Tbr Tennis-og Badmintonfélag Reykjavíkur

Tbr Tennis-og Badmintonfélag Reykjavíkur

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Tbr Tennis-og Badmintonfélag Reykjavíkur, Stadium, arena & sports venue, Gnoðarvogur 1, Reykjavík.

01/06/2026

Kæru félagar. Það verður opið í TBR næstu helgi, 6. og 7. júní, frá kl.9-14. Síðan verður lokað um helgar í sumar.

Það er mikið laust hjá okkur yfir daginn næstu tvær vikur. Sumarskóli TBR byrjar síðan 15. júní og þá er erfitt að fá tíma á daginn.

Endilega skoðið lausa velli næstu tvær vikur og skellið ykkur í badminton, við tökum vel á móti ykkur.

Bókanir fara fram á Noona: https://noona.is/tbr

Photos from Tbr Tennis-og Badmintonfélag Reykjavíkur's post 28/05/2026

Sjálfstraust og framkoma hjá keppnishópum TBR.

Í kvöld fór fram fræðsla hjá keppnishópum TBR þar sem yngri og eldri hóparnir komu saman.

Anna Steinsen hjá KVAN hélt fyrirlestur fyrir hópinn en Anna er þekkt fyrir öfluga og skemmtilega fyrirlestra fyrir ungt fólk og íþróttafélög.

Við í TBR lítum á svona fræðslu sem mikilvægan hluta af því að vera í keppnishópi félagsins. Farið var yfir sjálfstraust, framkomu, samskipti og hugarfar bæði í íþróttum og daglegu lífi. Einnig var rætt um hvernig hægt er að hækka eigið orkustig, keyra sig í gang með ákveðinni rútínu og mikilvægi þess hvernig við tölum við okkur sjálf.

Einnig var farið yfir mismunandi persónuleika fólks, stemmningu innan hóps og mikilvægi þess að hrósa og styðja hvert annað. Farið var í skemmtilegan leik þar sem mikið var hlegið og góð stemning myndaðist hjá hópnum.

Góð mæting var hjá leikmönnum TBR og þetta var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt kvöld.

Við þökkum Önnu kærlega fyrir komuna og frábæran fyrirlestur.

28/05/2026

BADÍS ÆFINGABÚÐIR 2026

BH, ÍA og TBR standa fyrir spennandi badmintonæfingabúðum á Akranesi fyrir keppnisiðkendur.
✔️ Hágæða badmintonþjálfun
✔️ Fjölbreyttar æfingar og hreyfing
✔️ Keppnismiðað umhverfi
✔️ Félagslegir viðburðir og skemmtileg stemning
✔️ Sund og kvölddagskrá
✔️ Gisting og alvöru æfingabúðaupplifun
✔️ Styrkjum félagstengsl og kynnumst iðkendum úr öðrum félögum

Búðirnar eru ætlaðar iðkendum sem æfa og keppa reglulega í badminton.

Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu, Akranesi.

17.–19. ágúst
Fyrir iðkendur fædda 2015–2012
Skráning fer fram hér fyrir 17.-19. ágúst:
https://www.abler.io/shop/bh/badminton/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg3MTQ=?

11.–13. september
Fyrir iðkendur fædda 2011 og eldri
Skráning fer fram hér fyrir 11.-13. september:
https://www.abler.io/shop/bh/badminton/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg3MzM=?

Takmarkaður fjöldi er í æfingabúðirnar. Tryggðu þitt pláss.

28/05/2026

Frábær og uppbyggilegur fundur fór fram í TBR í gær þar sem fulltrúar frá Norðurmiðstöð og Suðurmiðstöð Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar komu í heimsókn til að ræða málefni iðkenda af erlendum uppruna og stöðu þeirra innan félagsins.

Ragna og Árni Þór fóru yfir stöðuna innan TBR og það mikilvæga starf sem unnið er í barna- og unglingastarfi félagsins. Í dag eru yfir 50 iðkendur af erlendum uppruna þátttakendur í barna- og unglingastarfi félagsins og fjölbreytileikinn er orðinn stór og mikilvægur hluti af samfélagi TBR.

