31/05/2026
Takk fyrir áhugann á byrjendanámskeiðunum okkar! Skráning hefur farið vel af stað, og eru ekki mörg laus pláss eftir, en nú er tækifærið ef þig hefur alltaf langað til að prófa! 🦭🪼
http://www.kayakklubburinn.is/algengar-spurningar Kayakklúbburinn var stofnaður 1981, og er aðili að Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Starfsemi klúbbsins hefur farið ört vaxandi undanfarin ár og eru virkir félagar nú um það bil 400. Innan kayakíþróttarinnar eru nokkrar gerðir kayaka, en hér á landi er aðalega lögð stund á róður á straumvatns og sjókayökum. Klúbburinn hefur aðstöðu í Sundlaugunum í Laugardal, Geldinganesi þar sem geymsluaðstaða fyrir 160 báta auk félags- og sturtuaðstöðu, í Nauthólsvík er búnings- og sturtuaðsta
31/05/2026
Takk fyrir áhugann á byrjendanámskeiðunum okkar! Skráning hefur farið vel af stað, og eru ekki mörg laus pláss eftir, en nú er tækifærið ef þig hefur alltaf langað til að prófa! 🦭🪼
05/05/2026
Við viljum vekja athygli á byrjendanámskeiðum sem fram fara í Reykjavík og á Ísafirði nú í júní á vegum Sea Kayak Iceland.
Námskeið sem þessi og sérstakir róðrar fyrir byrjendur er mikilvægur undanfari þess að mæta í félagsróður.
Byrjendanámskeið - Sea Kayak Iceland Welcome to Sea Kayak Iceland, where nature, kayaking and adventure come together!
10/04/2026
Ferðanefnd hefur gefið út ferðadagskrá ársins 2026.
Boðið er uppá margt skemmtilegt, s.s. lengri og styttri ferðir, vatnaróðra, tjaldferðir, sólmyrkva- og næturróðra. Stórglæsileg dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
26/02/2026
Beint streymi frá Aðalfundi Kayakklúbbsins 2026:
Aðalfundur Kayakklúbbsins 2026 Enjoy the videos and music you love, upload original content, and share it all with friends, family, and the world on YouTube.
29/08/2025
Húsnæðisnefnd óskar eftir upplýsingum um nokkra sjókayaka í geymslugámunum í Geldinganesi. Ef þú kannast við bátana á meðfylgjandi mynd eða veist hverjir eigendur þeirra eru þá vinsamlegast sendu okkur línu á [email protected].
Jafnframt viljum við koma eftirfarandi á framfæri:
1. Það er allra hagur að skráningar báta í geymslu séu réttar. Ef þú skiptir um bát í plássinu þínu þá væri frábært að fá tilkynningu um það á [email protected] og taka þá fram hvaða bát þú skiptir út, og tegund og lit nýja bátsins. Einnig ef þú ert með fleiri en einn bát í geymslu og víxlar þeim milli plássa til langframa þá væri gott að vita af því.
2. Tómt pláss jafnvel í vikur/mánuði þýðir ekki endilega að plássið sé laust. Bannað er að færa báta milli plássa nema með leyfi. Nýbúið er að uppfæra blöðin innan á hurð gámanna en þar kemur skýrt fram hver á hvaða pláss. Allar óskir um tilfærslu báta, ný pláss eða uppsagnir skal senda á [email protected]
Með von um jákvæð viðbrögð
nefndin
Minnum á að á síðunni "Kayakklúbburinn - Spjall" eru upplýsingar um komandi viðburði, m.a. er "róðrartækni 2" á dagskrá á þriðjudag og "nýliðaróður" á miðvikudag. Ekki má svo gleyma félagsróðri á fimmtudag. Nú er ekkert annað í stöðunni en að nýta síðustu daga sumarsins og skella sér á sjó.
