Markhóll

Markhóll

Share

Ég vil hjálpa þér að ná árangri.

20/12/2023

Mér þykir gott að hugsa fram í tímann, þegar aðventan byrjar og þegar hún er búin, þegar sumarfríið byrjar og þegar því lýkur. Í grunninn þykir mér gott að hafa plan. Til dæmis núna á þessum skemmtilega og hlýja aðventu tíma er ég spennt fyrir janúar því ég hlakka til að takast á við það sem ég ætla að fókusa á þá.
Það allra fyrsta sem að talaði til mín (fyrir utan það að læra að hlusta og heyra hvað aðrir höfðu að segja) í markþjálfa náminu var “Hvað viltu?”
Þessi tvö orð létu mig ekki í friði til að að byrja með pirraði þetta mig ægilega hvað rugl er þetta það er ekkert hægt að ákveða það!! Hvað vil ég?
Í stuttu máli þá gjörbreyttu þessi tvö orð lífi mínu. Ég er þekkt fyrir að vaða áfram takast á við það sem til mín hefur komið án þess að hika leysa vandamál og verkefni.
Það sem ég áttaði mig á var að ég hafði fram að þessu alls ekki verið við stjórn ég var alls ekki að gera það sem ég helst vildi, ég var að gera það sem ég hélt að aðrir vildu að ég gerði og ég var mjög góð í því.
Ég fór sem sagt að rannsaka þessi tvö orð - sjö árum seinna er ég komin áleiðis á þann stað sem ég vil vera á.
Ég komst að því að ég var einni ákvörðun frá því að breyta færast áfram og nær því sem ég vildi. Allt ferlið sem er enn í gangi snýst um að forgangsraða og velja til að byrja með tók þetta á ég upplifði samviskubit og að ég væri eigingjörn og sjálfselsk að velja og setja mikilvægið í fyrsta sætið - ég er komin mjög langt frá þessum tilfinningum í dag og sú tilfinning er sú besta sem ég hef upplifað.
Ég skil þess vegna svo vel þegar ég heyri sagt “Ég get ekkert verið að rugla í þessu þetta er bara ágætt svona það er orðið of seint að standa í þessu eða "Það er ekkert fengið með þessu það er ekkert víst að þetta verði betra”
Gott og vel það er allt í fínu lagi að hafa allt eins og það hefur verið ef að það gengur vel upp fyrir þig en… ef það er ekki þá get ég sagt með 100% vissu að það er hægt að gera breytingar þú getur farið þangað sem þú vilt, gert það sem þig hefur alltaf langað til að gera og upplifað innihaldsríkt og fullnægjandi líf.
Er það einfalt - ekki í byrjun en það verður einfaldara og eftir sjö ár eins og að drekka vatn sem sagt hluti af lífinu.
Ég óska öllum friðsældar gleði og ró í hjarta ❤️

24/09/2023

Erum við einhverjar útgáfur af okkur sjálfum?
Held ekki við erum það sem við erum og þar sem við erum svo ef það er eitthvað sem við gætum veitt athygli þá er það staðan hver er mín staða í dag.
Alla daga alltaf mætum við áskorunum við getum átt góðan dag, ekki svo góðan og svo dag sem við viljum gleyma sem fyrst þannig er það hjá öllum.
Það er ekkert að þér og þú ert svo sannarlega ekki ein, einn eða eitt í heiminum sem stendur frammi fyrir því að finnast margt glatað eða ekkert að gerast fátt sem gengur upp.
Þá aftur - staðan að tékka á stöðunni og spyrja sig raunverulega hvernig gengur er eiginlega það eina sem virkar að mínu mati.
Þá og einmitt þá færðu tækifæri til að meta hvað það er sem þú vilt gera, viltu viðhalda þeirri stöðu sem þú ert í halda áfram að gera það sama eða finnst þér vera kominn tími til að koma hreyfingu á stöðuna.
Til að byrja með er þetta er brekka það tekur á að spyrja sig beinna spurninga en góðu fréttirnar eru að með tímanum kemst þetta í vana - að staldra við hmmmm hvað er í gangi hér hvaðan kemur þessi óánægja og hvers vegna ætla ég að fara í gamla farið og reyna að snögg fixa það með því sem virkar í smá tíma en kemur mér svo aftur á verri stað.
Ég hef ótal ótal sinnum farið í gegnum svona vinnu með öðrum og með sjálfri mér en í grunninn er meira sem að við eigum sameiginlegt en ekki við erum ekkert svo sérstök (ha ha ha) við erum lík.
Ég mæti engum með forgjöfina að eitthvað sé að yfirleitt er bara ekkert að en kannski þarf að gefa sér tækifæri til að segja upphátt og setja í orð allt það sem hringsnýst í hausnum og lítur út fyrir að vera ein stór flækja það er yfirleitt fyrsta skrefið.
Algengt er að við mig sé sagt það er svo margt sem mig langar til að gera og hafa öðruvísi en ég veit ekki hvar ég á að byrja.
Fyrst þurfum við að vita hvað við viljum.
Njótið sunnudagsins og vikunnar framundan :-)

