23/09/2026
Hópefli í Skautahöllinni í Laugardal 👏
Veitingasalurinn hentar mjög vel fyrir afmæli eða aðrar uppákomur og þeir sem sækja veitingasalinn þurfa ekki að fara úr skautunum, þar sem dúkur er á umræddu svæði og því hægt að ganga á skautum þar. Það er tilvalið fyrir starfsmannahópa að taka sig saman og hittast á skautum og fá sér t.d. pizzur og gos, eða heitt kakó. Athugið að panta þarf fyrirfram með því að senda póst á netfangið: [email protected].