15/03/2026
Opið er fyrir umsóknir í styrktarstjóð ÍBR 🤝
Það er hægt að leggja inn umsókn til 15 apríl!
Frekari upplýsingar 👉 https://www.ibr.is/styrktarsjoduribr
Heildarsamtök íþróttafélaganna í Reykjavík. Hér verður aðallega komið áleiðis fréttum af gengi Reykjavíkurúrvalsliða.
Almennar fyrirspurnin óskast sendar á [email protected]. ÍBR, eða Íþróttabandalag Reykjavíkur eru heildarsamtök íþróttafélaganna í Reykjavík og var stofnað 31. ágúst árið 1944. ÍBR er aðili að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og er tengiliður íþróttafélaganna við Reykjavíkurborg. ÍBR gætir hagsmuna íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík gagnvart opinberum aðilum og vinnur að eflingu og skipulagningu íþróttastarfsemi í Reykjavík.
15/03/2026
Opið er fyrir umsóknir í styrktarstjóð ÍBR 🤝
Það er hægt að leggja inn umsókn til 15 apríl!
Frekari upplýsingar 👉 https://www.ibr.is/styrktarsjoduribr
Þakkarmyndband Norðurljósahlaups ON 2026 💥
Þessa snilld gerðu .is fyrir okkur og þetta heldur betur nær þeirri frábæru stemningu sem var í hlaupinu í ár 🙌
24/12/2025
Gleðilega hátíð 🎄
Við þökkum fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða og sjáumst hress á þeim fjölmörgu íþróttaviðburðum sem eru á döfinni á nýju ári 👏
----------------------------------------------------
Happy holidays 🎄
We thank you for your participation this year and see you at one of our many sporting evens in the new year 👏
17/12/2025
Eygló Fanndal Sturludóttir er Íþróttastjarna árins 2025 🙌
Eygló átti stórkostlegt ár þar sem Evrópumeistaratitill fullorðinna er sá árangur sem hæst ber að nefna. Þar kom hún, sá og sigraði og fyrir þann árangur var hún líka valin önnur besta er kemur að heildarstigum óháð þyngdarflokki. Hún er fyrsti íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í ólympískum lyftingum fullorðinna. Fyrr á árinu varð hún Íslandsmeistari í 5. sinn í röð og svo tryggði hún sér einnig 1. sæti á Smáþjóðamótinu.
Við óskum Eygló innilega til hamingju með frábæran árangur 🫶
17/12/2025
Íþróttalið ársins 2025 🙌
Meistaraflokkur kvenna Vals í handknattleik!
Valur átti frábært tímabil og eru Íslandsmeistarar 2025. Hápunktur tímabilsins verður að teljast frábær sigur Vals í Evrópubikarkeppni kvenna en þar sigraði liðið sterkt lið Porrino frá Spáni í úrslitum keppninnar. Valur er fyrsta íslenska kvennaliðið í handknattleik til að vinna Evróputitil.
Við óskum Val og öllum liðunum sem tilnefnd voru til hamingju með árangurinn 👏
12/12/2025
Veitt verða verðlaun fyrir íþróttastjörnu og íþróttalið ársins 2025 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur, miðvikudaginn 17. desember.
Þetta er í fyrsta sinn sem veitt eru verðlaun fyrir íþróttastjörnu ársins. Breytingarnar eru í megindráttum þannig að tilnefningarnar eru ekki kynjaskiptar. Að vanda eru veitt verðlaun fyrir íþróttalið ársins en hér að neðan má sjá tilnefningarnar í ár.
06/12/2025
ÍBR og endurnýja samstarfssamning til þriggja ára
Íþróttabandalag Reyjavíkur og Garminbúðin hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning sem gildir fyrir árin 2026–2028. Þetta er fjórði samningurinn sem aðilar gera með sér, en samstarfið hófst árið 2018.
Með nýjum samningi verður Garminbúðin áfram opinber rafeindarbúnaðarstyrktaraðili íþróttaviðburða ÍBR. Garminbúðin hefur um árabil verið mikilvægur samstarfsaðili og veitt bæði viðburðum ÍBR og þátttakendum þeirra öflugan stuðning.
Við höfum átt í afar góðu og frjóu samstarfi við Garminbúðina og erum þakklát fyrir þann styrk og áhuga sem fyrirtækið hefur sýnt í gegnum árin. Við hlökkum til að halda áfram á sömu braut og efla viðburði ÍBR enn frekar á næstu árum.
Með endurnýjuðum samningi er tryggt að þátttakendur í viðburðum ÍBR munu áfram njóta vandaðrar tæknilausnar og frábærs stuðnings frá Garminbúðinni.
03/12/2025
Starfsfólk ÍBR fór á skyndihjálpar námskeið Rauða kross Íslands í dag, fengum frábæra leiðsögn hjá Arnari Fannberg ❤
Mælum mjög mikið með, næstu námskeið má sjá hér: https://www.raudikrossinn.is/um-okkur/namskeid-og-vidburdir/?courseType=firstAid
19/11/2025
Íþróttafólk Reykjavíkur er kjörið ár hvert af framkvæmdastjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur og skal stjórn velja íþróttamann/manneskju ásamt íþróttalið. Íþróttamaður/manneskja Reykjavíkur skal vera íslenskur ríkisborgari og hafa verið félagi í reykvísku íþróttafélagi á liðnu tímabili.
Nú viljum við gefa almenningi kost á því að skila inn ábendingum um einstaklinga sem gætu komið til greina og ábendingum er hægt að skila hér að neðan.
Hægt er að sjá frekari upplýsingar hér: https://www.ibr.is/i%C3%BErottafolk-reykjavikur
Allir Með leikarnir fóru fram um helgina!
17/10/2025
Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið er Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Á síðasta ári syntu þátttakendur samtals 31.271km, eða um 24 hringi í kringum landið 💙
Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is 🏊♀️🏊
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara inná mínar síður.
| Monday | 09:00 - 16:00 |
| Tuesday | 09:00 - 16:00 |
| Wednesday | 09:00 - 16:00 |
| Thursday | 09:00 - 16:00 |
| Friday | 09:00 - 16:00 |