14/09/2022

Áhyggjur kveikja á ferli sem litast af ótta og í ótta gerist ekkert þar ríkir stöðnun. Það er þess vegna gott að geta sagt að áhyggjur eru ekki til þær eru ekki raunverulegar - áhyggjur verða til með hugsunum um allt það sem mögulega gæti gerst.
Við getum bara haft áhrif á og breytt því sem er í okkar valdi að breyta - okkur sjálfum.
Sólin kemur upp og sólin sest það er í rauninni það eina sem við vitum með vissu. Allt þar á milli gefur okkur tækifæri til að hafa áhrif og við getum byrjað með því að ákveða með hvaða viðhorfi við mætum lífinu.
Á þessum nótum þykir mér gott að sjá og ákveða mín næstu skref að taka ákvörðun um breytingu og sleppa því að ofhugsa öll möguleg skref eða sjá fyrir allt það sem mögulega gæti farið úrskeiðis. Það er komið að því að ég breyti þeim vettvangi sem hefur verið minn sl fimm ár. Þvílíkur tími tækifæra og uppgötvana lærdóms og þroska. Ég er þakklátari en ég get sett í orð fyrir þá gæfu að hafa sigrast á ótta og áhyggjum og látið vaða í allskonar aðstæður án þess að vera með hvert skref kortlagt í tætlur.
Utanvega gangan sem skilaði góðu samstarfi og stórkostlegri vináttu, þakklátum viðskiptavinum sem fundu að þeir höfðu allan tímann svörin innra með sér en höfðu ekki treyst ferlinu, stoltir einstaklingar sem unnu sig út úr óöryggi yfir í að standa upp og tala svo fallega fyrir framan hóp af áheyrendum og svo margt margt fleira.
Fyrir mig persónulega er það mín allra mesta gæfa að trúa því að innra með okkur öllum leynist styrkur og tækifæri til að láta það gerast sem við þráum mest af öllu.

Á þessum nótum mun ég halda áfram - og þar sem sumarið er ekki alveg búið hjá mér þá ætla ég að njóta þess í nokkra daga í viðbót.

Photos from Markhóll's post 31/05/2022

Heldur betur hafa síðustu dagar verið bjartir og fallegir.
Það er kominn sá tími hjá mér að njóta sumarsins og þess sem er framundan í bland við öðruvísi verkefni.
Fjölbreytni er algjört lykilorð fyrir mig 🙌
Ég nota þennan tíma líka til þess að undirbúa haustið.
Ég er að velta fyrir mér hvort viðburður i formi vinnustofu /samveru á Hóli í Eilífsdal gæti gengið. Ég var með vinnustofur þar í mai 2018 en núna finnst mér eins og það gæti verið þörf fyrir góða næringu svona fyrir sálina og fyrir okkur sjálf til að byggja á.
Það hefur svo margt breyst og þróast síðan 2018.
Ég ætla að spjalla við innsæið og sjá hvort það sé grundvöllur 😁

Myndir eru frá maí 2022 Hóll í Eilífsdal.

Hafið það gott í sumar og njótið ykkar 💛

27/04/2022

Er tími það verðmætasta sem við getum gefið okkur sjálfum og öðrum?
Ef tíminn er verðmætur skiptir þá ekki máli hvað við gerum við hann? Viljum við ákveða í hvað tíminn okkar fer? Kannski má hugsa tímann eins og fjárfestingu er það góð fjárfesting að setja tímann sinn í það sem að skiptir okkur ekki máli, hverju á tíminn sem fjárfesting að skila?
Ég hef verið að meta og máta mig við nýjar aðstæður. Þar sem ég hef síðustu fimm ár fjárfest í mér sjálfri og tímanum mínum í þeim verkefnum sem ég hef unnið að með Markhóli þá met ég tímann mikils. Þess vegna er það ekki ákvörðun eins og hendi sé veifað að breyta þeim áherslum og spurningin sem ég stend uppi með er vil ég það?
Margir kostir gætu fylgt þessum breytingum heilmikil tækifæri og möguleikar sem ég gæti unnið með og nýtt það sem ég kann og lært heilan helling en þetta kostar mig tíma og ég er að átta mig á því að tíminn minn er stór faktor í þessari ákvörðun.

