27/07/2019
Ölverk, bjórinn Kölski
Ef þið eigið leið á suðurlandið þá mæli ég endilega með að kíkja á Ölverk í Hveragerði. Þetta er veitingastaður og örbrugghús sem býður upp á eldbakaðar pitsur sem eru hreint frábærar á bragð…
09/04/2012
Jæja gott fólk!
Það styttist í næsta námskeið sem verður síðasta námskeiðið fyrir sumarfrí .
Það verða smá breytingar á þessu námskeiði, t.d. verður æft úti þegar það er sól og blíða, við færum föstudagstímann yfir á fimmtudag og svo ýmsar aðrar nýjungar .
Námskeiðið byrjar miðvikudaginn 11. apríl og verður í 6 vikur. Verðið er mjög hagstætt eða aðeins 15.900 kr. Hægt er að skrá sig með því að senda mér e-mail á [email protected] eða á [email protected]
Hlakka til að sjá sem flesta
Mbk.
Stefán þjálfari
25/03/2012
Kæru meðlimir í fit 40 hópnum.
Þá styttist í að þetta námskeið klárist og nýtt er handan við hornið .
Ég hef fengið nokkrar spurningar sem mig langar að svara snöggvast.
1. Fyrir þá sem eiga svolítið erfitt með að mæta alltaf á réttum tíma, ekki hafa áhyggjur! Betra er að koma í halftíma og taka vel á því en að mæta ekki.
2. Varðandi mataræðið: ég er ekki lærður næringafræðingur (frekar en 95% af einkaþjálfurum) og þar af leiðandi finnst mér ekki við hæfi að leiðbeina ykkur varðandi mataræði ykkar (ekki frekar en næringafræðingur eigi að þjálfa ykkur). Ég get gefið ykkur góð og skynsamleg ráð sem allir þekkja, t.d. minnka matarskammtinn og borða meira grænmeti. En ég get mælt með 2 virkilega góðum vefsíðum, ein fyrir þá sem vilja vinna sjálfstætt sem heitir myfitnesspal.com. Þess má geta að ég er byrjaður sjálfur á því sem hluta af undirbúningi mínum fyrir laugarvegs hlaupið í ár. Þess má geta að myfitnesspal.com er frítt og mjög auðvelt í framkvæmd. Svo er http://heilsugeirinn.is/ íslensk síða sem lofar góðu og er virkilega fræðandi. Þess má geta að heilsugeirinn býður einnig upp á ráðgjöf gegn gjaldi. Mig langar að þakka Birgittu Haskell fyrir ábendinguna.
3. Fyrir þá sem hafa dottið út af einhverjum ástæðum en langar að byrja aftur og jafnvel stökkva inn á milli þegar tækifæri gefst eruð þið alltaf velkomin!! Gjaldið fyrir að koma inn á milli er bara hlutfallsleg upphæð af námskeiðinu, t.d. ef þú ert með í 4 vikur af 6 vikna námskeiði þá borgar þú tvo þriðju af námskeiðinu. Stakur tími kostar 1.000 kr. og allir eru velkomnir.
mbk. Stefán
Forsíða
oftast valið milli hollustunnar eða óhollustunnar. Mig langar í þessum fyrsta pistli að vekja ykkur til umhugsunnar um val á matvörum.
13/02/2012
Nýtt námskeið að hefjast!
Skráning á næsta námskeið hafin!!
Næsta námskeið í fit 40+ hefst mánudaginn 20. febrúar!
Ertu orðin leiður á að gera sömu æfingarnar aftur og aftur og langar að komast í form?
Þá er kominn tími til að byrja í fit 40+!
Hvað er fit 40 +?
Fit 40 + er prógram sem er ætlað fólki sem vill komast í betra form en það er í núna. Æfingaáætlunin er blanda af lyftingum, TRX suspension training og Body weight training. Kennt er á Selásbraut 98 í Árbæ.
Þjálfarinn í fit 40 + er Stefán Guðjónsson ACE einkaþjálfari.
