Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey

Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey

Share

Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey, er félag áhugafólks um siglingar. Reykjavík Yacht Club - Brokey

31/12/2025

Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Hlökkum til að taka á móti ykkur á næsta ári!

Með bestu siglingakveðjum,
Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey

01/11/2025

Gestum í Skútukaffi bauðst óvænt að kíkja um borð í TARA Polar Station, sem hyggur á brottför síðar í dag.

Við óskum þeim góðrar siglingar.

Vegna veðurs í vikunni náðu ekki allir að koma skútunum sínum í vetrarlægi. Við sýnum því að sjálfsögðu skilning - í viku.

20/08/2025

Þrír, tveir, einn... uhh Baldvin? Baldvin?

20/08/2025

Það var oft fjör við toppbaujuna um helgina

19/08/2025

Á hverju þriðjudagskvöldi eru æfingakeppnir á sundunum.

Photos from Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey's post 18/08/2025

Íslandsmótið í siglingum kjölbáta var haldið á sundunum um helgina. Það bar brátt að, en margar hendur unnu létt verk við að sjá til þess að þetta væri til fyrirmyndar.

Siglingasamband Íslands sá um skipulagið. Brokey lagði til aðstöðu, báta, baujur, pylsur og mannskap. Siglingafélagið Ýmir lagði til baujur og mannskap, Vogur lagði til mannskap og Siglingaklúbburinn Þytur lagði til búnað og aðstoð við skipulagningu.

Svona á að gera þetta.

En það var nú samt aðallega fólkið sem gerði þetta eins skemmtilegt og þetta var.

Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg, keppendum og keppnisstjórn.

Photos from Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey's post 01/07/2025

Það eru ennþá laus pláss á námskeiðin í sumar!
Tryggðu þér pláss á:
https://www.abler.io/shop/brokey
Við hlökkum til að sjá ykkur ⛵️🌞

Photos from Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey's post 01/07/2025

Fallegt start í þriðjudagskeppni kvöldsins.

22/06/2025

UPPFÆRT: Einn heppinn félagsmaður var fljótur að stökkva á þetta tilboð!! ⛵🌞

Hraðtilboð fyrir félagsmann! Það er óvænt eitt sæti laust á námskeiðið Hæfur háseti mánudags- og miðvikudagskvöldin 23. og 25. júní frá 18-21.

Fyrsta félagsmanni sem sendir póst á [email protected] um að hún/hann/þau vilji taka þátt fær að taka þátt ókeypis - gegn því að lofa að taka fullt af myndum fyrir okkur og segja öllum og ömmu þeirra frá því hvað þetta er skemmtilegt.

Ekki félagsmaður? Ekkert mál. Gerist bara félagsmaður og ferð svo frítt á námskeiðið!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Reykjavík
101