Kórdrengir

Kórdrengir

Share

Knattspyrnufélagið Kórdengir var stofanð sumarið 2007. Kórdrengir spila í Lengjudeildinni

17/09/2022

Geggjaður endir á sumrinu! Kórdrengir unnu útisigur á Þrótt V. í dag, 0-3!

💥💥💥💥💥💥💥

17/09/2022

Síðasti leikur ársins ! Þróttur Vogum gegn Kordrengjum á Vogaídýfuvellinum kl 14:00. Fjölmennum á völlinn og styðjum Kórdrengi!!

Photos from Kórdrengir's post 05/09/2022

Þrjú stig gegn Gróttu á föstudaginn 👊🏻👊🏻

Myndir
a

27/08/2022

Leikdagur!! Kórdrengir taka á móti HK í Safamýrina í dag. Leikurinn hefst kl. 14:00.

ÁFRAM KÓRDRENGIR

19/08/2022

!! Tilkynning !!

Þórir Rafn Þórisson okkar markahæsti leikmaður í sumar varð fyrir því að meiðast í leik gegn Selfossi strax á 3 mínútu þann 16. júní síðastliðinn. Þórir spilaði 90 mínútur í þeim leik þrátt fyrir meiðslin, skoraði mark og lagði upp annað. Hann skoraði einnig í næsta leik á eftir gegn HK og missti aðeins af einni æfingu eftir meiðslin, en fann þó örlítið til.
Í síðustu viku fékk Þórir staðfestingu á því eftir segulómun að hann væri með slitið krossband, beinmar og skemmd í liðþófa! Hann fer í aðgerð í næstu viku.
Það er mikill missir af Þóri enda verið með betri leikmönnum Kórdrengja síðastliðin ár. Hann er þó mikilvægur liðinu með nærveru sinni og mun áfram vera með bestu mætingu á æfingar eins og hefur verið síðan hann kom til okkar!

Kórdrengir óska Þóri góðs bata og vonumst við til að sjá hann sem allra fyrst í fallegu treyjunni okkar.

Ef afhentur væri bikar fyrir harðasta leikmann sumarsins þá þarf ekki að halda kosningu, hann er fundinn!

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá atvikið.

18/08/2022

LEIKDAGUR !!
Kórdrengir taka á móti Vestri í Safamýrina í kvöld. Leikur hefst kl. 18:00.
Mætum og fjölmennum á völlinn!
ÁFRAM KÓRDRENGIR

11/08/2022

LEIKDAGUR!!!! 8 liða úrslit mjolkurbikarsins. ALLIR Á VÖLLINN. Leikur hefst kl 18:00 í Safamýri

10/08/2022

Leikur Kórdrengja gegn FH í 8 liða úrslitum Mjólkubikarsins er á morgun, fimmtudaginn 11. ágúst. Leikurinn er í Safamýrinni og hefst kl. 18:00.
Miðsala er hafin inn á Stubb appinu.
Við hvetjum alla til þess að mæta og styðja strákana upp í 4-liða úrslit!!!
ÁFRAM KÓRDRENGIR

09/08/2022

Heil og sæl

Mig langar að segja nokkur orð er varðar Nikita Chagrev og samkomulag hans við Kórdrengi.

Eftir mikla leit af markverði hér heima og erlendis fyrir tímabilið í ár var ákveðið að gefa Nikita Chagrev möguleika á að koma hingað til lands og æfa með okkur og ná sér af alvarlegum meiðslum.

Nikita sleit hásin 21. september 2021 er hann var að renna út á samning hjá sínu fyrra félagi. Hann kemur til okkar í byrjun mars, töluvert frá því að vera tilbúinn. Kórdrengir og Nikita gerðu með sér samkomulag um að félagið veitir honum þá aðstoð sem hann þurfti í hans bataferli. Sjúkraþjálfun, læknisaðstoð og húsnæði. Í samningnum var ákvæði um að bæði leikmaðurinn og félagið höfðu rétt á að enda samninginn á hvaða tímapunkti sem er.

En það verður ekki af Nikita tekið að ég héf sjaldan eða aldrei séð leikmann leggja sig jafn mikið fram til að ná bata og verða tilbúinn sem allra fyrst. En því miður varð afturför í hans bata sem seinkaði mikið því ferli. Nikita er ekki enn búinn að ná fullum bata og þar við stendur. Hann þarf leiki og spiltíma til þess en það gerist ekki hér á miðju tímabili með tvo aðra markmenn í toppstandi.

Það liggur enginn vafi á því að Nikita er fullfær og gott betur en það til að vera toppmarkmaður hér á Íslandi eða í því landi sem hann velur sér þegar hann er búinn að ná sér að fullu.

Að lokum vil ég árétta það að Nikita er frábær drengur sem stóð við allar sínar skuldbindingar gagnvart Kórdrengjum. Eins finnst mér félagið hafa gert virkilega vel við leikmanninn á meðan hann var leikmaður okkar.

Með vináttu og virðingu
Davíð Smári Lamude

28/07/2022

👊🏻👊🏻👊🏻

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Safamýri 28
Reykjavík
108