Siglunes - Nauthólsvík

Siglunes - Nauthólsvík

Share

Siglunes er ævintýramiðstöð við sjóinn þar sem ungum sem öldnum gefst kostur á að finna kröftum sínum og ævintýraþrá farveg. Allar upplýsingar á www.SIGLUNES.is

Frístundavefurinn 18/04/2024

Siglunes – starfsemi sumarið 2024

Skráning hefst 23. apríl kl 10:00 á www.fristund.is

Námskeiðið heitir: Siglingar róður ævintýri.

Markmið námskeiðs: Að þátttakendur læri grunnatriði siglinga og róðurs.

Um námskeiðið: Spennandi og skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra tökin á mismunandi bátum, læra um öryggisatriði og notkun björgunarvesta. Námskeiðið er hlaðið spennu og ævintýrum. Þátttakendur munu takast á við nýjar og spennandi áskoranir á hverjum degi. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja taka þátt í starfsemi Vatnasportklúbbs Siglunes.

Bátar: Siglt er á seglbátum, róið á kayökum og árabátum og margt fleira skemmtilegt prófað.

Klæðnaður: Þátttakendur þurfa að vera klæddir í hlý og skjólgóð föt og hafa meðferðis aukaföt og nesti. Hægt er að hita mat í örbylgjuofni og grilla samlokur.

Námskeiðin eru 3 klukkutímar á dag og eru námskeiðin haldin fyrir hádegi kl. 9:00 – 12:00 og eftir hádegi kl. 13:00 – 16:00.
Námskeiðin eru 5 dagar frá mánudegi - föstudags.
Dagssetningar: 10. – 14. júní, 18. – 21. júní*, 24. – 28. júní, 1. – 5. júlí, 8. – 12. júlí, 15. – 19. júlí, 22. – 26. júlí, 29. júlí – 2. ágúst.

Verð kr. 11.400
*4 dagar verð kr. 9.080

Öryggisatriði: Á námskeiðinu læra þátttakendur hvernig á að velja sér björgunarvesti og klæðast því á réttan hátt.
Allir þátttakendur verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.
Þátttakendur í starfi Siglunes eru alltaf undir eftirliti starfsfólks.
Gæslubátar fylgjast með allri starfsemi á sjó og eru alltaf til taks.
Allt starfsfólk Siglunes fer á skyndihjálparnámskeið og öryggis- og fræðslunámskeið Siglunes samtals 40 klst. á hverju ári.

Skráning á www.fristund.is


Vatnasportklúbbur Siglunes sumarið 2024

Skráning hefst 23. apríl kl 10:00 á www.fristund.is

Vatnasportklúbbur Siglunes er fyrir 10 – 16 ára. Fyrir börn fædd 2008 – 2014.

Vatnasportklúbburinn er fyrir þá sem hafa farið á námskeið, eða eru vanir að sigla og róa, og/eða hafa mikinn áhuga á að kynnast vatnasporti og ævintýrum.

Vinsamlega athugið að vatnasportklúbburinn er ekki siglinga- og róðranámskeið. Þetta er frábær klúbbur fyrir þá sem vilja halda áfram eftir námskeiðið að sigla og róa og kynnast fleiri hliðum þess sem ævintýraheimur vatnaíþrótta býður uppá. Klúbbfélagar ákveða í samráði við starfsfólk hvaða bátum þeir sigla eða róa hverju sinni.

Bátar: Klúbbfélagar hafa daglega aðgang að seglbátum, kayökum, kanóum, róðrabrettum (SUP) og árabátum.

Fatnaður: Klúbbfélagar þurfa að vera klæddir hlýjum og skjólgóðum fötum og hafa aukaföt og handklæði meðferðis.

Klúbbfélagar eru undir eftirliti starfsfólks Siglunes. Starfsfólk Siglunes sér um að leiðbeina og gefa góðar ráðleggingar svo að allir geti bætt færni sína.

Mælt er með að hafa nesti með sér. Hægt er að hita mat í örbylgjuofni og grilla samlokur.

Klúbbastarfið er á tímabilinu 10. júní – 2. ágúst.

Opið mánudaga til föstudaga kl. 13:00 – 17:00.

Eingöngu er hægt að kaupa heilar vikur:
Dagssetningar: 10. – 14. júní, 18. – 21. júní*, 24. – 28. júní, 1. – 5. júlí, 8. – 12. júlí, 15. – 19. júlí, 22. – 26. júlí, 29. júlí – 2. ágúst.

Verð kr. 8.130
*4 dagar kr. 6.550

Öryggisatriði: Allir þátttakendur í klúbbastarfinu verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.
Þátttakendur í klúbbastarfinu mega ekki fara út fyrir siglingasvæði Sigluness sem er merkt sérstaklega með baujum.
Þátttakendur í starfi Siglunes eru alltaf undir eftirliti starfsfólks.
Gæslubátar fylgjast með allri starfsemi á sjó og eru alltaf til taks.
Allt starfsfólk Siglunes fer á skyndihjálparnámskeið og öryggis- og fræðslunámskeið Siglunes samtals 40 klst. á hverju ári.

Skráning á www.fristund.is.

Siglunes – starfsemi sumarið 2024

Skráning hefst 23. apríl kl 10:00 á www.fristund.is

Skráning á www.fristund.is.

Frístundavefurinn Upplýsingavefur um frístundastarf í Reykjavík

Photos from Siglunes - Nauthólsvík's post 31/07/2023

Takk fyrir sumarið 2023 í Siglunesi😀🛶⛵️⚓️🌊

02/05/2023

Skráning á námskeiðin og í vatnasportklúbbinn hefst fimmtudaginn 4. maí kl. 10:00 á fristund.is

Frístundavefurinn 13/04/2023

Siglunes starfsemi sumarið 2023

Skráning hefst í byrjun maí, verður auglýst sérstaklega

Námskeið í siglingum og róðri fyrir 9 - 12 ára. Fyrir börn fædd 2011 – 2014.

