getur einhver lánað mér hefil? Ein hurðin á safninu er föst, bólgin af úrhellisrigningunni fyrir mánuði. Ég virðist vera búin að týna mínum hefil og get ekki minnkað hurðina án smá aðstoðar :)
Skakkasafn
Taktu bók - gefðu bók! Velkomin á litla skiptibókasafnið á Sogavegi 109. Opið allan sólarhr Safnið er byggt samkvæmt hugmyndafræði Little Free Library. Njótið vel!
Skakkasafn er lítið skiptibókasafn sem er staðsett við Sogaveg 109, 108 Reykjavík. Safnið er byggt úr endurnýttum við, pallettum og plasti sem hefði annars verið fleygt í burt. Allir sem eiga leið hjá Sogaveginum geta kíkt við í þessum litla bókakofa og tekið sér bók til að lesa. Og þegar tækifæri gefst, þá geta gestir deilt eftirlætisbókum sínum með nágrönnum sínum!
01/06/2025
Flottar bækur komnar í Skakkasafn, bæði fræðibækur og reifarar!
Rauða málningin á hurðinni er smá klístruð en samt er óhætt að opna og grípa sér bók.
27/05/2025
Frá hugmynd
að holu
til húss
Skakkasafn #3 er 90% tilbúið! Eilítil málningarvinna eftir og skreytingar og þá er hætt í bili... eða þar til kofinn fýkur næst í stormi.
Nýja Skakkasafn er rúmgott og státar af barnabókadeild og bættri aðkomu og stendur á horni Borgargerðis og Sogavegs.
Nokkrar bækur eru komnar í húsið, orðabækur, sígildar barnabækur, fræðibækur og bók um prjónaskap.
19/05/2025
Nýtt Skakkasafn er í bígerð! Smíðar standa yfir, gömul kommóða fær nýtt hlutverk.
Nýja Skakkasafn verður á horni Sogavegs og Borgargerðis og verður með barnadeild.
Smið bráðvantar útimálningu, límtré plötu (55cm x 45cm) og sílikonþétti! Er einhver sem lumar á svoleiðis?? Ef svo er endilega hafið samband í einkaskilaboðum.
13/02/2022
Skakkasafn er lokað um ófyrirsjáanlega framtíð 😢
Kemur í ljós að það var eitt hús á Íslandi sem hrundi í óveðrinu mikla síðustu helgi, og það var bókasafnið litla í 108 Reykjavík.
Þetta skemmtilega hús, byggt úr gömlu náttborði og afgangspanelum úr húsaviðgerðum í hverfinu, liggur nú á jörðinni, gaddfreðið og pikkfast. Umsjónarmenn munu fjarlægja það þegar hlánar og byggja vonandi nýtt á vormánuðum.
Endilega, ef þið eruð handlagin og viljið taka þátt í endurreisninni, verið í bandi 💪 💪🏿 💪🏽
10/01/2022
Æsispennandi furðusögur í Skakkasafni. A Discovery of Witches eftir Deborah Harkness, eldheit vampírurómansa, Saga þernunnar eftir Margaret Atwood, femínísk furðusagnaklassík, og Nornasveimur eftir Emil Hjörvar Petersen, æsispennandi íslenskur furðusagnaþriller.
Fyrir ykkur sem eruð í aðeins hástemmdari fíling er einnig slæðingur af sígildum heimsbókmenntaverkum, eftir Knut Hamsun, Guenter Grass og Graham Greene. Einnig alfræðiorðabók golfsins (greinilega ekki margir golfarar í 108, þar sem bókin hefur verið í Skakkasafni síðan síðasta sumar!) og Stormurinn, reynslusaga ráðherra eftir Björgvin G. Sigurðsson, fyrir ykkur sem hafa þor til að rifja upp hrundagana.
Gleðilegt nýtt ár, kæru bókaormar ♥ ♥ ♥
12/07/2021
Eitthvað fyrir öll á Skakkasafni í dag! Endilega kippið með ykkur bók í sumarfríið því safnið troðfullt og nauðsynlegt að létta á því :p
Golfarar geta fræðst allt um skoska leikinn í Alfræðiorðabókinni um golf, skvísubókaunnendur geta nælt sér í glænýja skáldsögu Auðar Jóns og Birnu Önnu Björns 107 Reykjavík, og fólk sem nennir ekki skáldsögum geta lesið um Dionne fimmburanna sem fæddust 1934 og höfð að féþúfu með því að hafa þau til sýnis ferðamönnum. Og svona fyrir fólk með dekkri áhugasvið, er þarna aftast falin sjálfsævisaga konu sem ólst upp á heimili raðmorðingjanna Fred og Rose West.
07/03/2021
Sól og blíða í dag. Fullkominn dagur til að fara í göngutúr og heimsækja Skakkasafn.
Rosaleg sjálfsævisaga bíður nýs eiganda, endurminningar Natösju Kampusch, stúlku sem var rænt í Austurríki og haldið fanginni í áratug í kjallara áður en hún náði að flýja. Í bókinni segir hún frá tveimur prísundum, þeirri í kjallaranum og einnig svo prísundinni sem fjölmiðlaumfjöllun og ofsóknir sköpuðu henni í kjölfarið.
07/02/2021
Loksins loksins! Skakkasafn er komið með nýja rúðu! Og hurðin er ekki lengur eins skökk 👷♀️💪
Gómsætar bækur bíða nýrra eigenda! Spennusögur eftir Ian Fleming, Lee Child, Alistair Maclean og David Baldacci; vísindaskáldsaga eftir Peter E Hamilton; sæberpönk saga eftir Pip Ballantine og Tee Morris; nokkrar eldrauðar ástarsögur frá Ásútgáfunni; bækur um fólk í hers höndum eins og Bóksalinn í Kabúl eftir Asne Seierstad og Þótt þúsundir falli eftir Susi Hasel Mundy; og tvær bækur fyrir verðandi foreldra og foreldra á ystu nöf 😉
05/05/2020
Jæja, sumarið er komið og þar með tími fyrir umsjónarmenn að skipta um hurð á Skakkasafni. Af einhverjum ástæðum hangir hurðin enn á hjörum, en gluggarnir eru eiginlega allir farnir og plastlímband verndar bækurnar frá veðri og vindum.
Stútfullt safnið í dag, endilega komið og léttið á safninu. Laufléttar ástarsögur fyrir sólina, barnaumönnunarbækur fyrir nýbakaða foreldra og ævisaga Guðna pólitíkus, ekki Guðna forseta :)
01/04/2020
Farið vel með ykkur öll, kæru nágrannar ♥
Við erum kannski föst heima, en getum ferðast út í himingeima við lestur góðra bóka. Lesum saman á tímum plágunnar :)
Tími til að lesa Vertu með í landsliðinu Í tilefni af því að nú erum við mörg heima, og vantar eitthvað gefandi til að nýta tímann í, ætlum við að sameinast í einu liði, landsliðinu í lestri, og setja heimsmet í lesnum mínútum á einum mánuði.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Telephone
Website
Address
Sogavegur 109
Reykjavík
108