Ökuleikni

Ökuleikni

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Ökuleikni, Hverafold 1-3, Reykjavík.

Photos from Ökuleikni's post 20/09/2025

Íslandsmeistarakeppnin í Ökuleikni var haldin í dag við Bílaumboðið Öskju á Krókhálsi, þar sem keppendur tóku þátt í blíðskaparveðri. Nokkrir fyrrum Íslandsmeistarar tóku þátt og ljóst var frá upphafi að þeir settu línurnar fyrir alla hina. Brautirnar tvær voru nokkuð krefjandi en með útsjónarsemi mátti aka þær með talsvert meiri hraða en oft tíðkast í keppni sem þessari. Eknar voru tvær brautir, önnur á Mercedes-Benz GLE og hin á KIA EV3.

Úrslit voru á þann veg, að Gunnar Örn Angantýrsson er Íslandsmeistari karla í Ökuleikni og bróðir hans Jón Örn Angantýrsson endaði í öðru sæti, en báðir hafa þeir unnið þennan titil tvisvar sinnum áður. Í þriðja sæti var Hinrik Þór Harðarson.

Í kvennaflokki var spennan ekki síðri, en Agnes Lóa Gunnarsdóttir er Íslandsmeistari kvenna í Ökuleikni, en hún er dóttir Gunnars Arnars. Er þetta í fyrsta sinn sem feðgin ná að verða Íslandsmeistarar á sama tíma í Ökuleikni. Í öðru sæti var Eva Hrund Willatzen og Hanna Rún Ragnarsdóttir varð í þriðja sæti. Hanna er þó einna þekktust sem aðstoðarökumaður í ralli.

20/09/2025

Keppnin er að hefjast. Palli sýnir keppendum braut A.

Photos from Ökuleikni's post 05/07/2025

Sigurvegari Ökuleiknarinnar á Akranesi í dag er Magnús O Stardal með 96 refsistig

Annar varð Bjarni Steinn Gunnarsson með 98 refsistig og þriðji varð Gunnar Kristján Steinarsson með 120 refsistig

Þess má geta að Bjarni og Gunnar eru feðgar

Bílaumboðið Askja leysti þessa ökuþóra út með veglegum verðlaunum. Keppnin tókst afar vel og 30 ökumenn tóku þátt í blíðunni á Skaganum

Photos from Ökuleikni's post 05/07/2025

Í samstarfi við Bílaumboðið Öskju og Bylgjulestina höldum við keppni í Ökuleikni í miðbænum á Akranesi

Keppni hefst kl 12:00 og líkur kl 15:30. Allir velkomnir

22/04/2021

Ert þú nokkuð ljóslaus?

13/05/2019

Miðvikudaginn 22. júlí 1987

Óvæntur gestur mætti á Hólmavík

Góður árangur í kvennariðli

Enn heldur ökuleikni Bindindisfélags ökumanna og DV áfram. Sl fimmtudagskvöld var keppnin haldin á Hólmavík. Er það 16. keppnin í sumar. Nú hafa milli 2 og 300 ökumenn tekið þátt í ökuleikninni og er það aðeins minna en í fyrra og er fækkunin nær eingöngu í kvennariðli, en um 20% keppenda eru í kvennariðli á móti 33 % í fyrra.

Góður árangur í kvennariðli

Á Hólmavík var árangurinn mjög góður í kvennariðli og sú sem sigraði ökuleiknina þar er nú í 5. sæti yfir landið og er það Guðbjörg Hauksdóttir. Hún ók Daihatsu Charade og fékk 260 refsistig. I öðru sæti varð Margrét Bjarnadóttir með 300 refsistig. Þriðja varð Ásdís Jónsdóttir með 310 refsistig.

Karlariðillinn spennandi

Miklar sviptingar voru í karlariðli og varð ekki ljóst fyrr en í lokin hver myndi sigra. Oft munaði aðeins einni sekúndu á keppendum og voru það ýmist umferðarspurningarnar eða villur í brautinni sem gerðu mönnum erfitt fyrir.
Langbestum árangri náði Þröstur Hreinsson á Toyota Corolla. Hann fékk aðeins 168 refsistig og hlaut því gullið að þessu sinni. Sá er silfrið hlaut var Guðmundur Magnússon á Toyota Tercel með 179 refsistig. Guðmundur sigraði þessa keppni í fyrra á Hólmavík enda öruggur ökumaður. Í þriðja sæti varð Lýður Hákonarson og fékk hann 221 refsistig. Enginn þessara ökumanna var með besta tímann í brautinni. Það var hins vegar Óskar Torfason. Óskar rétt missti af verðlaunasæti því hann var með 222 refsistig. En þar sem Óskar fékk besta tímann í brautinni fékk hann frá Casio umboðinu forláta Casio úr.

Óvæntur gestur

Keppnin á Hólmavík fór fram á flugvellinum. Þegar keppni var að verða hálfhuð kom flugvél frá Arnarflugi til lendingar. Menn höfðu það á orði við flugstjórann þegar hann steig út úr vélinni hvort hann myndi ekki renna í gegnum brautina á flugvélinni og hefði hann gert það ef verið hefði afturábakgír á Twin Otternum.
Það hefði þá verið í fyrsta sinn sem flugvél tæki þátt í ökuleikni. Hins vegar varð að gera hlé á keppninni meðan vélin var að athafna sig en um leið og hún fór í loftið hófst keppnin aftur af fullum krafti.

Hjólreiðakeppnin

Frekar fámennt var í hjólreiðakeppninni enda veðrið ekki sem best, nokkur rigning. Mun það vera í fyrsta sinn í langan tíma sem Hólmvíkingar sjá rigningu og fögnuðu margir þeirri tilbreytingu. Ekki voru starfsmenn ökuleikninnar eins ánægðir með vætuna og hefðu kosið áframhaldandi góðviðri sem ríkt hefur á Hólmavík.
Sigurvegari í yngri flokknum var Gauti Már Þórðarson en í eldri riðli sigraði Sigurður Gunnar Ragnarsson. Verðlaun í reiðhjólakeppninni gaf reiðhjólaverslunin Fálkinn hf. en Fálkinn gefur einnig vandað reiðhjól sem dregið verður um meðal keppenda í eldri riðli í haust. Þá gefur Fálkinn utanlandsferð í yngri riðli, en tveir keppendur munu fara sem fulltrúar íslands í norrænni hjólreiðakeppni til Svíþjóðar í haust.
Í ökuleikninni voru tveir gefendur, það voru Pool stofan á Hólmavík og KSH á Hólmavík sem gáfu verðlaunin.
EG.

Frétt birtist í DV þann 22. júlí 1987
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2531986

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Hverafold 1-3
Reykjavík
112