RIG - Reykjavik International Games

RIG - Reykjavik International Games

Share

Reykjavik International Games is a multi sport event in more than 14 different sports. Next games: January 22nd to February 8th 2025

12/02/2026

Takk fyrir þátttökuna í Reykjavík International Games 2026 🙌

Þetta frábæra samantektarmyndband gerði Sigurður Björgvinsson fyrir leikana í ár 🙌

Sjáumst 2027 🤝

Photos from RIG - Reykjavik International Games's post 02/02/2026

Keppni í skylmingum á RIG 2026 🤺

RIG 2026 fór fram í Skylmingamiðstöðinni í Laugardal. Keppnin er hluti af "Reykjavik
International Games 2026". Keppni fyrir unglinga og ungmenni var einnig haldin.
Alls tóku þátt 31 keppendur frá s*x þjóðum: Austurríki, Íslandi, Kanada, Litháen, Filippseyjum og Póllandi.

Keppnin í bæði karla- og kvennaflokki var afar spennandi.
Í fyrri undanúrslitaleik kvenna kepptu Anna Edda Gunnarsdóttir Smith og Sophia Sokolova frá Kanada, þar sem Anna Edda sigraði með yfirburðum, 15–1. Í seinni undanúrslitaleiknum mættust Giedrė Razgutė frá Litháen og Krystal Gem Saga Tesio frá Filippseyjum.

Giedrė vann þann leik 15–1. Úrslitaleikurinn stóð því milli Önnu Eddu og Giedrė, en það var Anna Edda sem sigraði, 15–11. Í fyrri undanúrslitaleik karla mættust Emil Ísleifur Sumarliðason og Kjartan Gunnsteinn Kjartansson, þar sem Emil Ísleifur sigraði með yfirburðum, 15–4. Í seinni undanúrslitaleiknum kepptu Gunnar Egill Ágústsson og Kermit Konstanty Madej frá Póllandi. Gunnar vann þann leik 15–5.

Úrslitaleikurinn stóð því milli Emils Ísleifs og Gunnars Egils, en það var Gunnar sem fór
með sigur af hólmi, 15–5. Þetta var í annað sinn sem bæði Anna Edda Gunnarsdóttir Smith og Gunnar Egill Ágústsson stóðu uppi sem sigurvegarar Reykjavíkurleikanna.

Innilega til hamingju með flottan árangur 👏

Photos from RIG - Reykjavik International Games's post 27/01/2026

Keppni í klifri á Reykjavíkurleikunum lauk í gær þegar úrslit í opnum flokkum í grjótglímu fóru fram.

Úrslitin fóru fram hjá Fimleikafélaginu Björk á færanlegum keppnisvegg í eigu Klifurfélags Reykjavíkur. Átta konur og átta karlar komust í úrslitin og voru keppendur í úrslitum frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Póllandi ásamt okkar keppendum frá Íslandi. Áhorfendur fylltu salinn og var spennustigið hátt. Keppendur klifruðu fjórar leiðir sem hver g*t mest gefið 25 stig og voru því 100 stig í pottinum. Keppendur fengu 4 mínútur til að reyna við leiðina eins oft og þau vildu en fyrir hverja tilraun eru dregin 0,1 stig frá.

Í karlaflokki sigraði Albin Mayer frá Svíþjóð. Albin er mjög sterkur klifrari og varð Norðurlandameistari í greininni árið 2024. Hann endaði með 69 stig og Paulo Guðrúnarson fylgdi honum eftir í öðru sæti með 59 stig og Garðar Logi Björnsson í þriðja með 44,9. Í kvennaflokki varð fyrst upp úr undanúrslitunum Clara Stricker-Petersen frá Svíþjóð sem vann keppnina bæði 2024 og 2025. Hún klifraði af miklu öryggi í úrslitunum og tryggði sér sigurinn þriðja árið í röð með 84,5 stigum. Maja Juscinska frá Póllandi endaði í öðru sæti með 73,9 stig og í þriðja sæti varð Jenný Þóra Halldórsdóttir með 60 stig.

Mikil gleð ríkir í klifursamfélaginu yfir því að keppnisveggurinn sé kominn upp varanlega hjá Klifurdeild Fimleikafélagsins Björk. Veggurinn er hannaður til að vera færanlegur og hefur hann verið settur upp í Laugardalshöllinni tvisvar áður en markmiðið hefur verið að finna honum varanlegan stað. Mikil vöntun hefur verið á keppnisaðstöðu í greininni og er þetta framfararskref í rétta átt. Veggurinn nýtist Klifurdeild Bjarkarinnar sömuleiðis við æfingar en þar er rekið öflugt barna- og unglingastarf.

📸 Sigurður Ólafur Sigurðssone

Photos from RIG - Reykjavik International Games's post 26/01/2026

Borðtennismót Reykjavíkurleikana - RIG 2026 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal laugardaginn 24. janúar í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Mótið tókst mjög vel þar sem 22 leikmenn mættu til leiks í karlaflokki og 12 keppendur í kvennaflokki. Góðir gestir komu frá Færeyjum,Svíþjóð, Kína og Pólandi. Mótið var mjög skemmtilegt og mikið um jafna skemmtilega og spennandi leiki.
Yfirdómari mótsins var Pétur Ó. Stephensen.

