Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ

Share

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ, er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu og í erlendum samskiptum íþróttahreyfingarinnar.

Website: www.isi.is
Instagram: isiiceland

70 ár frá fyrsta kvennalandsleiknum - RÚV.is 19/06/2026

📣 70 ár frá fyrsta kvennalandsleiknum

🇮🇸 Í dag eru liðin 70 ár frá því íslenskt kvennalandslið lék sinn fyrsta landsleik þegar kvennalandslið Íslands í handknattleik mætti Noregi í Ósló 19. júní 1956. Leikurinn markaði upphaf landsliðssögu íslenskra kvenna í handknattleik og lauk með 10–7 sigri Noregs.

Af þessu tilefni komu saman fjórar af landsliðskonunum frá 1956, þær Gerða Jónsdóttir, Helga Emilsdóttir, Geirlaug Karlsdóttir og Sigríður Kjartansdóttir. Konurnar hafa haldið góðu sambandi í gegnum tíðina og reyna að hittast ár hvert 19. júní til að rifja upp minningar frá þessum merka kafla í íslenskri íþróttasögu.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, litu við hjá þeim ásamt Guðríði Guðjónsdóttur, formanni landsliðsnefndar kvenna hjá HSÍ, og færðu þeim þakklætisvott fyrir framlag þeirra til íslenskra íþrótta. Með í för var einnig RÚV sem tók skemmtilegt viðtal við konurnar þar sem þær rifja upp fyrstu landsleikina, ferðina til Noregs og vináttuna sem hefur staðið í sjö áratugi.

💙 Þær konur sem skipuðu fyrsta landslið Íslands árið 1956 voru meðal brautryðjenda íslenskra kvennaíþrótta og ruddu brautina fyrir komandi kynslóðir.

ÍSÍ þakkar þessum merkiskonum fyrir ómetanlegt framlag til íslenskra íþrótta og óskar þeim innilega til hamingju með þessi merku tímamót. ✨

🎥 Viðtalið má lesa hér :👇

70 ár frá fyrsta kvennalandsleiknum - RÚV.is Í dag eru liðin akkúrat 70 ár frá því íslenskt kvennalandslið lék fyrsta landsleikinn. Þá spilaði kvennalandslið Íslands í handbolta við Noreg á Norðurlandamótinu í Finnlandi, á sjálfan kvenréttindadaginn árið 1956.

19/06/2026

💜 Gleðilegan kvenréttindadag 19. júní 💜
Meðfylgjandi mynd er tekin í Kvennahlaupinu 1990 og andinn lifir áfram í samstöðu, krafti og trú á samfélag þar sem jöfn tækifæri eru raunveruleiki fyrir allar konur.

Í dag er ekki aðeins litið til þess sem hefur áunnist heldur einnig til þeirra verkefna sem enn eru fram undan. Kvenréttindadagurinn minnir á mikilvægi þess að halda áfram að ryðja úr vegi hindrunum, efla þátttöku og vinna að raunverulegu jafnrétti.

Hvert skref skiptir máli. ✊💜

Nýr samningur ÍSÍ og HÍ markar mikilvæg tímamót fyrir afreksíþróttafólk | isi.is 18/06/2026

🎓🤝ÍSÍ og Háskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem auðveldar íþróttafólki í afrekshópum ÍSÍ að samræma nám og afreksíþróttaiðkun.

Samningurinn er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi og styður við áherslur afreksstefnu ÍSÍ um að skapa íþróttafólki aðstæður til að samræma nám og afreksíþróttaiðkun.

Að uppfylltum skilyrðum samningsins getur íþróttafólk í afrekshópum ÍSÍ til dæmis átt kost á auknum sveigjanleika í námi vegna æfinga, æfingabúða, keppnisferða og þátttöku á alþjóðlegum stórmótum.

🔗 Lesið nánar hér👇

Nýr samningur ÍSÍ og HÍ markar mikilvæg tímamót fyrir afreksíþróttafólk | isi.is Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Háskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem auðveldar íþróttafólki í afrekshópum ÍSÍ að samræma nám og afreksíþróttaiðkun.