Eitt er þó á hreinu að það er aldrei of seint að byrja á að gera það sem þig hefur alltaf langað til að gera ekki nota tímann sem afsökun notaðu hann sem ástæðu.

06/04/2022

Við erum einni ákvörðun frá því að koma hreyfingu á hlutina.
Fyrsta skrefið er eitt af mörgum en fyrsta skrefið þarf að taka svo eitthvað breytist.

Hvað er það fyrsta sem þú hugsar eða kemur upp í hugann þegar þig langar að takast á við að breyta einhverju hjá þér?

31/03/2022

Síðustu dagar og vikur hafa farið í að hitta marga suma sem ég hef ekki hitt í ár eða meira.
Það er tilhlökkun í loftinu sem blandast saman við að það er líka vor í lofti og allt að lifna við.

Fyrir marga er það áskorun að fara aftur út á meðal fólks.
Allt sem við venjum okkur á verður að vana.
Ég heyri af því núna að eitt af því sem þarf að vinda ofan af eru þessar venjur sem margir kannast við og komu með takmörkunum og breytingum á daglegu lífi okkar.
Að koma sér af stað aftur er átak og fullkomlega eðlilegt að finnast það ekki einfalt.
Það eru nokkrar leiðir í boði.

- Fyrst er að átta sig á því að vilja breyta og gera eitthvað í málunum.
- Hvað er það fyrsta sem þarf að gera?
- Hvað myndi hjálpa þér mest í þessari stöðu?
Allra mikilvægast er að finna hvað það er sem þú gætir gert nú þegar hvað sérðu fram á að geta gert og ráðið við það?

Ég get alveg sagt þér að það sem kemur á eftir verður einfaldara og auðveldara stærsta skrefið er að taka ákvörðun um að vilja breytingu á stöðu.

Ég er alltaf til í að vinna með fólki sem vill taka ábyrgð og er tilbúið til að mæta því sem er - ég hef hitt nokkra undanfarið sem hafa verið í þeirri stöðu og með nokkrum samtölum hafa færst ótúlega langt og nær því sem þeir vilja hafa.

Myndin með færslunni er klassík en segir það sem er - það er engin hreyfing í kyrrstöðu þar af leiðandi gerist ekkert og enginn færist áfram oft talað um sem þægindaramma í merkingunni að hér er gott að vera því þú þarft ekki að gera neitt eða breyta neinu, svo má deila um hvort það sé þægilegt 🙏

Þegar þú tekur ákvörðun að vilja eitthvað meira og betra fyrir þig og færir þig út fyrir rammann sem þú þekkir orðið svo vel þá gerist eitthvað sérstakt en ákvörðunin er þín og bara þú getur tekið hana.

08/03/2022

Það skiptir mig miklu máli að geta stutt við og gefið áfram það er minn tilgangur.
Ég tók saman í pistlar og tíðindi nokkur orð um framtíðarsýn Markhóls.

https://markholl.is/2022/03/5047/

08/03/2022

Hvernig er það að ganga inn í styrkinn sinn? Ert þú upptekin/n við að fókusa á það sem þú getur ekki eða gerir ekki vel.
Enginn getur gert allt 100% en allir hafa eitthvað sem þeir gera sérstaklega vel. Staðreyndin er sú að margir vita ekki í hverju þeir eru góðir.
Tækifærin felast í því að sjá og finna í hverju við erum góð og gera svo allra mest af því.
Önnur staðreynd það má gera það sem við höfum gaman að og það er hægt að vinna við það sem gefur þér mesta ánægju og gleði. Það sem þarf að gera er að finna út hvað það er.

Þú hefur örugglega heyrt frasann já en það er óraunhæft það þarf að gera fleira en gott þykir það þarf að búa til öryggi og vissu fyrir framtíðina taka ábyrgð og ekki vera kærulaus. Sammála því það koma tímar þar sem þarf að gera eitthvað sem manni þykir ekki skemmtilegt en það er undantekning ekki regla ef þú ákveður og tekur ábyrgð á þér og finnur út úr því hvað það er sem býr til ánægju og gleði þín megin er þá ekki líklegra að þú náir árangri og upplifir góða framtíð ef þú vinnur að því að gera það sem gerir allra mest fyrir þig og í leiðinni aðra sem þú kemur til með að hafa áhrif á?

Af því að við viljum líka vera praktísk og raunsæ þá er gott að taka það fram að þeir sem nýta styrkleika sína í starfi eru s*x sinnum líklegri til að vera ánægðir í starfi og hægt er að sýna fram á áhrif starfsánægju á afkomu fyrirtækja. Teymi fyrirtækja sem fókusa á styrkleika skila 12,5% meiri framleiðni*
*Rannsókn Gallup 2018.