Hægt er að hafa samband í sími 693-6526 eða e-mail [email protected] eða [email protected]
22/01/2012
Startpakki fyrir þá sem vilja ná betri árangri!
Það er fátt erfiðara en að mæta á líkamsræktastöð og vita ekki hvað maður á að gera!
Fit 40 býður upp á startpakka fyrir þá sem vilja hafa markvisst æfingaprógram sérsniðið fyrir sig!
Stefán Guðjónsson einkaþjálfari með ACE einkaþjálfara réttindi og TRX þjálfara réttindi sér um að koma þér í form!
Innifalið er viðtal til að komast að því að hverju þú stefnir, t.d. að grennast eða styrkjast, 1x ummálsmæling, 2x tíma leiðsögn í salnum og 2 mánaða æfingaprógram til að fara eftir. Verðinu er stillt í hóf eða aðeins 15.000 kr.! Hægt er að hafa samband í gsm:693-6526 eða [email protected] (Gilt líkamsræktarkort í Árbæjarþrek er nauðsynlegt).
22/01/2012
Fit 40+ hópnámskeið!
Þá eru 2 vikur af 6 á nýjasta námskeiðinu búnar og eflaust einhver að naga sig í handarbökin yfir að hafa ekki skráð sig! Ekkert mál! Það er ekki of seint að byrja. Við bjóðum þeim sem vilja vera með tækifæri á að vera næstu 4 vikur á aðeins 10.490 kr.!! Tímar eru mán. miðv. og föst. Frá 17:00 til 18:00. Hægt er að skrá sig á e-mail [email protected] eða bara mæta niður á Selásbraut 98.
05/01/2012
Nú byrjar ballið!
6 vikna námskeið 3 sinnum í viku fyrir konur og karla á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 17.00-18.00.
Æfingaprógramm fyrir fólk 40 ára og eldri sem vilja komast í betra form.
Blanda af lyftingum, TRX Suspension Traning og Body Weight Traning.
Námskeiðið hefst 9. janúar og 20. febrúar.
Kennari: Stefán. Hægt að skrá sig í e-mail [email protected], [email protected] eða 567-6471
Verð: 15.900 kr.
Námskeiðið er að Selásbraut.
22/12/2011
Minna ykkar á að síðasta æfing fyrir jól er í dag (fimmt.) kl.17:00
Kv.
Stefán
05/12/2011
helgi búið og skemmtileg tími framundan!!
29/11/2011
Hello fit 40 gengi!
Tíminn á morgun verður seinkað til kl.18:30! Sjaúmst þá!
Kv.
Stefán
27/11/2011
Þá er síðasta fit 40 námskeiðið búið og eitt stutt og laggott 4 vikna námskeið fram að jólum eftir. Mundu 2 fyrir 1 tilboðið, þú borgar aðeins 10.000 kr. og mátt bjóða vini eða maka með þér frítt! Fyrir þá sem langar að vera með en eru ekki búnir að skrá sig, er það ennþá hægt á [email protected]
20/11/2011
Jæja!
Þá fer þessu námskeiði senn að ljúka og vonandi finna allir mikinn mun á sér! Það er erfiður mánuður framundan, sem sagt jólin eru að koma!
Til að gera lífið auðveldara og hjálpa ykkur að takast á við þreytu og auka álag í þessum mánuði borgar sig að að vera í sem bestu formi!! Ég ætla að hjálpa ykkur að halda ykkur í formi með Því að bjóða upp á 4 vikna námskeið frá 28. nóv. til 23. des. á aðeins 10.000 kr.! Og ekki nóg með það heldur verður boðið upp á
2 fyrir 1 ! Sem sagt, þú kemur að æfa og mátt bjóða vinkonu þinni með og borgar aðeins fyrir 1! Tímarnir eru frá 17:00 til 18:00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga á Selásbraut 98.
Ekki missa niður það sem þið hafið lagt á ykkur og unnið hörðum höndum að!
Hægt er að skrá sig á [email protected]