Grandi101

Grandi101

Share

liên hệ zalo đặt hàng 0354.619.022 Boðið er upp á þrenns konar þjálfun (tíma) - Hreysti101, Þrek101 & Styrkur101. Styrkur101 - Áhersla lögð á alhliða STYRK.

Grandi101 - er staðsett á Fiskislóð 49-51, 101 Reykjavík í rúmlega 1000m2 húsnæði.

Á Granda101 aðstoðum við einstaklinga við að verða besta útgáfan af sjálfu sér með aukinni hreyfingu og skemmtilegu samfélagi. Áhersla er lögð á fagmennsku, persónulega þjónustu og skynsemi í þjálfun. Við mælum með að þeir sem ekki hafa stundað Functional Fitness áður taki grunnnámskeiðið hjá okkur, annars er það

Photos from Grandi101's post 07/04/2023

Föstudagurinn langi byrjaði vel 🤩💪

Gleðilega páska elsku vinir 💙

13/02/2023

Hefjum ný nàmskeið à 4 vikna fresti ✨

- Hreysti101 - Þrek101 - Styrkur101 - Be the best you 24/01/2023

- Hreysti101 - Þrek101 - Styrkur101 - Be the best you Á Grandi101 er áhersla lögð á fagmennsku, persónulega þjónustu og skynsemi í þjálfun. Þrenns konar þjálfunarmöguleikar (tímar) eru í boði – Hreysti101, Þrek101 og Styrkur101 og hafa meðlimir aðgang að öllum tímum

Photos from Grandi101's post 21/01/2023

Hún elsku Bessí okkar er svo ótrúlega flott og frábær fyrirmynd.
Hún hefur verið í HeldriFit hjá okkur nánast frá upphafi og heldur áfram að styrkja og bæta sig 💪🏼😍

Mælum með að smella á linkinn hér að neðan og lesa viðtalið við hana í fullri lengd ⤵️
https://www.mbl.is/bladid-pdf/monitor/a-besta-aldri-2023.pdf

Grunnnámskeið - Grandi101 15/01/2023

Skráning hafin à Grunnnámskeið í febrúar ✨

Tilvalin leið til að koma sér af stað og læra að hreyfa sig rétt og vel.

Fjögurra vikna námskeið fyrir þá sem vilja koma sér skynsamlega af stað í lokuðum hóp undir leiðsögn reyndra þjálfara.
Á námskeiðinu er farið vel í allar grunnæfingar til að fá sem bestan undirbúning fyrir opnu tímana hjá okkur á Granda101. Þátttakendur fá einnig aðgang að öllum opnum tímum en í þeim heldur kennslan áfram og byggt er ofan á þann grunn sem farið er í á grunnnámskeiðinu.

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 7. febrúar og fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:10 – 19:10.

Þjálfarar: Jakobína Jónsdóttir og Grétar Ali Khan

Verð:
Grunnnámskeið - 19.990kr.
Grunnnàmskeið + mánaðarkort 32.990kr.

Grunnnámskeið - Grandi101

Krakkafit - 10 vikna námskeið 03/01/2023

KRAKKAFIT

Hefst mánudaginn 9. janúar og stendur til miðvikudagsins 17. maí.

Fjölbreytt og skemmtileg líkamsrækt fyrir unglinga á aldrinum 8-11 ára (3.-6. bekkur).

Kennt á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30.

Markmiðið er að kynna alhliða æfingaform fyrir börnunum í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi undir fagmannlegri handleiðslu.

Áhersla er lögð á líkamsvitund, góða líkamsstöðu, styrk, úthald og liðleika. Þeir sem hafa nú þegar grunn halda áfram að byggja ofan á hann.

Tilvalin hreyfing fyrir þau sem hafa ekki fundið sig í öðrum íþróttum og þau sem æfa aðrar íþróttir en vilja auka styrk, úthald og liðleika.

Ath! Takmarkaður fjöldi plássa er í boði og skràning því bindandi.

Hægt er að nýta frístundastyrkinn.

Skráning fer fram á heimasíðunni okkar hér:

Krakkafit - 10 vikna námskeið Fjölbreytt og skemmtileg líkamsrækt fyrir unglinga á aldrinum 9-11 ára (4.-6. bekkur). Kennt á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30.

Unglingafit - 10 vikna námskeið 03/01/2023

UNGLINGAFIT

Hefst þriðjudaginn 10. janúar og stendur til fimmtudagsins 18. maí.

Fjölbreytt og skemmtileg líkamsrækt fyrir unglinga á aldrinum 12-15 ára (7.-10. bekkur).

Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15:30-16:30.

Markmiðið er að kynna alhliða æfingaform fyrir unglingunum í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi undir fagmannlegri handleiðslu. Áhersla er lögð á líkamsvitund, góða líkamsstöðu, styrk, úthald og liðleika. Þeir sem hafa nú þegar grunn halda áfram að byggja ofan á hann.

Tilvalin hreyfing fyrir þau sem hafa ekki fundið sig í öðrum íþróttum og þau sem æfa aðrar íþróttir en vilja auka styrk, úthald og liðleika.

Ath! Takmarkaður fjöldi plássa er í boði og skràning því bindandi.

Hægt er að nýta frístundastyrkinn.

Skráning fer fram á heimasíðunni okkar hér:

Unglingafit - 10 vikna námskeið Námskeiðið er ætlað börnum í 7.-10. bekk og verður kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.30-16:30.Markmiðið námskeiðsins er að kynna alhliða æfingar fyrir unglingum í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi undir fagmannlegri handleiðslu. Áhersla er lögð á líkamsvitund, g....

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Fiskislóð 49-51
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 05:45 - 20:00
Tuesday 05:45 - 20:00
Wednesday 05:45 - 21:00
Thursday 05:45 - 22:00
Friday 05:45 - 20:00
Saturday 08:30 - 13:30
Sunday 08:30 - 13:00