06/06/2026
Kæru félagar
Við óskum ykkur innilega til hamingju með opnun á nýrri 1. braut í Grafarholti.
Við biðjum ykkur að kynna ykkur nýjar staðarreglur áður en leikur hefst, hlekk á þær má finna í fyrstu athugasemd.
Góða skemmtun og njótið golfsins!
06/06/2026
Powerade-mót Golfklúbbs Þorlákshafnar hefst laugardaginn 6. júní á Þorláksvelli. Leiknar verða 54 holur á tveimur keppnisdögum, þar sem 36 holur eru leiknar á laugardegi og 18 holur á sunnudegi.
Smelltu hér fyrir rástíma og stöðuna
Í karlaflokki eru 67 keppendur. Meðalforgjöfin er +0.77, lægsta forgjöfin er +5.6 og hæsta forgjöfin er 5.4. Í karlaflokki er 41 kylfingur með 0 eða lægra í forgjöf.
Þrettán efstu kylfingar stigalistans eru á meðal keppenda mótsins. Þar á meðal er Aron Snær Júlíusson, sem hefur unnið fyrstu tvö mót tímabilsins. Aron hefur leikið frábært golf í sumar og stefnir á þriðja sigurinn í Þorlákshöfn.
Sigurður Bjarki Blumenstein vann á Þorláksvelli síðasta sumar, þegar hann lék tvo hringi mótsins á ellefu höggum undir pari. Hann er á meðal keppenda um helgina, ásamt Tómasi Hjaltested, sem þá varð annar.
Poster for Stigalisti Karla 2026 showing top five male golfers with points: Hákon Örn 640, Þómas 645, Axel 700, Aron Emil 1150, Aron Snær 2000, with sponsor logos along bottom.
Efstu fimm í karlaflokki eru allir með
Í kvennaflokki eru fjórtán keppendur. Meðalforgjöfin er 0.15, lægsta forgjöfin er +3.7 en sú hæsta er 5.2.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir leikur í sínu þriðja móti í röð, en hún vann fyrsta mót sumarsins og varð önnur á heimavelli í síðustu viku.
Fjóla Margrét Viðarsdóttir og Eva Kristinsdóttir verða báðar á meðal keppenda um helgina, en þær hafa báðar verið í verðlaunasæti í fyrstu tveimur mótunum.
Perla og Fjóla hefja leik kl. 08:40 á 1. teig ásamt Elsu Maren Steinarsdóttur, GL. Þetta er fyrsta mót Elsu á mótaröðinni í sumar, en hún varð önnur á stigalista kvenna síðasta sumar.
Keppendur eru alls 81, og koma þeir frá 15 klúbbum víðsvegar af landinu.
GR á þar flesta kylfinga eða nítján alls. GKG kemur þar á eftir með s*xtán keppendur, og GM sendir tólf. Átta klúbbar eru með keppendur í bæði kvenna- og karlaflokki.
Hlekk á stöðu og rástíma má sjá í fyrstu athugasemd.
05/06/2026
Arkea Montauban Ladies Open mótið á LET Access mótaröðinni hefst í dag. Mótið er það þriðja á LET Access tímabilinu, en leikið er á Golf de Montauban vellinum í Frakklandi.
Ragnhildur Kristinsdóttir er meðal keppenda ásamt þeim Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir.
Ragnhildur hefur hafið tímabilið af krafti og er í fjórða sæti stigalistans eftir tvö mót. Hún varð önnur í síðasta móti LET Access, og stóð uppi sem sigurvegari Korpubikarsins á GSÍ mótaröðinni um síðastliðna helgi.
Stöðu mótsins má finna í fyrstu athugasemd við færsluna.
05/06/2026
Kæru félagar,
Staðarreglur í Grafarholti og á Korpúlfsstöðum hafa verið uppfærðar og er helsta breytingin sú að nú leikum við hreyfingalaust golf, þ.e. nú eru hreyfingar ekki leyfðar, hvorki á flötum né á snöggslegna almenna svæðinu.
