03/06/2026
☀️English and addresses below⛅️
ATH Í júní hittumst við bara úti ❤️
Í sumarstarfi opna leikskólans hittumst við og leikum úti, í öllum veðrum. Við flökkum um höfuðborgarsvæðið og mátum okkur við hin ýmsu útivistarsvæði. Við verðum að leika frá 10-13 og söngstund á sínum stað kl. 11.
Tékklisti fyrir júní:
✅ Börn og fullorðnir klædd eftir veðri
✅ Aukaföt fyrir blaut börn
✅ Nesti og kaffi eða annað gott í töskuna
✅ Velkomið að koma með útidót með sér
✅ Gleði og gaman
ATTENTION In June we only meet outdoors ❤️
In the open preschool summer program we meet and play outside, in all weathers. We will move around the capital area and try our luck at different outdoor areas. Our play times will be from 10-13 and singing time is at 11:00.
A checklist for June:
✅ Children and adults dressed according to weather
✅ Bring extra clothes for children
✅ Bring snacks and coffee/drinks
✅ Welcome to bring outdoor toys
✅ Bring all the FUN
Addresses from google maps:
HELLISGERÐI
Hellisgata 3, 220 Hafnarfjörður
BUS 1
YLSTRÖND
Nautholsvik Geothermal Beach�BUS 5, 8
ELLIÐAÁRSTÖÐ playground
Rafstöðvarvegur, 110 Reykjavík�BUS 16, also 17 min walk from Ártún bus stop, BUS 5, 6, 15, 16 and 18
GUFUNESBÆR
Frístundagarðurinn við Gufunesbæ
Við Gufunesveg, 112, Reykjavík
BUS 31
03/06/2026
Mörg lögðu leið sína í Elliðaárstöð í morgun til að njóta samveru og leiks með vinum og fjölskyldu í Opna Leikskóla Memmm ❤️ Takk fyrir samveruna í dag🥰, sjáumst í næstu viku ☘️
27/05/2026
Þjónustukönnun - Survey for families, english below
Okkar árlega þjónustukönnun er komin í loftið og hvetjum við öll að taka þátt í henni. Könnuninni er ætlað að gefa fjölskyldum rödd í þróun starfsins og að vera formlegur vettvangur upplýsingaöflunar og til umbóta.
Slóð: https://forms.gle/GX93TU6CGS4Bq1Dc7
Our annual survey for families has been releashed and we hope that all participate. The results will be used to further develop the servise and meet the needs of families in the best possible way.
Url: https://forms.gle/XPntfECSxg1LYXig8
25/05/2026
Við erum í skýjunum!🤩😍 Opni Leikskóli Memmm var tilnefndur til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2026 og fyrir það erum við endalaust þakklát🥰 Þessum skólavetri fer senn að ljúka og sumardagskráin tekur við en þá fer starfsemin fram undir berum himni 💚 Við þökkum enn og aftur fyrir tilnefninguna og hlökkum til framtíðarinnar með fjölskyldum sem eru oft að taka sín fyrstu skref í samfélaginu er þau mæta í Opna Leikskóla Memmm❤️
06/05/2026
VIÐ ERUM 5 ÁRA!
Haldið var upp á 5 ára ✋ afmæli Opna Leikskólans í vikunni og héldum við upp á það með diskóljósum, ljúffengum kræsingum, fullt af blöðrum 🎈🎈🎈og okkar besta fólki ❤️💙❤️💙❤️ Takk fyrir komuna öll sem komu, dönsuðu, sungu og nutu samverunnar með okkur 🥰🥳
28/04/2026
Í dag komu í heimsókn til okkar í Opna leikskóla Memmm þær Bergdís og Lilja, nemar í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands en þær eru að ljúka fjórða ári í náminu þar. Þær hafa hug á að vinna mastersverkefni sín í samstarfi við Opna leikskóla Memmm og foreldrasamfélagið sem nýtir sér þjónustuna þar. Gerðar verða bæði eigindleg rannsókn og meginleg rannsókn. Starfsfólk Opna leikskóla Memmm er þeim innilega þakklátt fyrir að velja að rannsaka þá þjónustu sem er í boði fyrir fjölskyldur á stórhöfuðborgarsvæðinu. Svona vinna krefst hugrekkis, eljusemi, áhuga, næmni og seiglu sem þær stöllur búa svo sannarlega yfir. Opni leikskóli Memmm óskar þeim alls hins besta með að undirbúa verkefnið, safna gögnum, með úrvinnslu og komast að niðurstöðum❤️. Við hlökkum mikið til að sjá og deila niðurstöðunum síðar á þessu ári.
24/02/2026
Á þessari mynd má sjá ömmu og barnabarn hrífast af undrum spegilsins 🤩🪞🤩 Þó þær séu einungis tvær á þessari mynd þá var Opni Leikskólinn í Hafnarfirði sérlega vel nýttur í gær en gestir gærdagsins voru ríflega hundrað talsins. Magnaður dagur að baki ❤️