19/05/2020
Hér er uppfærð mynd af vellinum með nýju skipulagi 18. brautar. Lendi diskur í torfæru (A) er kastað þar sem diskurinn staðnæmist með einu víti. Lendi diskur út af (B) gilda venjulegar vallarmarkareglur og legan merkt frá þeim stað sem diskurinn fer út af og kastað með einu víti.
18/05/2020
18. braut hefur verið breytt til samræmis við reglur leiksins. Besti kosturinn er að hafa torfæru/hazard á leið að eyjunni. Þá er diskinum kastað þar sem hann liggur, með einu víti, lendi hann innan torfærunnar. Allt hægra megin brautar er út af/OB.
15/05/2020
Þriðjudagsdeild FGR og Frisbígolfbúðarinnar verður framlengd um tvær vikur, til 23. júní. Alls verða þetta því 8 vikur og síðustu s*x mótin verða jafnframt PDGA vottuð deild. S*x bestu mót keppenda telja til sigurs í átta vikna deildinni. Vonast er til að þessi framlenging fái góðan hljómgrunn meðal spilara.
Þriðjudagsdeild FGR og Frisbígolfbúðarinnar 1
Event information and results for Þriðjudagsdeild FGR og Frisbígolfbúðarinnar 1
12/05/2020
Hér er vallarkort til glöggvunar. Mótsstjóri hefur lokaorð um völlinn, vallarmörk og skipulag. Fyrirmæli mótsstjóra gilda ef munur er á þeim og myndinni.
12/05/2020
Hér er upprifjun á reglu 303 í móthahandbók PDGA.