Eftir kröftuga 6 stiga helgi hjá karla- og kvennaliði ÍR um helgina er komið að Léttismönnum!
Stórleikur dagsins er síðbúinn hvítasunnu-slagur milli Léttis og Skallagríms frá Borgarnesi. Liðin eru í 2. og 3. sæti síns riðils og því er ljóst að mikið er í húfi.
Viðureignin hefst á slaginu 20:00 í Hertz-búrinu.
Heiðursgestur kvöldsins er Jakob Hallgeirsson, Skallagríms-goðsögn með meiru en í senn mikill Léttismaður. Hann fær að launum frítt á leikinn eins og allir aðrir áhorfendur.
Allir á völlinn!
Live - Love - Léttir
Léttir
Opinber síða stórveldisins í Breiðholtinu
23/05/2017
http://m.fotbolti.net/news/22-05-2017/4-deild-ymir-og-lettir-byrja-a-sigri-rust-i-borgarnesi
Fyrsti leikur Léttismanna þetta sumarið fer fram í Hertz-búrinu í kvöld klukkan 20:00.
Okkar menn etja kappi gegn Hrunamönnum frá Flúðum og búist er við hörku viðureign.
Hvetjum alla áhugasama til að kíkja við og sjá Léttis-skútuna sigla inn í sumarið!
Live, Love, Léttir ⚽❤️
28/12/2016
Kvöldið gott fólk. Þá er komið að því!! Úrslitakeppnin að byrja á morgun. Léttir - KFG kl 14:00 í Léttisbúrinu. Viljum sjá sem flesta mæta og styðja okkar menn. Takk fyrir!
04/06/2016
Léttismenn mættu norður í Aðaldal í dag þar sem þeir spiluðu við Geisla í bongóblíðu og við úrvals vallaraðstæður eins og sést á meðfylgjandi mynd. Leikurinn var frekar kaflaskiptur en Léttir kláraði leikinn 4-1 eftir stórkostlega þrennu frá Sigga permanent og viti frá Hauki. Menn fara því alsælir heim í bæinn með öll þrjú stigin í farteskinu.
Glæsilegur sigur okkar manna í gær, 3-0 á móti Kormák/Hvöt. Haukur skoraði tvö og Siggi Þór eitt. Liðið spilaði glimrandi vel á köflum allt virðist vera smella meira og meira.
Maður leiksins að þessu sinni var Hrannar Karlsson, en hann átti stórleik í fjarvera fyrirliðans.
Léttir situr á toppi riðilsins eftir tvo leiki. Vel gert strákar!!!
Minnum á leikinn í kvöld. Byrjar kl 20:00. Léttisbúrið!
Dömur og herrar!!! Á morgun er komið að því sem allir hafa beðið eftir. Íslandsmótið hjá okkar mönnum fer af stað með leik á móti Stál Úlf. Leikurinn fer fram á gervigrasinu við hliðina á Kórnum og byrjar kl 20:00. Vonandi sjáum við sem flesta á vellinum til að styðja okkar menn.
Takk fyrir stuðninginn í kvöld gott fólk.
Leikurinn endaði með sigri Leiknismanna, sem réttmörðu okkar menn á síðustu 70 mínútunum. Gengur betur næst hjá strákunum sem sýndu mikla baráttu og samheldni.
Sjáumst í næsta leik, styttist í deildina.
Áfram Léttir!
Minnum stuðningsmenn á stórleik kvöldsins.
Leiknir - Léttir kl 19:00 í Egilshöll.
Allir að mæta og styðja okkar menn!!
ÁFRAM LÉTTIR!!!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Reykjavík