26/06/2018
Einkatímarnir eru einstaklingsmiðaðir og sniðnir að þörfum og markmiðum hvers og eins. Við hjálpum kúnnanum að setja sér markmið og hvetjum hann til árangurs.
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from TYR, Sport & recreation, Stórhöfði 17, Reykjavík.
26/06/2018
Einkatímarnir eru einstaklingsmiðaðir og sniðnir að þörfum og markmiðum hvers og eins. Við hjálpum kúnnanum að setja sér markmið og hvetjum hann til árangurs.
22/06/2018
3. sætið á EM verður að duga í þetta skiptið! Tveir dómarar voru reknir eftir gærdaginn. Við komum brjáluð á HM í haust og klárum dæmið.
21/06/2018
Imma tapaði eftir umdeilda og klofna dómaraákvörðun. Flestir voru á því að hún hafi unnið bardagann þar sem hún stýrði honum öllum og veitti þeirri ítölsku mun þyngri högg.
Tveir dómarar gáfu ítölsku sigur og einn dómari gaf Immu sigur.
Það þýðir ekkert að dvelja lengur við þetta. Fyrsta mótinu lokið og nú er bara að halda áfram að æfa og stefna á HM í október.
Áfram Imma!!
21/06/2018
Klukkutími í að Imma berjist! ÍSLAND VS ÍTALÍA. Hægt að kaupa beina útsendingu af bardaganum á www.immaf.tv
20/06/2018
Imma Helga berst í 12 bardaga dagsins á morgun. Imma fer gegn ítölsku landsliðskonunni Ilaria Norica. Ilaria mun bókað vilja taka okkar konu niður, en Imma ætlar ekki að taka það til mála og ætlar sýna hvað í sér býr.
Keppnin hefst kl 8:00 á íslenskum tíma og munum við láta vita hvenær hennar bardagi verður á instagramsíðu Týs.
Ef Imma sigrar þennan bardaga mun hún komast í úrslit á EM.
20/06/2018
Imma Helga sigraði allar lotur bardagans og vann því 30-27 gegn Finnlandi. Imma útboxaði finsku stelpuna þannig vel sá á henni og vankaði hana nokkrum sinnum.
Í horninu hjá Immu voru Jón Viðar Arnþórsson og Kieran Davern.
Thanks for the help Kieran!
Imma mætir Ítaliu í undanúrslitum á morgun!
19/06/2018
ALLIR AÐ VAKNA SNEMMA!
Imma Helga berst á morgun í 8 manna úrslitum á Evrópumeistaramótinu í MMA sem haldið er af IMMAF - International Mixed Martial Arts Federation. Imma mun mæta landsliðskonu frá Finnlandi og verður þetta annar bardagi dagsins en mótið hefst kl 8:00 á íslenskum tíma!
Imma lofar hörku bardaga!
Yfir 150 keppendur eru á mótinu frá 24 löndum!
Hér fyrir neðan er linkur á beina útsendingu frá mótinu og hægt verður að fylgjast með gangi mála á Instagrami Týs
Imma Helga er eini einstaklingurinn sem mun keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramótinu í MMA í Rúmeníu í næstu viku.
Imma er vel þekkt í bardagaheiminum á Íslandi og er ósigrðu í hnefaleikum hér heima, enda fremsta hnefaleikakona Íslands fyrr og síðar. Hún unnið alla Íslandsmeitaratitlana sem hafa verið í boði fyrir hana frá árinu 2012. Núna hefur hún lagt boxhanskana á hilluna og ætlar að reyna fyrir sér í MMA. Hún ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og ætlar beint á Evrópumeistaramótið.
Með henni í för er Jón Viðar Arnþórsson, bróðir hennar. Jón Viðar hefur "cornerað" hátt í 100 MMA bardaga og var m.a. hornamaður þegar snillingarnir Bjarki Þór, Sunna Rannveig og Egill urðu Evrópumeistara 2015&2016.
Imma ætlar sér alla leið í þessari íþrótt og þið getið fylgst með ferðinni til Rúmeníu á Instagram
Myndataka: Hjalti Lúxus Ólafsson
Klipping: Jón Viðar Arnþórsson
05/06/2018
Fyrstu beltisgráðun Týs lokið! Þau Sóllilja Baltasarsdóttir og Tómas Helgi Tómasson fengu verðskuldað belti frá Arnari Frey Vigfússyni. Við óskum þeim kærlega til hamingju með frábæran árangur!
15/05/2018
Arnar Freyr bíður uppá guard alla vikuna!
Bættu við þig þekkingu hjá einum færasta glímuþjálfara landsins.
BJJ/Glíma er alla þriðjudaga og fimmtudaga kl 18:30 og laugardaga kl. 12.10.
ATH ! Bjóðum uppá frían prufutíma, allir velkomnir
| Monday | 09:00 - 18:00 |
| Tuesday | 09:00 - 18:00 |
| Wednesday | 09:00 - 18:00 |
| Thursday | 09:00 - 18:00 |
| Friday | 09:00 - 18:00 |
| Saturday | 09:00 - 16:00 |
| Sunday | 09:00 - 16:00 |