Í Karlaflokki léku í undanúrslitum Magnús Gauti Úlfarsson BH gegn Benedikt Jóhannsyni Víkingi leikar fóru þannig að Magnús
sigraði 4 - 0 eftir góða leiki.
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Maksymilian Alot Póllandi gegn Albert Whe Wolfsberg Færeyjum leikar fóru þannig að Maksymilian Alot sigraði nokkuð örruglega l 4 - 0.
Úrslitaleikinn léku því Maksymilian Alot gegn Magnús Gauta Úlfarssyni BH
Maksymilian lék mjög vel og sigraði eftir jafna og spennandi leiki 4 - 2(11-9, 6-11,11-6 ,8-11,11-9 og 11-7).

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Nevena Tasic Víkingur gegn Nina Alot Póllandi, Nevena sigraði nokkuð örruglega 4 - 1
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir KR gegn Magneu Ólafs Víkingi, leikar fóru þannig að Guðbjörg Vala
sigraði 4 - 0
Úrslitaleikinn léku því Guðbjörg Vala gegn Nevena Tasic Víkingi,
Guðbjörg Vala sigraði að lokum eftir æsi- spennandi og vel spilaða leiki 4 - 3 (4-11,11-6, 11-4,2-11,8-11,11-7 og 11-8)

Úrslitin í mótinu voru þannig:
Einliðaleikur karla:
1. Maksymilian Alot Pólland
2. Magnús Gauti Úlfarsson BH
3-4. Benedikt Jóhannsson Víkingur
3-4. Albert Ehe Wolfsberg Færeyjar

Einliðaleikur kvenna:
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir KR
2. Nevena Tasic Víkingur
3-4. Nina Alot Póllandi
3-4. Magnea Ólafs Víkingur

26/01/2026

Nýtt mótsmet 💥

Guðmundur Leo Rafnsson (ÍRB) synti 100m baksund í úrslitum á RIG í gærkvöldi og kom í bakkann á glæsilegu nýju mótsmeti. Hann kláraði á 56.84 sem er bæting á mótsmetinu sem hann setti í gærmorgun.

Innilega til hamingju 👏

📸

26/01/2026

Sveit Skotfélags Reykjavíkur vann parakeppnina á RIG í gær 🥇

Keppt var í parakeppni með loftskammbyssu á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni í gær. Pörin skjóta 30 skotum hvort og hafa til þess 40 mínútur.

Lið Skotfélags Reykjavíkur skipað Jórunni Harðardóttur og Magna Mortensen sigraði með 523 stig. Í öðru sæti varð A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs en það skipuðu Adam Ingi H.Franksson og Tatjana Jastsuk, með 519 stig og í þriðja sæti varð B-sveit Kópavogs, Guðni Sigurbjarnarson og Maria Lagou, með 485 stig..Árangur Skotfélags Reykjavíkur er nýtt Íslandsmet í parakeppni (Mixed Team).

Innilega til hamingju 👏

26/01/2026

Sigurlína með Íslandsmet á RIG í dag 🥇

Keppni í loftriffli er nú lokið á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni. Í opnum flokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 232,8 stig eftir harða keppni við Írisi Evu Einarsdóttur úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 227,4 stig, sem hlaut silfrið. Í þriðja sæti varð Sigurlína Wium Magnúsdóttir einnig úr Skotfélagi Reykjavíkur, en hún sigraði einnig unglingaflokkinn en Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur hlaut silfrið.

Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,639 stig (44x), B-sveit Skotfélags Reykjavíkur varð önnur með 1,533 stig (26x) og í þriðja sæti sveit Skotfélags Ísafjarðar með 1,048 stig (23x). Þór Þórhallsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs hlaut svo gullið í flokki fatlaðra. Árangur Sigurlínar í úrslitunum er nýtt Íslandsmet unglinga.

Innilega til hamingju 👏

26/01/2026

Jórunn sigraði í loftskammbyssu 🥇

Keppni í loftskammbyssu er nú lokið á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni. Í opnum flokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 224,1 stig eftir mjög tvísýna keppni við Maríu Lagou úr Skotíþróttafélagi Kópavogs, með 220,5 stig, sem hlaut silfrið. Í þriðja sæti varð Björgvin Sigurðsson úr Skotdeild Keflavíkur.

Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur hlaut gullið í unglingaflokki. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,611 stig (19x), A-sveit Skotfélags Reykjavíkur varð önnur með 1,596 stig (23x) og í þriðja sæti sveit Skotdeildar Keflavíkur með 1,554 stig (14x).

Innilega til hamingju 👏

26/01/2026

Klifur á SÝN 🎥

Keppni í klifri verður í beinni útsendingu á SÝN í kvöld, mánudaginn 26. janúar á milli 18:30-21:30. Keppt er í opnum flokki 🫶

Ekki missa af þessari snilld 🙌

25/01/2026

Guðmundur Leo Rafnsson setur annað mótsmet 👏

Guðmundur Leo Rafnsson (ÍRB) setti nýtt mótsmet í 100m baksundi karla þegar hann kom í bakkann á 57.21. Gamla mótsmetið átti Magnus Jakupsson frá Danmörku, 57.67, sett árið 2017.

Guðmundur Leo er greinilega í hörkuformi og verður spennandi að sjá hvað hann gerir í úrslitum í kvöld.

📸

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Engjavegur 6
Reykjavík
104