Á fundinum var meðal annars rætt hvernig við getum í sameiningu nálgast iðkendur og foreldra af erlendum uppruna á enn betri hátt og virkjað þau til þátttöku í starfi með börnum sínum innan íþróttahreyfingarinnar. Mikilvægt er að fjölskyldur upplifi sig velkomnar, fái góðar upplýsingar og eigi auðvelt með að taka þátt í samfélaginu í kringum félagið.

Einnig var rætt um hvernig hægt sé að styrkja tengslamyndun, bæta upplýsingaflæði og tryggja að allir upplifi sig örugga og velkomna í starfinu. Íþrótta- og tómstundastarf gegnir mikilvægu hlutverki í félagslegri þátttöku, vellíðan og aðlögun barna og ungmenna og því skiptir miklu máli að halda áfram að þróa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að blómstra.

Við í TBR erum stolt af þeirri fjölbreytni sem einkennir félagið okkar og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við samfélagið í kringum okkur.

Hér má sjá bæklingana Vertu með! á nokkrum tungumálum: https://issuu.com/ithrotta-ogolympiusambandislands/stacks/c66d92fe7a914d769fae561ae0f86231

Photos from Tbr Tennis-og Badmintonfélag Reykjavíkur's post 27/05/2026

Frábær heimsókn á æfingu hjá eldri keppnishópi TBR í gær.

Laufey Sigurðardóttir yfirdómari mætti á æfingu hjá eldri keppnishópi TBR og bauð fram sína hjálp við að fara yfir uppgjafir leikmanna. Slík vinna er afar mikilvæg fyrir leikmenn á öllum stigum, enda skiptir miklu máli að þekkja reglurnar vel og tryggja lögmæti uppgjafa í keppni.

Það er dýrmætt fyrir okkar leikmenn og þjálfara að fá leiðsögn frá sérfræðingi með mikla reynslu af dómarastörfum í badminton. Laufey gaf leikmönnum gagnlegar ábendingar og hjálpaði þeim að skerpa á smáatriðum sem geta skipt sköpum inni á vellinum.

Við í TBR erum afar þakklát fyrir heimsóknina og framlag Laufeyjar til starfsins hjá félaginu. Samstarf og fræðsla sem þessi hjálpar okkur að efla bæði leikmenn og umgjörð íþróttarinnar og verður þetta án efa fastur liður í starfinu á næstu árum.

27/05/2026

Hæ vinir!
Minnum á aðalfund í kvöld :)
Hefst kl 20:00
🏸💙

23/05/2026

Við viljum minna á að lokað verður sunnudag og mánudag vegna hvítasunnu.
Opnum aftur á þriðjudag samkvæmt hefðbundnum opnunartíma.
🏸💙

22/05/2026

Keppnishópur TBR nýtti blíðuna í gær og brá aðeins út af vananum ☀️🏃‍♂️🏃‍♀️

Eftir heilt tímabil inni í sal var heldur betur kominn tími á að skella sér út í Laugardalinn og taka sameiginlegt hlaup í góða veðrinu. Það er mikilvægt að breyta stundum til í æfingaáætluninni, njóta útiverunnar og hafa gaman saman.

Nú fer tímabilinu senn að ljúka og sumaræfingatímabilið tekur við hjá keppnishópnum. Þá færist fókusinn yfir á uppbyggingu fyrir næsta tímabil með hlaupum, hjólreiðum, lyftingum, styrktaræfingum og góðri grunnvinnu.

Við hlökkum til sumarsins og alls þess sem framundan er! 🔥

13/05/2026

Uppstigningardagur
Það er rauður dagur á morgun og því lokað í TBR.
💙🙏

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Gnoðarvogur 1
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:00 - 23:30
Tuesday 08:00 - 23:30
Wednesday 08:00 - 23:30
Thursday 08:00 - 23:30
Friday 08:00 - 22:30
Saturday 09:00 - 03:00
Sunday 09:00 - 03:00