14/03/2024
Hægðu á þér.
Taktu eftir umhverfinu, fólkinu í kringum þig.
Hlustaðu án þess að svara.
Skiptu út dóm fyrir skilning, auðmýkt og kærleika.
Hvað getur þú bætt, nært, hlúað að í þínu nærumhverfi?
Hvert er þitt framlag til samfélagsins?
21/02/2024
Full af eldmóð og ákafa æskunnar leggjum við af stað út í lífið, ætlum að sigra fjallið. Toppurinn blasir við, smá áskorun en við, ung og ódauðleg, með stóra drauma og sterkan hug stefnum á tindinn.⠀
⠀
Innifalið í eldi æskunnar er að sigra heiminn, óhjákvæmilega sem betur. Við lítum niður, setjum hausinn undir okkur og leggjum af stað.⠀
⠀
Eðli málsins samkvæmt mætum við ólíkum áskorunum á leiðinni, fæstar sjáum við fyrir enda ógerlegt að ætla einhverjum það. Svo hefur lífið tilhneigingu til að fara öðruvísi en við ætlum, þekkt stærð sem gleymist hratt.
⠀
En stóri draumurinn lifir líkt og eldur æskunnar. Það þarf bara að ráðast í þessi verkefni, setja hausinn undir sig og halda áfram, upp á topp. Hugarfar sigurvegara.⠀
⠀
Við týnumst á leiðinni.⠀
Með fókus á smáatriði, bitbein sem skipta engu máli þegar upp er staðið.
Og elsku egóið þvælist reglulega fyrir. Gamlar hugmyndir um hvernig ferðalagið “átti að vera” skyggir á ævintýrið og við töpum áttum í hégóma hversdagsins. Festumst í skurði, drullu og öðru ómerkilegu. Hreinlega týnumst.⠀
⠀
⬇️ Ef þú horfir bara niður, á jörðina og gleymir að horfa upp, þá er erfitt að sjá í hvaða átt þú stefnir. ⠀
➡️ Og ekki bara það. Heldur gleyma flestir mikilvægasta atriðinu. Að tékka sig inn hjá sjálfinu. Og hvað þýðir það?⠀
⠀
⬆️ Jú, að líta upp og spyrja sig:⠀
Hvað vil ég í dag?⠀
Hvað hef ég lært um mig?⠀
Hver er ég eftir alla þessa reynslu og raunir?
Er ég að geyma eitthvað sem er ekki mitt? ⠀
⠀
Draumar, von og þrá, STÓRA PLANIÐ tekur breytingum samhliða ferðalaginu. En það er nánast ógerlegt að ætla einhverjum að hafa skýra mynd af ferðalaginu áður en lagt er af stað. Samt gerum við kröfu um það og rífum okkur og aðra niður þegar dæmið gengur ekki upp.⠀
⠀
✅Það má skipta um skoðun.⠀
✅Það má taka aðra stefnu.⠀
✅Þú mátt hafa aðrar þarfir, langanir, áherslur og drauma en þú gerðir áður.
Kannski langar þér miklu frekar á sléttuna eða bara inn í skóg. Og það má.
⠀
🌟Nýr áfangastaður gerir kröfu um að þú lítir upp, horfir í kringum þig, í heiðarleika og hugrekki og skoðir hver þú ert í dag.⠀
Og hugsanlega þarftu að fara yfir búnaðinn, sækja vistir, annan vegvísi, áttavita og jafnvel nýjan fararstjóra.
27/01/2024
Hvað er fíkn?
Hvað er fíkniefni?
Hvernig virkar fíkn?
Af hverju verðum við fíklar?
Hvernig leiðréttum við fíknihegðun?
Ekkert eitt né auðvelt svar en hér er smá innsýn.
How Childhood Trauma Leads to Addiction - Gabor Maté
Gabor Maté CM (born January 6, 1944) is a Hungarian-born Canadian physician. He has a background in family practice and a special interest in childhood devel...
13/11/2023
STELPUR!!!
Síðasti séns ♥️ ekki láta þetta fara fram hjá ykkur. Þetta verður stórkostlegt stund að öllu leiti, næring fyrir líkama og sál.
Ég og fleiri ofur gyðjurverðum með fyrirlestra og ætlum að fylla ykkur af ást, kærleika og krafti.
Yfirskriftin er "GERÐU ÞAÐ FYRIR ÞIG" HeilsuErla Heilsumarkþjálfun og Bjargey & Co.
Auk þess halda Bergmál og Guðrún Árný - Singalong Partý uppi hárri tíðni og gleði.
Veitingar frá Lux Veitingar 🥂og virkilega veglegir gjafapokar 🙌🏻
Ekki missa af þessari yndislegu stund með okkur 💄 komdu og njóttu með okkur.
04/11/2023
Hvað ef, hvað þá og af hverju?
29/08/2023
Þú og aðeins þú getur skapað lífið sem þú vilt. Ekki bíða eftir að einhver annar taki ákvörðun fyrir þig. Stattu upp og taktu skrefið í átt að staðnum sem þig langar að dvelja á.
25/08/2023
🍁Haustið er tíminn sem rútínan tekur við og allt þarf að falla í skorður. ⠀
⠀
Þó við fögnum rútínunni þá fylgir henni oft kvíði og streita, því verkefnin eru mörg og listinn langur. ⠀
⠀
Konan sinnir þar mörgum hlutverkum en týnir oft sjálfri sér í þörfum annarra og streitu hversdagsins.⠀
⠀
Móðir, systir, meyja er 3ja daga endurnærandi retreat dagana 8-10. sept. á Sveitasetrinu Brú, fyrir konuna sem vill endurheimta eldinn og gleðina sem býr innra með henni.
⭐️Fyrir konuna sem vill setja skýr mörk án þess að fá sektarkennd. ⠀
⠀
⭐️Vera í mildi og kærleika án þess að gefa afslátt af sér og sínum þörfum. ⠀
⠀
⭐️ Slökkva á sjálfstýringu og taka stjórn á sínu lífi. ⠀
⠀
⭐️Skila neikvæðum hegðunarmynstum sem þjóna henni ekki. ⠀
⭐️ Vill endurheimta eftirvæntingu fyrir lífinu og hvað dagurinn á morgun færir henni.
17/08/2023
Hversu tryllt er að vera til? ⠀
Að geta fundið til? ⠀
Að vera á lífi. ⠀
⠀
Þú ert skepna sem hefur hæfileikann að upplifa og finna alls konar tilfinningar í hverri einustu frumu í líkama þínum. ⠀
⠀
Líkami þinn er samsafn af öllu sem þú hefur komist í snertingu við á þinni ævi. ⠀
⠀
Líkaminn geymir allt. ⠀
⠀
Þú hefur fullt vald yfir þessu forriti sem líkami þinn er.
Hugsunum, hegðun og tilfinningum. ⠀
⠀
Þú hefur líka hæfileikann til að endurforrita hann eins og þú vilt.⠀
⠀
Þú hefur valdið til að velja fyrir þig.