04/06/2026
🏔️ Manst þú eftir 10 og 11 ferðunum?
Þegar fyrsta Mt. Esja Ultra keppnin var haldin árið 2012 vissum við ekki að Esjan ætti eftir að verða eitt vinsælasta æfingasvæði hlaupara á Íslandi 15 árum síðar. Eina sem við vildum gera var að búa til eitthvað skemmtilegt, krefjandi og gefa fjallahlaupurum á Íslandi tækifæri á að safna nokkrum UTMB punktum.
Árin 2012 og 2013 fóru nokkrir grjótharðir hlauparar 10 ferðir upp og niður Esju. Árið 2014 urðu þær 11 út af smá veseni hjá ITRA en við þurftum einfaldlega að bæta við einni ferð svo hlaupið myndi ekki missa einn UTMB punkt. Árið 2015 kláraði svo fyrsta íslenska konan þessa áskorun í keppninni, Halldóra Gyða Proppé! 👏
Tíminn hefur liðið og Esjuhlaupið þróast með nýjum vegalengdum. Árið 2015 kom maraþonið í stað 5 ferða hlaupsins og varð fljótt vinsæll hluti af viðburðinum. Við vitum að mörg ykkar bíða spennt eftir endurkomu þess á næsta ári!
Eftir keppnina 2018 var ákveðið að einblína á nýju maraþonvegalengdina. Árið 2024 bættist hálfmaraþonið við í stað gömlu 2 ferðanna og hefur það náð að blómstra í stóru utanvegasenunni í dag.
Í dag erum við reglulega spurð um gömlu 10 og 11 ferða hlaupin. Fólk er greinilega farið að sakna þeirra. Stemningin í fjallinu og það að fylgjast með þessum fáu ofurhugum eyða heilum degi á Esjunni er stór hluti af sögu hlaupsins og eitthvað sem nýtt fólk í íþróttinni vill upplifa.
Þess vegna fannst okkur ekki annað koma til greina en að halda upp á 15 ára afmæli Mt. Esja Ultra með keppni sem er bæði ný en kunnugleg í senn.
Þann 13. júní ætlum við að endurvekja gamla 5, 10 og 11 ferða andann! Við höldum 15 klukkutíma keppni þar sem hver og einn setur sér sína eigin áskorun. Fimm ferðir. Tíu ferðir. Eða fleiri?
Veitt verða verðlaun fyrir þau sem ljúka fyrst 5 ferðum, þau sem ljúka fyrst 10 ferðum og þau sem fara flestar ferðir á 15 klukkutímum.
Saga Mt. Esja Ultra heldur áfram og hver veit nema einhver fari bara alla leið og taki 15 ferðir á 15 klukkustundum!... 😉🏔️
Að lokum þökkum við öllum okkar vinum sem hafa staðið vaktina með okkur þegar Esjuhátíðin fer fram, en án þeirra væri þetta ekki hægt. 66°Norður hefur staðið við bakið á okkur í áratug og Ölgerðin sér til þess að keppendur fái sitt víðfræga Esjuglas að góðu dagsverki loknu 🍻
02/06/2026
01/06/2026
18/05/2026
01/02/2026
26/06/2025
23/06/2025
23/06/2025
23/06/2025
23/06/2025