Við vekjum athygli kylfinga á því að það er ábyrgð hvers og eins leikmanns að kynna sér ávallt staðarreglur þess vallar sem spilaður er. Hlekki á allar staðarreglur má finna í frétt á heimasíðunni okkar ásamt öðru gagnlegu efni frá GSÍ, hlekkur á fréttina er í fyrstu athugasemd.
05/06/2026
Icewear mót GKG á Unglingamótaröðinni og Golf 14 fara fram dagana 4.-6. júní 2026 á Leirdalsvelli og Mýrinni.
Metfjöldi kylfinga er skráður í mótið í ár. Í Unglingamótaröðina mæta 102 kylfingar og 178 kylfingar verða á meðal keppenda í Golf 14 móti vikunnar. Því verða alls 280 ungir og efnilegir kylfingar að leik á golfsvæði GKG næstu daga, en Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er framkvæmdaraðili mótsins.
Icewear bikarinn 15-18 ára
Í flokki 15-18 ára eru leiknar 54 holur á Leirdalsvelli og er keppt í höggleik án forgjafar dagana 4.-6. júní.
Að loknum 36 holum er leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.
Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Icewear Golf 14 – Leirdalur
Í Icewear Golf 14 á Leirdalsvelli er leikinn höggleikur án forgjafar dagana 5. og 6. júní – alls 36 holur.
Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk er 30 og hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kvk er 36.
Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Icewear Golf 14 – Mýrin
Icewear Golf 14 fer fram á Mýrinni dagana 5. og 6. júní. Þar eru leiknar 18 holur á tveimur dögum (9 og 9) með höggleiks afbrigði, án forgjafar.
Mótið er hugsað sem fyrsta skref og stuðningur við keppnisþátttölu ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans.
Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin.
Hlekkir á rástíma og stöðu má finna í athugasemdum.
04/06/2026
Opnun 1. brautar Grafarholts laugardaginn 6. júní
Kæru félagar!
Eins og þið hafið séð, þá hafa staðið yfir framkvæmdir við endurbætta 1. braut í Grafarholti. Framkvæmdir hófust í októbermánuði 2024 við mótun nýrrar flatar. Síðastliðið vor var sáð í flötina og forflöt og hefur það svæði fengið að dafna síðan þá. Síðastliðið haust hófust framkvæmdir við brautina sjálfa, allt frá veg að nýju forflötinni, með mikilli jarðvegsmótun, ísetningu vökvunarkerfis o.s.frv. Frá því í vor hefur vinnan haldið áfram, með gerð glompa og nú síðast tyrfingu á brautinni. Tyrfingin tókst með eindæmum vel.
Brautin er að okkar mati glæsileg, þar sem mikil vinna og metnaður hafa verið lögð í öll smáatriði. Brautin var hönnuð af Tom McKenzie. Lykilmenn í framkvæmdinni hafa verið vallarteymið okkar í Grafarholti, þeir Darren Lee Farley og Bjarni Grétar Sigurðsson ásamt Ellerti Þórarinssyni, yfirmanni framkvæmda og Styrmi Guðmundssyni, forstöðumanni vallarsviðs. Ekki má gleyma verktökunum, en þar ber sérstaklega að nefna Steindór Eiðsson á jarðýtunni, Sveinn Steindórsson gröfumann og Chris Elrick frá Skotlandi, sem tók að sér lokafrágang á glompunum, sem eru glæsilegar á að líta. Við færum þessum hópi, sem og öðrum starfsmönnum sem að hafa komið, sérstakar þakkir.
Fyrstu vikurnar verða brautarglompurnar ekki í leik, þær eru enn sandlausar og merktar grund í aðgerð. Við biðjum kylfinga sérstaklega um að að gæta sérstaklega að því, þegar boltar eru sóttir, að ganga varlega um kanta glompanna, þar sem þeir eru einkar viðkvæmir og þurfa lengri tíma til að styrkjast og gróa. Eins og þið sjáið á myndum, var við gerð glompanna notað sérstakt einangrunarlag í jarðveginn sem á að koma í veg fyrir að steinar komi upp í glompurnar vegna frostlyftinga.
