27/08/2025
JÓGA Í MOSFELLSBÆ
Verið velkomin 🙌🏻
Jógatímar í Mosfellsbæ
Haustið 2025 Þá hefst jóga hjá okkur aftur eftir gott sumarfrí. Skráning er hafin fyrir fyrsta jógatímabilið sem mun hefjast mánudaginn 15. september og verður í þrjár vikur, til fimmtudagsins 2. október. Ef það hentar ekki að binda þig allt eða hálft jógatímabilið er hægt ...
11/02/2025
Fyrir rúmu ári síðan ákvað ég að hvíla meðferðarstörf og gerast málstjóri farsældar hjá Reykjavíkurborg.
Hvort sem þið búið í Reykjavík eða ekki hvet ég alla foreldra, og þá sem hafa áhuga á málefnum barna og fjölskyldna, til að nýta sér efni farsældarviku Reykjavíkurborgar til að kynna sér farsæld barna
🌿 Farsældarvika hófst í öllum hverfum Reykjavíkurborgar í dag. Dagskráin er í formi kynninga, vinnustofa og margvíslegrar fræðslu og er ætlunin að varpa ljósi á innleiðingu farsældarlaganna í Reykjavík.
🌿 Hver starfsstaður, til að mynda skólar og frístundamiðstöðvar, sjá um og útfæra sína viðburði, bæði fyrir starfsfólk og foreldra. Á miðvikudaginn klukkan 12.15 verður svo opinn fjarfundur, þar sem foreldrum og forsjáraðilum í Reykjavík gefst kostur á að spjalla og spyrja spurninga um farsæld.
🌿 Í frétt í athugasemd má lesa meira um farsældarvikuna. Þar má jafnframt finna hlekk á foreldrafundinn.
07/12/2023
Minni á allt það sem jógahópurinn minn býður upp á 🙏 Ýmislegt í jólapakkann, á heimilið, tækifærisgjafir eða bara fyrir þig og þína 🎄💝🧡
Sjá hér… Jógasamfélag í uppbyggingu
Instagram https://instagram.com/jogasamfelag_i_uppbyggingu?igshid=NGVhN2U2NjQ0Yg%3D%3D&utm_source=qr
11/10/2023
Yndislegi jógahópurinn minn er að byggja upp jógasamfélag í nágrenni höfuðborgarinnar.
Mæli með að smella á "like" á þessa síðu og fylgjast með þeirri þjónustu og vörum sem verða þar í boði - allur ágóði rennur til uppbyggingar samfélagsins
16/04/2023
Skráning á www.mosjoga.com
18/12/2022
Það er svo margt fallegt sem jógafjölskyldan mín er búin að útbúa fyrir Jólamarkaðinn í Heiðmörk.
Opið í dag kl 12-17 🙏
Jólamarkaður Heiðmörk
26/09/2022
Þar sem við höfum ekki náð lágmarksfjölda ætlum við að bjóða prufutímana gjaldfrjálsa og taka svo púlsinn á fólki um hvað hentar best í framhaldinu. Mögulega að geta skráð sig einu sinni í viku…styttra tímabil…bjóða vinaafslátt … o.s.frv.
Skráning og nánari upplýsingar á mosjoga.com
23/09/2022
Þá er komið að því að setja af stað jógatíma, í þetta sinn í Mosfellsbæ.
Skráning og nánari upplýsingar á mosjoga.com
Kolbrún Irma Hreiðarsdóttir