇹
24/09/2025
Jóla- og áramótaferðir til Fuerteventura, ein af Kanaríeyjunum ☀️🌴⛳️🏌️
https://eaglegolf.is/tour/fuerteventura/
22/09/2025
Lúxus á Spáni, tryggðu þér sæti og njóttu þín á fallegu svæði með frábæran golfvöll við Miðjarðarhafið 🇪🇸☀️⛳️
https://eaglegolf.is/tour/sotogrande/
20/09/2025
Komdu til Marbella í golf og lifðu af landsleikjahléið með .footballpodcast ⛳️🍻
https://eaglegolf.is/tour/lifdu-af-landsleikjahleid/
14/09/2025
Magnað golf í Mauritius! 🌴🌊⛳️
https://eaglegolf.is/tour/mauritius/
10/09/2025
Prófaðu eitthvað nýtt, prófaðu golf í Thailandi! ☀️⛳️🏌️
https://eaglegolf.is/tour/thailand-2/
08/09/2025
Jóla- og áramótaferðir til Marokkó! 🌴⛳️☀️
Kynntu þér ferðina og tryggðu þér sæti!
https://eaglegolf.is/tour/agadir/
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Bíldshöfði 9
Reykjavík
110
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 17:00 |
| Tuesday | 09:00 - 17:00 |
| Wednesday | 09:00 - 17:00 |
| Thursday | 09:00 - 17:00 |
| Friday | 09:00 - 17:00 |