03/06/2024
Starfsemi WCMMA lokar um óákveðin tíma vegna óviðráðanlegra aðstæðna, tilkynning hefur verið send á alla meðlimi sökum þessa.
-
Allar fyrirspurnir vegna þessa skal senda á [email protected]
-
Við þökkum skilninginn
03/05/2024
Hóparnir okkar að stækka og stemningin alltaf góð! Komdu og prufaðu!
02/10/2023
Við í World Class MMA leitum að reynslumiklum þjálfara til að taka þátt starfseminni okkar í glænýju aðstöðunni undir MMA í Kringlunni 1!
Hæfniskröfur: Mikil reynsla í blönduðum bardagaíþróttum þ.e. BJJ, Kickbox, Muay Thai, MMA
Allar umsóknir berist á [email protected]
26/09/2023
Það gleður okkur að tilkynna að ákveðið hefur verið að færa starfsemi World Class MMA yfir í Kringluna 1, á efri hæðina þar sem WorldFit og World Class Boxing Academy eru til húsa, í algjörlega sérútbúinn sal til MMA iðkunar! 🥊🥋💥
Starfsemin mun færast alfarið frá og með 2. október inn í nýútbúna húsnæðið sem verður í hæsta gæðaflokki og nú miðsvæðis í Reykjavík þar sem meðal annars allar aðal strætóleiðir keyra beint framhjá 🚍
Árni Ísaksson mun áfram leiða starfið af krafti og unnið verður náið með hinum greinunum í húsinu en stefnan er sett á að þarna verði hin fullkomna aðstaða á allan hátt til iðkunar hvers kyns bardagaíþrótta.
26/09/2023
Næstu grunnnámskeið hefjast í byrjun október Á NÝJUM STAÐ: KRINGLUNNI 🤩
Við erum svo spennt að opna dyrnar að splunkunýrri aðstöðu World Class MMA í sama húsnæði og World Class Boxing Academy og WorldFit, Kringlunni 1.
15/09/2023
PRUFAÐU WCMMA FRÍTT Í VIKU
-Ertu með grunn í Kickboxi eða Jiu Jitsu?
Ef svo er þá geturðu mætt FRÍTT til okkar á Tjarnavelli í World Class MMA vikuna 18-22.Sept og við tökum hress á móti þér!
Árni “Úr járni” Ísaksson brautryðjandi í MMA á Íslandi kennir tímana svo að allir eru í góðum höndum!!
Komdu við og taktu á því með okkur!
26/08/2023
Næstu grunnnámskeið hefjast hjá okkur 5. september, ætlar þú að sigra þig og vera með?
🤼 Brazilian Jiu-Jitsu (án galla) 101: á grunnnámskeiðinu lærir þú helstu grunnatriðin. Áhersla er lögð á að stjórna andstæðingi á gólfinu, læra grunnlása, grunnstöður, fellur og varnir.
🥊 Kickbox 101: á grunnnámskeiðinu lærir þú helstu grunnatriðin. Áhersla er lögð á kýlingar, spörk, hnéspörk, olnbogaskot, fótavinnu og varnir.
Skráning á worldclass.is/mma
28/03/2023
Náðu í appið til að taka frá þitt pláss í tíma 🥋🥊