Námskeiðið heitir: Siglingar róður ævintýri.

Markmið námskeiðs: Að þátttakendur læri grunnatriði siglinga og róðurs.

Um námskeiðið: Spennandi og skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra tökin á mismunandi bátum, læra um öryggisatriði og notkun björgunarvesta. Námskeiðið er hlaðið spennu og ævintýrum. Þátttakendur munu takast á við nýjar og spennandi áskoranir á hverjum degi. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja taka þátt í starfsemi Vatnasportklúbbs Siglunes.

Bátar: Siglt er á seglbátum, róið á kayökum, kanóum og árabátum.

Klæðnaður: Þátttakendur þurfa að vera klæddir í hlý og skjólgóð föt og hafa meðferðis aukaföt og nesti. Hægt er að hita mat í örbylgjuofni og grilla samlokur.

Námskeiðin eru 3 klukkutímar á dag og eru námskeiðin haldin fyrir hádegi kl. 9:00 – 12:00 og eftir hádegi kl. 13:00 – 16:00.
Námskeiðin eru 5 dagar frá mánudegi - föstudags.
Dagssetningar: 12. –16. júní , 19. – 23. júní, 26. – 30. júní, 3. – 7. júlí, 10. – 14. júlí, 17. – 21. júlí, 24. – 28. júlí.

Verð kr. 10.375

Öryggisatriði: Á námskeiðinu læra þátttakendur hvernig á að velja sér björgunarvesti og klæðast því á réttan hátt.
Allir þátttakendur verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.
Þátttakendur í starfi Siglunes eru alltaf undir eftirliti starfsfólks.
Gæslubátar fylgjast með allri starfsemi á sjó og eru alltaf til taks.
Allt starfsfólk Siglunes fer á skyndihjálparnámskeið og öryggis- og fræðslunámskeið Siglunes samtals 40 klst. á hverju ári.

Skráning á www.fristund.is

Vatnasportklúbbur Siglunes sumarið 2023

Skráning hefst í byrjun maí, verður auglýst sérstaklega

Vatnasportklúbbur Siglunes er fyrir 10 – 16 ára. Fyrir börn fædd 2007 – 2013.

Vatnasportklúbburinn er fyrir þá sem hafa farið á námskeið, eða eru vanir að sigla og róa, og/eða hafa mikinn áhuga á að kynnast vatnasporti og ævintýrum.

Vinsamlega athugið að vatnasportklúbburinn er ekki siglinga- og róðranámskeið. Þetta er frábær klúbbur fyrir þá sem vilja halda áfram eftir námskeiðið að sigla og róa og kynnast fleiri hliðum þess sem ævintýraheimur vatnaíþrótta býður uppá. Klúbbfélagar ákveða í samráði við starfsfólk hvaða bátum þeir sigla eða róa hverju sinni.

Klúbbfélagar eru undir eftirliti starfsfólks Siglunes. Starfsfólk Siglunes sér um að leiðbeina og gefa góðar ráðleggingar svo að allir geti bætt færni sína.

Klúbbfélagar verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.

Bátar: Klúbbfélagar hafa daglega aðgang að seglbátum, kayökum, kanóum, róðrabrettum (SUP) og árabátum.

Fatnaður: Klúbbfélagar þurfa að vera klæddir hlýjum og skjólgóðum fötum og hafa aukaföt og handklæði meðferðis.

Mælt er með að hafa nesti með sér. Hægt er að hita mat í örbylgjuofni og grilla samlokur.

Klúbbastarfið er á tímabilinu 12. júní – 28. júlí.

Opið mánudaga til föstudaga kl. 13:00 – 16:00.

Eingöngu er hægt að kaupa heilar vikur:
Dagssetningar: 12. – 16. júní, 19. – 23. júní, 26. – 30. júní, 3. – 7. júlí, 10. – 14. júlí, 17. – 21. júlí, 24. – 28. júlí.
Verð kr. 7.375

Skráning á námskeiðin og Vatnasportklúbbinn er rafræn á vefnum www.fristund.is.

Frístundavefurinn Upplýsingavefur um frístundastarf í Reykjavík

Áfram Siglunes – ævintýrið er þarna úti! 04/12/2022

⛵️ Björgum Siglunesi – skrifaðu undir hér: https://chng.it/ZdyF8N6nFC

Við skorum á borg­ar­full­trúa að standa vörð um þessa ein­stöku starf­semi og koma í veg fyrir að Siglu­nesi verði lok­að. Það væri sér­lega óábyrgt að ráð­ast í slíka þjón­ustu­skerð­ingu við börn og ung­menni án þess að meðal ann­ars meta áhrifin sem lok­unin hefði í för með sér. Við erum sann­færð um að það væru dýr­keypt mis­tök að loka Siglu­nesi. Með því væri tekið helj­ar­stökk aftur á bak og krónum kastað fyrir aura.

Áfram Siglunes – ævintýrið er þarna úti! Á sjöunda tug fólks, sem komið hefur að starfinu í Siglunesi í Nauthólsvík, mótmæla harðlega áformum Reykjavíkurborgar að loka ævintýramiðstöðinni sem þau hafa styrkt og þroskað börn, ungmenni og fullorðna í yfir hálfa öld.

Photos from Siglunes - Nauthólsvík's post 05/08/2022

2. - 5. ágúst

Photos from Siglunes - Nauthólsvík's post 05/08/2022

25. - 29. júlí

Photos from Siglunes - Nauthólsvík's post 18/07/2022
Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Nauthólsvík
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00