Bjarnarbúðin

Bjarnarbúðin

Share

Í Bjarnarbúðinni getur þú keypt allskonar íshokkíbúnað. Við erum alltaf með heitt á könnunni og eitthvað kruðerí með.

15/05/2026

Síðasti opnunardagur Bjarnarbúðarinnar á þessu tímabili er þriðjudaginn 19.5.
Hvetjum þá sem að skulda að koma og gera upp en hina hvetjum við til þess að koma og gera góð kaup fyrir sumarið 🌞🏒

05/05/2026

Nú fer að líða að lokum vor annar hjá okkur. Við hvetjum alla þá sem skulda hjá okkur til þess að koma og gera upp💸💳

Svo erum við með kylfur, pekki og bolta til þess að æfa sig með í sumar. 🏒🌞

Hlökkum til að sjá ykkur

30/04/2026

Bjarnarbuðin verður þvi miður lokuð í dag. Auka opnun í staðinn á sunnudaginn milli 10 og 12. Sjáumst hress🏒❤️

18/04/2026

Við erum með of mikið af hægriboga kylfum eftir hjá okkur frá fyrra ári. Hægt að gera mjög góð kaup á þeim 😉🏒

Svooo erum við með örfáa hjálma sem langar í ný heimili vegna aldurs á 12.000.
Ccm tacks 210 stærð L og Bauer Re akt 65- stærð M

Hlökkum til að sjá ykkur ☕️🏒

31/03/2026

Við erum að rýma aðeins til hjá okkur.
Erum með nokkrar stærðir af bauer XLS skautum á aðeins 10.000kr
Eigum stærðir yth 11, 4.0, 5.0, 9.0, 10.0
Hægt er að kikja a okkur þriðjudaga og fimmtudaga 17:30-19:00. Eða senda okkur pm🏒

10/03/2026

Sokkateip...... sjóð Heitt úr verksmiðjunni 😉

22/02/2026

Vorum að fá sjóðheita sendingu af teipi. Allskonar litir 🌈 nýjast er gult og bleikt sokkateip.
Hlökkum til að sjá ykkur 🏒

09/02/2026

Við ætlum að hafa lokað í Bjarnarbúðinni á morgun og skella okkur í Laugardalinn. Hverjum alla til þess að gera slíkt hið sama eða styrkja þetta góða málefni.🏒❤️

Fyrir Patta!

SR og Fjölnir hafa tekið höndum saman til að minnast Patreks sem lést í hræðilegu bílslysi í síðustu viku en Patti æfði og keppti lengi með Fjölni áður en hann gekk til liðs við SR.

Fyrirhugaður leikur karlaliða SR og Fjölnis í Egilshöll næsta þriðudag verður nú spilaður á heimavelli Patta í Laugardalnum kl. 19.45. Reykjavíkurliðin tvö hafa ákveðið að allur ágóði af miðasölu þessa leiks renni óskiptur til fjölskyldu hans, svo hún þurfi, í sinni ólýsanlegu sorg, að hafa minni áhyggjur af kostnaði vegna andláts sonar síns.

Foreldrafélag SR ætlar að leggja málefninu lið og gefur allan ágóða af veitingasölu á leiknum. Einnig verður glæsilegur kökubasar á leiknum þar sem hægt verður að kaupa bakkelsi til styrktar fjölskyldunni.

Við bendum svo á styrktarreikning þeirra sem er opinn fyrir frjálsum framlögum. Margt smátt gerir eitt stórt.
0511-14-077086, kt. 150886-3419

Við hvetjum allt íshokkífólk og aðra sem vilja sýna hug sinn í verki, minnast Patreks og styrkja fjölskylduna í gegnum erfiða tíma að mæta í Skautahöllina í Laugardal næsta þriðjudag kl. 19.45.

1500 kr. aðgangseyrir - frítt fyrir 15 ára og yngri.

Fyllum höllina - fyrir Patta!

19/12/2025

Við stöllur í Bjarnarbúðinni óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju hokkíári 🎄🎉

Hlökkum til að sja ykkur hress og kát á nýju ári. ☕️🏒

18/12/2025

Síðasti opnunardagur Bjarnarbúðarinnar á þessu ári er í dag frá 17:30 -19:00. 🎄🎅
Hlökkum til að sja ykkur 🏒🎉☕️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Fossaleyni 1
Reykjavík
112

Opening Hours

Tuesday 17:30 - 19:00
Thursday 17:30 - 19:30