WOW - Arion banki

WOW - Arion banki

Share

10 hugaðir starfsmenn Arion banka ætla að hjóla hringinn og láta gott af sér leiða í leiðin

Photos from WOW - Arion banki's post 29/06/2018

Fyrr í dag settum við myndir af nokkrum af fræknustu hjólagörpum Arion banka. Hér koma fleiri myndir af þessum snillingum.

——

Endilega skorið á liðið á síðu keppninnar en áheit munu renna til Landsbjargar:
http://skraning.wowcyclothon.is/keppnin/keppandi?cid=8354

——

Minnum áhugasama á að fylgjast með liðinu á:
- Snapchat: og
- Instagram:

28/06/2018

Veðrið leikur við okkur á suð-austurhorninu. með allt á hreinu.

Photos from WOW - Arion banki's post 28/06/2018

Team Arion er að standa sig gríðarlega vel og liðið nálgast Öxi. Þau eru samt alltaf til í að brosa fyrir myndavélina👌🏻

28/06/2018

Easy! Björgvin skælbrosandi léttur ljúfur og kátur!

28/06/2018

Kolla leiðir hópinn í góðum félagsskap 🤜

Liðið var rétt í þessu að fara framhjá Staðarskála.

27/06/2018

Hvalfjörður - done!!! ✔️

Erlingur Fannar á fullu spani við Laxárbakka. Liðið er ennþá á mjög góðum stað meðal fremstu liða.

Framundan er nokkuð sléttur kafli í frábæru veðri fram að Borgarnesi.

27/06/2018

Jökull á fullri ferð í Hvalfirði!

Lið Arion banka var mjög framarlega þegar liðin fóru að þeysast inn í Hvalfjörðinn 👌

27/06/2018

Það eru ekki bara starfsmenn bankans sem hvetja okkur áfram. Við eigum dygga stuðningsmenn frá Asíu! 👏👏

Photos from WOW - Arion banki's post 26/06/2018

Fylgist með okkur á snapchat, veislan hefst á morgun!
arionbankiwow
arionbankipr

26/06/2018

Jökull er jákvæður en jafnframt hlédrægur bogamaður. Jökull er síðasti en alls ekki sísti meðlimur liðsins sem við kynnum til leiks. Jökull hefur haldið utan um hópinn eins og sannur liðsstjóri!

Þegar Jökull er spurður um hvað hann hugsi um á hjólinu þá lýsir hann hjólatúr eins og sálfræðitíma: „Þú getur leyst úr öllum vandamálum meðan þú ert að hjóla. Ég hugsa því um lausnir á hjólinu.“

Erfiðasta lífsreynsla Jökuls var þegar hann þurfti að koma sér af stað í WOW cyclothon 2017 þegar hann vaknaði blautur og kaldur á Jökulsárlóni. Þrátt fyrir þessa minningu þá er hringferðin í WOW cyclothon 2017 það skemmtilegasta sem hann hefur gert!

Jökull tekur þátt í WOW cyclothon vegna þess að það var svo gaman í fyrra! ...hann er að vísu aðeins farinn að efast, íslenska sumarið er alveg að drepa hann! :-)

26/06/2018

Kolbrún eða Kolla er skemmtilega ákveðinn sporðdreki. Hún starfar í “hjóladeildinni” útlánum í viðskiptaumsjón.

Þegar Kolla hjólar hugsar hún mest um hversu mög wött hún sé að framleiða!

Helsta afrek hennar er að hafa búið erlendis í tvö ár án facebook, snapchat og allra samfélagsmiðla. …við erum jafnvel ekkert klár á því hvort hún hafi yfir höfuð búið erlendis, því ef það gerðist ekki á facebook þá gerðist það ekki!

Mestu vonbrigði hennar í lífinu er veðrið í sumar. Hún vonar þó að veðurspáin fyrir næstu daga haldist því spáð er 18°C hita á Egilsstöðum í nokkrar klukkustundir á fimmtudaginn :-)
Kolla tekur þátt í WOW cyclothon vegna hópþrýstings og svo er þetta líka ágætis áskorun!

26/06/2018

Sævarður er áreiðanlegur en hæglátur tvíburi. Hann starfar í markaðsáhættuteymi efnahagsáhættu bankans.

Mestu vonbrigði Sævarðs í lífinu eru að hafa ekki uppgötvað hjólreiðar sem íþrótt fyrr. Hann hefði t.d. getað hjólað reglulega í góðu veðri þegar hann bjó í London, en ekki bara í roki og rigningu eins og oft er raunin hér á landi.

Nú þegar styttist í keppnina þá er það eina sem Sævarður hugsar um á hjólinu „ég hefði átt að vera duglegri að æfa!“

Sævarður tekur þátt í WOW cyclothon því í minningunni var gaman síðast þegar hann tók þátt! Það er að vísu farið að rifjast upp fyrir honum að svefnleysið og það að hjóla í roki og rigningu hafi ekki verið neitt svakalega skemmtilegt… :-)

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Reykjavík