15/06/2026
USVS bætist í hóp Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ | isi.is 15/06/2026

USVS í hópi Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ 🎉

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) hefur hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ 👏
Viðurkenningin er veitt fyrir faglegt og skipulagt starf ásamt skýrri stefnumótun sem styrkir íþróttastarf í héraðinu 💪

Til hamingju USVS með þennan mikilvæga áfanga! 🌟

🔗 Lesa meira:

USVS bætist í hóp Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ | isi.is Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu Leikskálum í Vík fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. USVS er þrettánda íþróttahéraðið sem hlýtur þessa viðurkenningu.

Einstök upplifun í hjarta Ólympíu | isi.is 11/06/2026

✨ Einstök upplifun í hjarta Ólympíu.

Helga Þórðardóttir, lögfræðingur ÍSÍ, sótti nýverið námskeið á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í sögufrægu umhverfi Ólympíu í Grikklandi. Þar komu saman þátttakendur víðs vegar að úr heiminum til að ræða gildi íþróttahreyfingarinnar, heilindi í íþróttum og velferð íþróttafólks.

Ferðin var bæði fræðandi og eftirminnileg — og eins og Helga segir sjálf:
„Þetta var algjört ævintýri.“

Lesa meira hér: 👇

Einstök upplifun í hjarta Ólympíu | isi.is Helga Þórðardóttir, lögfræðingur ÍSÍ, sótti nýverið námskeið á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar (International Olympic Academy) sem haldið var í hinni sögufrægu Ólympíu í Grikklandi.

Photos from Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ's post 09/06/2026

🐴 Hestamannafélagið Fákur hefur bæst í hóp Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ og hlaut viðurkenningu þess efnis á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks í Víðidal um helgina. Viðurkenningin endurspeglar markvisst starf félagsins við að efla faglegt, öruggt og uppbyggilegt íþróttaumhverfi fyrir iðkendur á öllum aldri.

🔗 Nánar hér:
https://www.isi.is/um-isi/frettir/hestamannafelagid-fakur-fyrirmyndafelag-isi

Photos from Hjólað í vinnuna's post 09/06/2026

Ekki komust allir verðlaunahafar á verðlaunaafhendingu Hjólað í vinnuna 2026 í síðustu viku 🚴Því var farið í gær og verðlaunaplattarnir afhentir á vinnustöðum þeirra. Til hamingju með flottan árangur!

Verðlaunaafhending - Hjólað í vinnuna 2026 | isi.is 03/06/2026

🚴‍♀️ Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2026 fór fram í dag!

Í dag voru veitt verðlaun fyrir frammistöðu þátttakenda í átakinu Hjólað í vinnuna 2026 sem stóð yfir í maí en átakið hefur það að markmiði að hvetja landsmenn til að velja virkan og umhverfisvænan ferðamáta til og frá vinnu.

Viðburðurinn fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þar sem fulltrúar vinnustaða, liða og vinningshafa komu saman til að taka á móti verðlaunum en Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sá um afhendinguna 🎉

Verkefnið er mikilvægt framlag til bættrar lýðheilsu, aukinnar hreyfingar og sjálfbærra samgangna um allt land 🚴

🏆Nánar um úrslit og verðlaunahafa má lesa hér 👇

Verðlaunaafhending - Hjólað í vinnuna 2026 | isi.is Hjólað í vinnuna er lokið í tuttugasta og fjórða sinn í ár.

02/06/2026

🎉 Góð mæting var á Hótel Selfoss 31. maí síðastliðinn þar sem tæplega 250 manns fögnuðu 90 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss 👏

Við þetta tilefni afhentu Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ gullmerki ÍSÍ þremur einstaklingum í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi framlag til íslenskrar íþróttahreyfingar.

Í frétt á vef ÍSÍ er fjallað nánar um afmælið og þau sem hlutu heiðrunina:
🔗 https://www.isi.is/um-isi/frettir/god-maeting-i-90-ara-afmaeli-ungmennafelags-selfoss

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Engjavegur 6
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:30
Tuesday 08:30 - 16:30
Wednesday 08:30 - 16:30
Thursday 08:30 - 16:30
Friday 08:30 - 16:00