01/08/2026
Mæli með að kíkja hvort að skautarnir passi ennþá fyrir veturinn og græja áður en fjörið hefst í haust
Hokkífálkinn er SR sjoppan staðsett í Skautahöllinni í Laugardal fyrir ofan áhorfendapallana.
Ekki fastur opnunartími en opið flestar hokkí æfingar yngri flokka - endilega hafið samband.
01/08/2026
Mæli með að kíkja hvort að skautarnir passi ennþá fyrir veturinn og græja áður en fjörið hefst í haust
Minnum á tiltekt í dag kl 17.00 í Laugardalshöll.
Margar hendur vinna létt verk!
18/02/2026
Byggjum fleiri skautasvell - Vísir Skautaíþróttir hafa verið stundaðar í Reykjavík, með hléum, frá árinu 1873. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi íþróttafélag á landinu, stofnað formlega 1873 en endurvakið árið 1893. Félagið var svo endurvakið öðru sinni árið 1938. Árið 1967 mættust úrval...
12/02/2026
Að ósk fjölskyldu Patreks verður frítt á leik SR og SA í Toppdeild kvenna í Skautahöllinni í Laugardal á morgun föstudag. Við viljum engu að síður minna á að það verða posar á staðnum fyrir þá sem vilja styrkja. Allur ágóði af pökkakasti, veitingasölu og kökubasar er til stuðnings fjölskyldunnar.
Á þriðjudaginn komust færri að en vildu svo nú gefst annað tækifæri til að minnast yndislega Patreks okkar og horfa á kvennalið SR og SA etja kappi í skemmtilegustu íþróttinni sem elsku Patti okkar lifði fyrir!
Liðin ætla minnast Patta í upphitun með nafni og númeri hans #12. Fyrir leik ætlum við að hafa mínútu minningarklapp til heiðurs honum, leikmenn lemja kylfum í ísinn og áhorfendur klappa með.
Kynnir og DJ kvöldsins verður Bjarni töframaður.
Eigum saman frábæra kvöldstund og minnumst fallins félaga úr hokkí hreyfingunni.
SR gegn SA í Toppdeild kvenna
Skautahöllin Laugardal
Föstudagurinn 13. febrúar
Upphitun á ís hefst kl. 19.15
Leikurinn hefst kl. 19.45
Sérstakar þakkir til þeirra sem styrkt hafa verkefnið með vinningum eða öðru framlagi.
2Guys | A4 | Aðalbón | BakaBaka | Borgarleikhúsið | Bónus | Brynjuís | Dominos | Eimskip | Elko | FlyOver Iceland | Garmin | Happy Hydrate | Henson | Hilton Reykjavík Spa | Hokkíbúllan | Hreysti | Kandís og Sweeto | Kjörís | Kólus | Krónan | Laugarásbíó | Lemon | M Fitness | Minigarðurinn | Mjólkursamsalan | Myllan | Oche Reykjavík | Ölgerðin | Pollýanna | Sambíó | Síminn | Skopp | Spilavinir | Tannbjörg | Tímavera | Unbroken | Útilíf | Velmerkt
Opnunartímar fram að jólum verða líklegast:
Mánudaginn 15. ~17 til 19
Miðvikudaginn 17. ~16 til 18
Laugardaginn 20. ~10 til 13 (ef æfingar þá)
Treyjurnar, peysurnar og bolirnir eru allt komið í hús, eigum góðan lager af kylfum, hjálmum og byrjendasettum í hörðu pakkana
CCM pöntunin kemur vonandi í vikunni þannig að hægt verður að afhenda á miðvikudag og laugardag.
Ef ofangreindir tímar henta ekki er alltaf hægt að senda línu og við finnum eitthva út úr hlutunum
Jólapöntunin af keppnistreyjum er lent, hægt verður að nálgast þær í sjoppunni milli ~16.30 og 19 í dag
03/12/2025
Vegna mikillar aðsóknar í Íshokkískólann er farið að ganga á lánsbúnaðinn okkar, en félagið lánar endurgjaldslaust búnað til að koma krökkum af stað í íþróttinni. Þess vegna leitum við til ykkar hvort það eigi til notaðan búnað sem börnin eru vaxin upp úr sem það væri til í að gefa félaginu. Við erum helst að leita að búnaði fyrir 12 ára og yngri, bæði hlífðarbúnað og kylfur.
Það má endilega koma með búnaðinn í Skautahöllina í Laugardal eða hafa samband við Íshokkískólann á [email protected]