05/05/2026
Erindi mitt á vorráðstefnu fagfélaganna þann 29. apríl. "Hvort viltu vera fýlupúki eða gleðigjafi?" vakti athygli.
Ragnhildur er með diplóma í jákvæðri sálfræði og markþjálfi (PCC).
Hún er Certified Daring Way Facilitator, Certified Dare to Lead Facilitator, Certified Designing Your Life Coach og Certification in Five Behaviors of Cohesive Teams
05/05/2026
Erindi mitt á vorráðstefnu fagfélaganna þann 29. apríl. "Hvort viltu vera fýlupúki eða gleðigjafi?" vakti athygli.
16/04/2026
Á úrræðamessu Virk kynnti ég m.a. hannaðu lífið og bauð uppá kleinur - auðvitað heimalagaðar.
04/03/2026
Unnið með drauma... Eftirfylgni fyrir hóp sem hefur verið að hanna lífið undanfarnar vikur
07/01/2026
Hélt erindi í Dokkunni í morgun; bendi félögum hennar á að hægt er að hlusta á upptöku.
Er stolt að hafa verið fyrsti fyrirlesari nýs eiganda, Herdísar Pálu. Óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi og þakka Mörtu, fyrrum eiganda fyrir samfylgdina.
Nýtt ár, ný tækifæri - eða verður þetta sama gamla tuggan? Settir þú þér áramótaheit en ert þegar búin að brjóta þau? Þá ertu ekki ein(n) því rannsóknir sýna að við erum flest búin að gleyma þeim á áttunda degi. Ekki örvænta því góðu fréttirnar eru þær að það er aldrei of seint að hanna gott líf - en það er það sem ...
15/10/2025
Ertu að velta fyrir þér hvað þig langar til að gera næst? Er að fara af stað með hóp sem ætlar að hanna lífið og það eru örfá sæti laus. Hafðu samband ef því vilt vita meira.
Ummæli þáttttakenda:
- Námskeiðið hjálpaði mér að marka mér stefnu og framtíðarsýn
- Frábært námskeið, lifandi, gagnlegt og uppbyggilegt
- Besta og áhrifaríkasta námskeið sem ég hef sótt
- Frábært námskeið sem ég mæli hiklaust með fyrir hvern sem langar að finna sig aftur í lífi og starfi. Ragnhildur hefur sérstakt lag á því að hjálpa manni að hugsa út fyrir þægindarammann og virkja styrkleika.
11/09/2025
Við Lóa Lava vorum með hugrekkisstofu fyrir þátttakendur sem hafa verið á Dare to Lead hjá okkur. Eins og sést þá finnst okkur svo gaman að vinna saman
22/08/2025
Eftir gott sumarleyfi er gaman að byrja aftur að vinna. Var svo heppin að dvelja dagpart með kennurum við MA.
Í ljós kom að heimasíðan mín hætti að senda mér skilaboð þannig að ég bið ykkur afsökunar sem hafið sent mér skilaboð gegnum hana. Ég ætlaði svo sannarlega ekki að hunsa ykkur. Sem betur fer höfðu nokkrir samband símleiðis þegar lengja tók eftir svari þannig að villan kom í ljós.
Námskeið um árangursrík teymi Fyrsti formlegi starfsdagur kennara var 14. ágúst og hófu þeir daginn á námskeiði um Árangursrík teymi. Framundan eru töluverðar breytingar á starfsháttum nemenda og kennara og ýmis ný teymi kennara munu verða til. Námskeiðið var bæði gagnlegt og skemmtilegt og starfsfólk er or...
14/04/2025
Gefandi og gaman
Tíu leiðarvísar að farsælu lífi Tíu leiðarvísar að farsælu lífi Síðastliðið miðvikudagskvöld, 9. apríl, stóð Soroptimistaklúbbur Austurlands fyrir fyrirlestri í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Fyrirlesarinn var Ragnhildur Vigfúsdóttir og bar erindi hennar yfirskriftina „Tíu leiðarvísar að farsælu lífi....
22/03/2025
Kjarkur tl forystu (Dare to Lead) er öflug stjórnendafræðsla frá Dr Brené Brown. Var með 12 stjórnendur á 3ja daga vinnustofu - gagnlegt, erfitt, krefjandi, skemmtilegt... er meðal þess sem ég heyrði.
10/03/2025
Þakklát fyrir þetta samstarf við Lóu og Háskóla Íslands