05/02/2026
ReyCup Jr. Vormótið fer fram helgina 30. og 31. maí.
Skráning er hafin
https://forms.gle/WQjV9wpCyAAN9Pd6A
Keppt verður í 6., 7. og 8. flokki.
Nánari upplýsingar á
https://reycup.is/reycup-junior-vormot/
06/11/2025
Rey Cup - Vormót fyrir 6., 7. og 8. flokk stúlkna og drengja verður haldið helgina 30.-31. maí 2026 í Laugardalnum.
07/06/2025
ÁRÍÐANDI SKILABOÐ
Innflytjandi þátttökuverðlaunanna óskar eftir því við að fá alla brúsa til sín hið fyrsta (fyrir lok júní 2025), til:
JAKOSPORT (Namo ehf)
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Því er vinsamlega beint til allra viðtakanda að þeir noti ekki brúsana þar sem að tappinn þykir skapa hættu við notkun.
Allir sem skila brúsunum fá annan brúsa í staðinn.
Með fyrirfram þökk
Jakosport
[email protected]
Sími:566-7310
03/06/2025
Vegna mótsgjafar 2025.
Skilaboð frá innflytjenda brúsanna JAKOSPORT (Namo ehf):
Þetta eru sams konar brúsar og við höfum tekið í nokkur ár án nokkurra vankvæða. Okkur þykir miður að eitthvað hafi borið á því að drykkjarstúturinn hafi losnað af. Í þeim tilfellum hvetjum við viðkomandi að hafa samband við okkur og við skiptum viðkomandi brúsa út fyrir Jako brúsa í staðinn.
Þeir sem þess óska þurfa að gera það innan loka þessa mánaðar hingað:
JAKOSPORT (Namo ehf)
Krókháls 5F
110 Reykjavík
28/05/2025
Kæru forráðamenn iðkenda á Reycup–Vormóti 2025
Okkur hefur nýverið borist ábending um að vatnsbrúsinn sem fylgdi með í mótsgjöf ársins kunni að vera óöruggur í notkun. Nánar tiltekið hefur komið í ljós að tappinn getur losnað af brúsanum. Við hörmum þetta og hvetjum til varkárni, sérstaklega þegar yngstu iðkendurnir nota brúsann.
Brúsinn var framleiddur í Evrópu og fluttur inn í gegnum traustan og ábyrgan söluaðila sem við eigum í góðu og farsælu sambandi við, og því kom þessi ábending okkur á óvart. Við erum að afla frekari upplýsinga og látum vita um leið og þær liggja fyrir.
Við þökkum ykkur fyrir skilninginn og samvinnuna
Með vinsemd og virðingu, Reycup–Vormót 2025
25/05/2025
Svo sannarlega var þetta sunnudagur til sælu til í Laugardalnum í dag🙌 Okkur Þrótturum þótti alveg ótrúleg gaman að taka á móti öllum þessu skemmtilegu og kláru fótboltakrökkum í 6. flokki sem og ykkur forráðamönnum þeirra og systkinum.
Frábært mót á enda komið sem gaman er að ljúka með því að deila þessum velheppnuðu myndum sem teknar voru af SportHero fyrir okkur til að fanga stemninguna á mótinu. Ef þið hafið áhuga á að kaupa einhverja þessara mynda í prentgæðum þá endilega setjið ykkur í samband við [email protected]
Við þökkum ykkur öllum hjartanlega fyrir komuna í ár og hlökkum strax til á næsta ári 💚🤍
25/05/2025
Kanntu 'rainbow flick', 'around the world' eða önnur fótboltatrix? Þessar eru á ferðinni og bjóða þátttendum í Vormótinu að sýna listir sínar og fá Rey Cup Iceland bol að launum á meðan birgðir endast ⚽️
25/05/2025
Nokkur atriði sem gott er að hafa á hreinu inn í daginn 🤍💚🖤
1. Leggjum löglega 🚗🚙
2. Vellirnir eru girtir af og við biðjum forráðafólk vinsamlegast um að virða þær merkingar.
3. Þáttökugjöf og liðsmyndataka fer fram í Þróttarheimili eftir að keppni er lokið (röð byrjar úti við aðalinngang)
4. Veitingar og salerni eru til staðar á öllum þremur vallarsvæðunum.
5. Hægt er að taka þá í leik á vegum Knatter milli kl. 11-14, staðsett á grasi fyrir framan Þróttarheimili.
En fyrst og fremst - góða skemmtun og njótið dagsins!
24/05/2025
Þvílíkur dagur, þvílíkir ❤️taktar, þvílík ⚽️gleði.
Við þökkum 7. og 8. flokki kærlega fyrir komuna og þátttökuna á Rey Cup Vormótinu 2025 - þið voruð frábærir gestir eins og sést á þessum skemmtilegu myndum frá SportHero
Hlökkum til að taka á móti ykkur aftur á næsta ári - þar til þá spilið fótbolta og hafið gaman!
24/05/2025
Á morgun sunnudag tökum við á móti 6. flokki stúlkna og drengja - leikjaplanið hefur verið birt á https://reycup-vormot.torneopal.com/ og hér má sjá myndir af uppsetningu vallarsvæðanna.
Athugið að spilað verður á þremur vallarsvæðum Þróttar á morgun:
- AVIS völlur / aðalvöllur Þróttar
- ÞRÓTTHEIMAR Hagar og Sund / gervigrasvellir bakvið Þróttarheimilið
- MIÐHEIMAR / grasvöllur á milli Þróttarheimilis og skautahallar
Hlökkum til að taka á móti ykkur - áfram fótbolti og áfram gleði!
24/05/2025
Afhending þátttökugjafa og liðsmyndataka fer fram í Þróttarheimili strax og lið ljúka keppni.
Góða skemmtun og njótið dagsins ⚽️❤️
24/05/2025
Fótboltahátíðin er hafin ⚽️💚🤍❤️⚽️
Athugið að leikið er á þremur svæðum Þróttar í Laugardalnum:
- AVIS völlur / aðalvöllur Þróttar
- ÞRÓTTHEIMAR / gervigrasvellir bakvið Þróttarheimilið
- MIÐHEIMAR / grasvöllur á milli Þróttarheimilis og skautahallar
Við hvetjum ykkur til að skoða vel kortið sem fylgir áður en lagt er af stað svo þið farið strax á rétt svæði og sparið ykkur þannig sporin.
Góða skemmtun og njótið þess að spila ⚽️leikinn!