18/01/2026
Skemmtilegar myndir frá Bjarna Amby Lárussyni 📸
Hlekkur í fyrstu athugasemd 👇
Gamlárshlaup ÍR er fastur liður í lífi margra hlaupara og hlaupahópa. Gamlárshlaup ÍR verður haldið í 41.
sinn á Gamlársdag en hlaupið er meðal stærstu hlaupaviðburða sem haldnir eru hér á landi og er fastur liður í lífi margra hlaupara og hlaupahópa. Skrautlegir búningar setja tóninn fyrir hlaupið þar sem léttur andi svífur yfir vötnum. Hver og einn mætir á eigin forsendum hvort heldur fyrir félagsskapinn, gleðina, heilsubótina eða til þess ná settu hlaupamarkmiði fyrir lok árs, sigra vegalengdina eð
18/01/2026
Skemmtilegar myndir frá Bjarna Amby Lárussyni 📸
Hlekkur í fyrstu athugasemd 👇
01/01/2026
Myndir frá hlaupinu komnar inn á flickr síðu frjálsíþróttadeildar ÍR - sjá link í fyrsta kommenti.
Takk fyrir geggjaðan dag - gleðilegt ár og sjáumst í Víðavangshlaup ÍR
31/12/2025
Sigurvegarar í Gamlárshlaupi ÍR 2025 🎆
Karlar:
🥇Daníel Þór Ágústsson 33:24
🥈Jökull Bjarkarson 33:27
🥉 Stefán Pálsson 33:30
Konur:
🥇Andrea Kolbeinsdóttir 34:07
🥈Elísa Kristinsdóttir 34:58
🥉Halldóra Huld Ingvarsdóttir 35:58
Heildarúrslit má sjá hér:
https://timataka.net/gamlarshlaup2025/
31/12/2025
Allt að fara af stað hér í Hörpunni
30/12/2025
Við hlökkum til að sjá ykkur á morgun! Það stefnir í fínasta veður og frábæra stemningu 🎇
Enn eiga margir hlauparar eftir að sækja númerin. Við mælum því með að sækja þau tímanlega til að komast hjá löngum biðröðum rétt fyrir hlaup.
30/12/2025
Við hvetjum alla hlaupara til að sækja númerin í Sportvörur í dag milli kl 12-18. Hægt að gera góð kaup á hlaupavörum í leiðinni 🎉
29/12/2025
Hlaupum inn í nýja árið í Gamlárshlaupi ÍR 🎆
Skráning enn í fullum gangi - hlekkur í athugasemd að neðan 👇
Gamlárshlaup ÍR | Netskraning.is Tímatöku og brautarvörslu lýkur 90 mínútum eftir að hlaupið er ræst. Úrslit verða birt í rauntíma auk þess sem tímar verða sendir í sms-i til hlaupara. Úrslit fyrir verðlaunasæti eru staðfest við verðlaunaafhendingu en að öðru leyti telst birting úrslita á timataka.net se...
Góðan og fallegan daginn.
Á gamlársdag fer hið víðfræga Gamlárshlaup ÍR fram eins og undanfarna gamlársdaga. Hlaupið hefst við Hörpu kl.12:00 og lýkur tímatöku kl. 13:30. Gert er ráð fyrir á annað þúsund hlaupurum og verður heldur betur mikil stemming 😊
Í samráði við lögreglu verður Sæbraut lokuð í báðar áttir (báðar akreinar) frá Geirsgötu að Holtagörðum frá 10:30-13:30. Þetta er gert til að tryggja öryggi hlaupara og starfsfólks.
Rásmark er á syðri akrein Sæbrautar fyrir framan Hörpu.
Endamarkið er á planinu fyrir framan Hörpu. Hlaupið er eftir syðri akrein austur að Holtavegi. Við Holtaveg er tekinn snúningur á akreininni og sama akrein hlaupin áfram að gatnamótum Sæbrautar og Sægarða, en þar er skipt yfir á nyrðri akreinina í átt að Hörpu. Tekin er lykkja niður í Klettagarða og aftur upp á nyrðri akrein Sæbrautar áfram í mark við Hörpuna.
Brautarverðir staðsettir við Laugarnesið munu hleypa íbúum yfir Sæbraut þegar unnt er. Við biðlum til ykkar um að sýna þolinmæði þar til brautarverðir telja óhætt að hleypa bíl inn á hlaupabraut sem lokuð er fyrir bílaumferð og margir vegfarendur á götunni.
Vinsamlegast sýnið ítrustu aðgát og tillitssemi.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem af hlaupinu skapast. Jafnframt biðjum við alla vegfarendur um að sýna hlaupurum og starfsfólki hlaupsins tillitssemi og fara varlega.
Frekari upplýsingar veita hlaupstjóri Gamlárshlaupsins, Unnur Björnsdóttir í síma 660-3921 og ábyrgðarmaður hlaupabrautarinnar, Rúnar G. Valdimarsson í síma 842-3070.
Með fyrirfram þökkum fyrir tillitsemi og góða samvinnu.
Skipulagsnefnd Gamlárshlaups ÍR.
28/12/2025
Afhending hlaupanúmera verður í Sportvörum (Dalvegi 32A) dagana 29. og 30. des kl. 12-18 🎉
Með framvísun hlaupanúmers verður hægt að fá góð tilboð á hlaupavörum. Tilboð gilda einungis í verslun.
Við hvetjum alla hlaupara til að sækja hlaupanúmerin í Sportvörur til að minnka stressið á hlaupdag. Einnig verður hægt að sækja gögnin í Hörpu á hlaupdag kl 9-11.
Sportvörur
22/12/2025
Klárum árið með stæl í Gamlárshlaupi ÍR 🤝💥
Skráning í fullum gangi! Hlekkur á skráningu í athugasemd hér að neðan
Frjálsíþróttadeild ÍR
Styrktaraðilar hlaupsins eru:
Sportvörur
LINDEX Iceland
Nivea (Beiersdorf á Íslandi)