04/03/2022

Með sjálfsþekkingu búum við til möguleikann á að vita hvað við viljum og hvað viljum hafa í okkar lífi. Með jákvæðri sjálfshvatningu búum við til góðan grunn til að þekkja eigin styrk og treysta því sem er. Með trausti og trú á eigin getu búum við til öryggi sem hjálpar okkur í að takast á við breytingar - þær sem koma til okkar óumbeðnar og þær breytingar sem við ákveðum að séu nauðsynlegar fyrir okkur.

Ég bý til vettvanginn fyrir þess háttar vinnu hvort sem það er einkasamtal, hópþjálfun eða vinnustofur. Í engum tilfellum snýst þessi vinna um mig mikilvægast fyrir alla þjálfara er að hengja eigið ego á snagann og mæta þeim sem eru mættir. Ekki ólíkt starfi þjóns sem að kemur á réttum tíma til að fylla í glösin og þarf ekki að spyrja í tíma og ótíma hvort allt sé í lagi. Þetta heitir innsæi og að þekkja sinn tíma hvenær er mikilvægt að stíga inn og hvenær er best að leyfa hlutunum að flæða þannig komumst við nær því að vita hvað þarf að gera og hvað við viljum gera sem er kjarni málsins.

Góða helgi 🧡

01/03/2022

Að gera breytingar felur ekki í sér að umturna og snúa á hvolf. Breytingar eru ekki gerðar fyrir breytinguna heldur til að eitthvað verði betra og henti okkur betur. Litlar breytingar áherslumunur getur miklu breytt um margt í lífi fólks.

Dæmi: Sjálfstætt starfandi aðili til 20 ára langar að koma betra skipulagi á vinnuna með því markmiði að eiga meiri tíma fyrir sig sjálfan og fjölskylduna. Þetta með að vera ekki alltaf að vinna og að vinnan hafi alltaf forgang.

Þarna á bakvið var áralöng pæling hvernig hægt væri að breyta þessu en lítill árangur hafði náðst eitthvað breyttist en svo fór allt í sama farið með tilheyrandi vonbrigðum og uppgjöf og hugsuninni hvort það væri yfirhöfuð hægt að hafa þetta öðruvísi.

Við hittumst ég og þessi aðili og byrjuðum að skoða það sem um ræðir, hvers vegna er mikilvægt að breyta þessu vinnu mynstri hvað hefurðu gert hingað til hvað hefur virkað og hvað ekki. Frá febrúar og út maí hittumst við til að byrja með einu sinni í viku svo á hálfs mánaðar fresti og svo einu sinni í mánuði. Á þessum tíma unnum við markvisst bæði með verkefni og í samtali tengdu því hvernig hægt er að breyta og koma á skilvirku skipulagi sem viðkomandi var tilbúinn að fara eftir.
Hver tími var ekki alltaf klukkutími, stundum hálftími og það kom fyrir að við tókum símtal svona til að skerpa á . Við tókum pásu yfir sumarið og hittumst aftur í lok ágúst.

Í dag vinnur þessi aðili eftir skipulaginu sem við fundum út saman en í raun fann hann út bestu mögulegu leiðina fyrir sig það sem hann var til í að gera til að fá meiri tíma og meiri gæði. Það er allt til staðar en stundum vantar þessa speglun og nálgun að fá að segja frá og kjarna verkefnið svo það sé ekki út um allt og óyfirstíganlegt. Það sem kom þessum aðila á óvart í okkar vinnu var hversu mikið hann hafði fram að færa og hvað hann vissi mikið um það sem hann vildi hafa. Í upphafi hafði hann ekki mikla trú á að hann gæti lagt eitthvað til málanna.

Þannig þarf ekki að breyta öllu til að ná fram meiri gæðum meiri skilvirkni og ánægju heldur breyta því sem stendur í veginum og gera það sem að virkar fyrir þig.

Þetta dæmi sýnir að:

✅ Þetta þarf ekki að vera flókið.
✅ Þú þarft ekki að vera með þetta.
✅ Þú þarft ekki að hafa öll svörin.
✅ Þetta þarf ekki að taka langan tíma og..
✅ Þú þarft ekki að gera neitt sem þú vilt ekki gera.

Ef að þig langar að breyta einhverju hjá þér svo fyrirkomulagið henti þér betur þá get ég unnið með þér að þeirri breytingu á þínum forsendum.

Einfalt er lykilorðið.
https://markholl.is/

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Skipholt 11-13
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00