Nú er búið að endurnýja búnaðinn fyrir hurðaopnunina á aðstöðunni okkar í Geldinganesi. Nýi búnaðurinn styður VoLTE yfir 4G, en sá eldri studdi bara 2G/3G farsímakerfin sem verða lögð niður á næstunni. Aðgangsheimildir félagsmanna voru afritaðir í nýja kerfið og virkni kerfisins er alveg óbreytt og því ætti þessi útskipting ekki að valda neinum vandræðum. Ef svo óheppilega vill til að það gerist getur viðkomandi haft samband við Arnar Má í 8926308.
kveðja
húsnæðisnefnd
12/07/2025
Áttu eftir að borga bátageymslu- og/eða félagsgjald klúbbsins ?
Eindagi var síðustu mánaðamót og því hvetjum við þá sem eiga ógreidda greiðsluseðla að gera upp sem fyrst.
kveðja,
stjórnin
26/06/2025
Sjálfboðaliðar óskast
Straumvatnsdeild Kayakklúbbsins mun þann 26.júlí í samstarfi við Arctic Rafting halda Íslandsmót í kayakróðri í hinu æðislega Tungufljóti í Biskupstungum, milli Gullfoss og Geysis. Þetta er keppni í tímatöku og svo úrslitakeppni í bráðabana þar sem tveir keppendur fara af stað á sama tíma í keppni niður ánna. Sigurvegarar verða svo krýndir Íslandsmeistarar en það hefur ekki gerst í 15 ár. Keppt verður í karla- og kvennaflokkum en ljóst er að æsispennandi keppni á eftir að eiga sér stað þann 26. júlí næstkomandi. Eftir keppni verður síðan haldið til Drumboddstaða þar sem Arctic Rafting er með bækistöðvar sínar. Þar verður grill, heitir pottar og sauna sem verður opin keppendum sem og áhorfendum. Eftir mat verður svo verðlaunaafhending en eftir verðlaunaafhendinguna verður blásið til heilmikillar veislu þar sem plötusnúðar þeyta skífum og dansað verður eitthvað frameftir. Þessi keppni er á vegum Kayakklúbbsins og er unnin í sjálfboðavinnu en til að þetta geti fengið að ganga vel og smurt fyrir sig bjóðum við félagsfólki úr kayakklúbbnum að koma og horfa á og njóta sér að kostnaðarlausu en miðinn á þessa hátíð kostar annars 5000kr. Það sem við viljum biðja ykkur um í staðinn er smávegis hjálp í kringum uppsetningu og framkvæmd keppninar. Bjóðum við sjálfboðaliðum einnig uppá hamborgara og franskar eftir keppnina. Ef þú hefur áhuga á að koma og hjálpa þá máttu endilega fylla út þetta form og svo sjáumst við öll eiturhress þann 26. júlí
25/06/2025
Áttu kayak í Nauthólsvík?
Kayakklúbburinn og Siglingafélagið Brokey hafa til lengri tíma haft samstarf um bátageymslu og aðgang að búningsklefum í húsnæði Brokeyjar í Nauthólsvík. Um það bil 30 kayakar eru í aðstöðu Brokeyjar en eingöngu eru 23 þeirra skráðir í bátaskrá Kayakklúbbsins.
Til stendur að færa þá báta sem eru skráðir í bátaskrá Kayakklúbbsins til innan svæðisins hjá Brokey vegna skipulagsbreytinga, en aðkallandi er fyrir Brokey að fá pláss fyrir öryggisbáta. Til stendur að fá innréttaða gáma innan girðingar, sem m.a. myndu hýsa kayaka og yrðu sambærilegir við þá gáma sem við höfum í Geldinganesi.
Við hvetjum þá félagsmenn Kayakklúbbsins sem eiga bát í Nauthólsvík og hafa ekki greitt bátagjald, til að vitja báta sinna sem fyrst. Þeir bátar sem ekki hefur verið greitt fyrir í fjölda ára og við vitum ekki hverjir eiga, verða fjarlægðir í lok sumars.
Það er löng hefð fyrir samstarfi Kayakklúbbsins og Brokeyjar í aðstöðumálum og við bindum vonir um áframhaldandi gott samstarf á milli þessara félaga í Reykjavík.
Mynd úr geymslusvæði Kayakklúbbsins í Nauthólsvík.
| 09:00 - 13:00 |