Lengd brautarinnar
• Teigur 63 – 335 metrar
• Teigur 57 – 319 metrar
• Teigur 52 – 295 metrar
• Teigur 46 – 287 metrar
Við opnun 1. brautar í Grafarholti verður jafnframt 2. braut opnuð og verður Grafarholtsvöllur því leikinn sem 18 holu völlur frá og með næstkomandi laugardegi.
Stjórn og starfsmenn GR þakka félagsmönnum fyrir þá þolinmæði og stuðning sem sýndur hefur verið meðan á framkvæmdunum hefur staðið. Við hlökkum til að opna þessa glæsilegu nýju 1. braut og taka á móti kylfingum á laugardaginn kemur.
Stjórn og starfsmenn GR
04/06/2026
Tvö fyrstu mótin í LEK-mótaröð eldri kylfinga eru nú að baki, en mótaröðin samanstendur af sjö spennandi mótum víðs vegar um landið.
Byrjun sumars hefur sannarlega reynt á keppendur. Í Þorlákshöfn tók grenjandi rigning á móti kylfingum og í Grindavík voru það hvassir vindar sem settu svip sinn á keppnina. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hafa þátttakendur sýnt mikla seiglu, keppnisskap og einstakan dugnað.
Mótaröðin hefur mikið vægi, enda telja s*x af sjö mótum til vals á landsliðum LEK. Hvert stig getur því skipt sköpum fyrir þá kylfinga sem stefna á landsliðssæti. Þá hlýtur stigahæsti áhugamaðurinn í flokki 50+ sæti í landsliði Golfsambands Íslands 50+, sem gerir keppnina enn áhugaverðari.
Keppt er í fjölmörgum flokkum karla og kvenna, bæði með og án forgjafar, og hafa kylfingar úr GR farið afar vel af stað. Félagið stendur sterkt í A-flokkum karla 50+, 55+ og 65+ án forgjafar. Jón Karlsson úr GR leiðir keppnina í flokki 50+, á meðan Einar Long, einnig úr GR, situr á toppnum í bæði 55+ og 65+ flokki án forgjafar. Þá vann Steinunn Sæmundsdóttir glæsilegan sigur í 65+ flokki kvenna á mótinu í Grindavík. Þetta er glæsileg byrjun hjá GR-ingum og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá okkar kylfingum. Næsta mót LEK-mótaraðarinnar fer fram á Strandarvelli á Hellu sunnudaginn 14. júní.
Nánanri upplýsingar má finn í fréttum á heimasíðunni okkar grgolf.is eða með því að smella á hlekkinn sem kemur í fyrstu athugasemd.
04/06/2026
Fyrsta mót í Golf14 mótaröð GSÍ fór fram um liðna helgi á Nesvelli Nesklúbbsins. Metskráning var í mótið og voru alls 167 ungir kylfingar skráðir til leiks. Mótið var haldið á Nesvellinum hjá Nesklúbbnum.
Ísak Hrafn Jónasson keppti í flokki 11-12 ára drengja og endaði í 2 sæti í mótinu á átta höggum undir pari (-8). Hann spilaði fyrri 9 holurnar á 30 höggum og seinni 9 holurnar á 32 höggum. Ísak Hrafn tapaði ekki höggi á mótinu, hann fékk 5 fugla á fyrri hringnum og 3 á þeim seinni.
Golfklúbbur Reykjavíkur var með 16 unga og efnilega kylfinga á mótinu og má sjá árangur þeirra hér að neðan.
Önnur úrslit má finna inn á heimasíðunni okkar grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Ísaki Hrafni innilega til hamingju með árangurinn sem og öðrum kylfingum klúbbsins með sinn árangur. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir kylfingar skráðu sig til leiks og tóku þátt í fyrsta móti sumarins. Næsta mót hefst á morgun, Golf14-Icewear bikarinn sem er spilaður hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
02/06/2026
Ragnhildur Kristinsdóttir sigraði Korpubikarinnn 2026. Hún var í þriðja sæti fyrir lokahringinn en lék frábært golf á lokahringnum og kom í hús á 66 höggum eða s*x höggum undir pari.