Bjórhlaup RVK

Bjórhlaup RVK

Share

1,6 Kílómetrar. Þrjár alvöru drykkjarstöðvar. Eitt allsherjar gaman.

09/09/2023

Geggjað hlaupsveður! Enn hægt að skrá sig.
Sjáumst í stuði. Barinn opnar kl 14:00 💪🥰

Bjórhlaup RVK Brewing Co | Netskraning.is 07/09/2023

Skráning í Bjórhlaupið á Laugardaginn 9. September er á lokasprettinum. www.bjorhlauprvk.is

Það spáir frábæru hlaupaveðri og rennislétt brautin er tilvalin til bætinga. Skráningunni fylgir glæsilegur hlaupabolur eða kippa af úrvals bjór. Þú velur. Hægt er að sækja hlaupagögnin í Tónabíó, fimmtudag og föstudag milli klukkan 16 og 20. Sjáumst í hlaupastuði.

Bjórhlaup RVK Brewing Co | Netskraning.is Vandað ehf. Kt. 540317-1860 Skipholt 31 105 Reykjavík Einar Örn / Sigurður Símanr.: +354 588 2337 [email protected]

31/08/2023

Ágætu bjórhlauparar:

Nú hafa veðurfræðingar landsins spáð vondu veðri um helgina, rigningu og roki og þótt rigning verði mögulega minni á tíma bjórhlaups verður ennþá hávaðarok úr suðri.

Bjórhlaupið er gleðihlaup og tíminn fyrir og eftir hlaup á líka að vera skemmtilegur.

Því höfum við ákveðið að færa hlaupið um eina viku, - til 9. september.

Afhending hlaupagagna færist einnig um eina viku, - þau má sækja í Tónabíó, Skipholti 33 7. og 8. september.

Við vonum að sem flestir komist í Nauthólsvík þann níunda. Við munum að sjálfsögðu endurgreiða þeim sem voru búnir að skrá sig en komast ekki þann níunda.

Með kærri bjórhlaupskveðju,

Team RVK.

08/08/2023

Það gleður okkur að heyra af stífum bjórhlaups æfingum víðsvegar um landið nú um helgina. Stefnir allt í harðan endasprett við Braggann í Nauthólsvík.

Við minnum á að skráning í hlaupið 2. Sept stendur yfir á www.bjorhlauprvk.is

Bjórhlaup RVK Brewing Co | Netskraning.is 14/07/2023

Alþjóðlegt Bjórhlaup RVK 2023 2. September næstkomandi, skemmtilegasta hlaup sumarsins. Tryggðu þér skráningu á www.bjorhlauprvk.is
Í bjórhlaupinu hlaupum við 1,6 km í kringum HR og klárum þrjá bjóra á leiðinni. Hlaupum til að vinna, hlaupum til gamans. Búningakeppni.

Hlaupið er haldið í góðu samstarfi við Braggann Nauthólsvík.

Register now for the sixth international RVK Beer Run. The most fun running event of the summer. Sign up at www.bjorhlauprvk.is
A full beer mile with three beer stations where you have to finish up before continuing. Some people run to win, others aim for the best costume.
http://www.bjorhlauprvk.is

Bjórhlaup RVK Brewing Co | Netskraning.is Vandað ehf. Kt. 540317-1860 Skipholt 31 105 Reykjavík Einar Örn / Sigurður Símanr.: +354 588 2337 [email protected]

28/10/2022

Jólahlaup?

Í fyrra þurftu þúsundir landsmanna frá að hverfa og gripu í tómt í Vínbúðum hins opinbera. ORA jólabjórinn bara hvarf strax úr hillunum. Í ár er öldin önnur. Nú megum við selja okkar afurð beint úr brugghúsi. Löglega! - Glænýr og ferskur ORA bjór fæst í Skipholtinu frá og með deginum í dag. - Sama verð og í Vínbúðunum. Þá er bara að tryggja sér kippu strax. 🙂 Hver veit hvað hann staldrar lengi við. Endilega deilið sem vindurinn.

Það er opið í litlu bjórbúðinni/bruggstofunni okkar Skipholti 31 bakatil frá 16, föstudag og laugardag, og síðan næst á mið, fim, fös, lau í næstu viku.

Góða helgi :)

01/09/2022

Komdu og náðu í númerið þitt í Skipholti 31 í dag og morgun milli 16 og 20. Tilvalið að ná sér í kippu í leiðinni. Nú er það löglegt :)

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Snorrabraut 56
Reykjavík
101