Veiðihúsið Sakka

Veiðihúsið Sakka

Share

Veiðihúsið Sakka er heildverslun sem flytur inn og dreifir veiði og útivistarvörum á Íslandi.

Metnaður okkar liggur í að flytja inn gæðavörur á góðum verðum ásamt því að veita bestu mögulega þjónustu við viðskiptavini okkar sem völ er á. Lykilatriði í vöruvali okkar hefur ávallt verið það að ef við treystum okkur ekki til að nota það sjálfir, þá seljum við það ekki heldur. Einfalt og gott mottó sem hefur reynst okkur vel í gegn um tíðina. Áratuga reynsla af veiðum og útivist hefur tryggt o

11/06/2026

Takk takk! Benelli mótaröðinni lauk í gær og vakti mikla gleði! við sjáumst brátt 🇮🇸

10/06/2026

Það er komið að þessu, lokahnykkurinn. Fjórða og síðasta mótið í Benelli vormótaröðinni er í dag kl 17 á Iðavöllum á æfingasvæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Að sjálfsögðu verður Börger á bálinu fyrir þá sem vilja. Minni á að skrá ykkur hjá www.sporting.is Sjáumst í Oddaflugsstemmingu á Iðavöllum í dag!

03/06/2026

Það er ekki gott að keyra yfir sjónaukann sinn, en ef svo óheppilega vill til að það gerist... vertu þá viss um að það sé Steiner.

03/06/2026

Steiner-Þýsk gæði og hugvit.
Vertu viss um að velja það sem sannarlega er gott.

03/06/2026

Það er komið að móti númer 3 í Benelli vormótaröðinni, og eins og áður blíða og stuð á dagskrá! Að venju þetta vorið verðum við á Iðavöllum hjá SÍH Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar
Mæting kl 17, ekki seinna!
Fyrirkomulagið í dag er veiðitengt, 60 dúfur skotnar á 2 völlum með óhefðbundinni uppsetningu. 3 skot leyfð á hverju setti. Nú er lag að mæta með hálfsjálfvirku byssuna og sýna hvað í sér býr!
Börger á bálinu og samkvæmt spánni eru 16 gráður og stilla á planinu hjá veðurguðunum.
Minni aftur á að sporting.is heldur utan um skráningar og úrslit, snilldarkerfi há þeim félögum.
Sjáumst!

26/05/2026

Benelli vormótaröðin.
Mót númer tvö! Það er komið að þessu, aftur!

Sjáumst á morgun á Iðavöllum hjá SÍH @ Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar
Pulsur á bálinu fyrir svanga. Mæting ekki seinna en 17:00.
Skráning að venju á Sporting.is
Sjáumst hress og kát.

20/05/2026

20/05/2026

Benelli bliða á Iðavöllum!

14/05/2026

Nú setjum við okkur í stellingar og dustum rykið af byssunum eftir langan vetur og skemmtum okkur saman.
Vormótaröð Benelli hefst Miðvikudaginn 20. Maí. Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar ætlar að halda mótin með okkur og www.sporting.is ætla að halda utan um skráningar. Næstu 4 Miðvikudagar eru þar með komnir á blað, mæta og skjóta og hafa gaman er dagsskipunin! Dagsetningarnar eru eftirfarandi: 20. Maí, 27. Maí, 3. Júní og loks 10. Júní.
Fyrirkomulag er með eftirfarandi hætti:
Skotnar verða 75 Dúfur á 3 völlum, uppsetningin valla verður á þann hátt að allir geta og munu hafa gaman af.
Hámarksfjöldi er 36 þáttakendur (muna að skrá sig á www.sporting.is) eða freista þess að skrá sig á staðnum ef laust verður.
Mæting kl 17:00, riðlar tilbúnir kl 17:20, fyrstu hópar út kl 17:30
SKráningargjald 3000.- greiðist á staðnum.
Okkur hlakkar til að hitta ykkur öll að nýju eftir langann vetur.
Minni enn einu sinni á www.sporting.is fyrir skráningar: https://sporting.is/guest/register/12

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hólmaslóð 4
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00