Körfuboltabúðir

Körfuboltabúðir

Share

Körfuboltabúðir fyrir stelpur og stráka 12-18 ára. Búðirnar hafa verið í júní síðan 2001

17/03/2026

Körfuboltaskóli um páskana!

📢Opið er fyrir skráningar á páskanámskeið fyrir 8-12 ára!

​📅 Dags.: 30.mars til 1.apríl
⏰Klukkan: 13:30-15:00

Ágúst Björgvinsson, yfirþjálfari, Friðrik Þjálfi Stefánsson og þjálfar deildarinnar, sér um námskeiðið og fá til sín góða gesti!

ÁFRAM HÆRRA!
https://www.abler.io/shop/valurkarfa/namskeidmot/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQ2NzU=?

Photos from Körfuboltabúðir's post 08/12/2025

💫Jólakörfuboltabúðir💫

Auka æfingin skapar meistarann

Strákar & Stelpur
Aldur: 9–18 ára
Staðsetning: N1 Höllin, Hlíðarenda
Dagar: 20. & 21. desember
Tími: 09:00–12:00
Verð: 16.500 kr.

Leitt af Jamil ásamt gestþjálfurum!

⬇ Ekki missa af þessu – skráðu þig í dag með því að smella á hlekkinn hér að neðan ⬇

https://www.abler.io/shop/valurkarfa/namskeidmot/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NDk4Nzc=?

22/07/2025

Valsakademían

📅 Dagana 6.-15. ágúst mun Valur halda einn flottasta körfuboltaskóla landsins! Þetta er einstakt tækifæri fyrir unga körfuboltamenn til að æfa með og læra af þeim bestu.

Knattspyrnufélagið Valur leggur metnað sinn í að bjóða upp á það besta og er Valsakademían sem nú hefur verið sett á laggirnar liður í því. Um er að ræða körfuboltaskóla fyrir krakka sem fædd eru frá árinu 2009 til 2014. Um er að ræða 8 æfingar ásamt fjölda fyrirlestra frá fólki sem hefur náð eftirtektar verðum árangri í íþrótt sinni.

🏀 Námskeiðið inniheldur:

8 æfingar / 8 fyrirlesrrar á Valssvæðinu

Æfingar 10:00-12:00
Hádegismatur kl 12:00-12:30
Fyrirlestrar eru kl 12:00-13:00

💰 Verð: 35.000 krónur

👨‍🏫 Þjálfarar á æfingum: Finnur Freyr, Kristófer Acox, Silja Úlfars, Jamil, Ásta Júlía, Margrét Ósk, Gústi, Ólöf Helga, Friðrik Þjálfi, Palli og fleiri.

📚 Fyrirlestrar:

Þorgrímur Þráinsson – Félagsfræðingur
Hafrún Kristjánsdóttir – Íþróttasálfræðingur
Ólafur Stefánsson – Silfurhafi á Ólympíuleikunum
Óskar Bjarni – Evrópumeistari í handbolta
Elísa Viðarsdóttir - Næringarfræðingur
Heimir Hallgrímsson-Landsliðsþjálfari Írlands
Lars Lagerback-fyrrum landsliðsþjálfari Íslands

🎟 Takmarkaðpláss í skólann - ekki missa af þessu frábæra tækifæri! Um 20 laus ✅ pláss eftir.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Ólöfu Helgu, verkefnastjóra körfuboltans, [email protected], eða Ágúst,yfirþjálfara Vals, [email protected].

📅 Skráðu þig strax og tryggðu þér pláss í Valsakademíunni!

💪 Sjáumst á Valssvæðinu! 🔴⚪

https://www.abler.io/shop/valur/valsakademianhandbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NDE2MDY=

09/07/2025

Valsakademían

📅 Dagana 6.-15. ágúst mun Valur halda einn flottasta körfuboltaskóla landsins! Þetta er einstakt tækifæri fyrir unga körfuboltamenn til að æfa með og læra af þeim bestu.

Knattspyrnufélagið Valur leggur metnað sinn í að bjóða upp á það besta og er Valsakademían sem nú hefur verið sett á laggirnar liður í því. Um er að ræða körfuboltaskóla fyrir krakka sem fædd eru frá árinu 2009 til 2014. Um er að ræða 8 æfingar ásamt fjölda fyrirlestra frá fólki sem hefur náð eftirtektar verðum árangri í íþrótt sinni.

🏀 Námskeiðið inniheldur:

8 æfingar á Valssvæðinu

Fyrirlestra frá helstu stjörnum landsins

💰 Verð: 35.000 krónur

👨‍🏫 Þjálfarar á æfingum: Finnur Freyr, Kristófer Acox, Silja Úlfars, Jamil, Ásta Júlía, Margrét Ósk, Gústi, Ólöf Helga, Friðrik Þjálfi, Palli og fleiri.

📚 Fyrirlestrar:

Þorgrímur Þráinsson – Félagsfræðingur

Hafrún Kristjánsdóttir – Íþróttasálfræðingur

Ólafur Stefánsson – Silfurhafi á Ólympíuleikunum

Óskar Bjarni – Evrópumeistari í handbolta

Elísa Viðarsdóttir - Næringarfræðingur

🎟 Takmarkaðpláss í skólann - ekki missa af þessu frábæra tækifæri!

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Ólöfu Helgu, verkefnastjóra körfuboltans, [email protected], eða Ágúst, yfirþjálfara Vals, [email protected].

📅 Skráðu þig strax og tryggðu þér pláss í Valsakademíunni!

💪 Allir velkomnir ur öllum félögum. Sjáumst á Valssvæðinu! 🔴⚪

Abler | Shop

Photos from Körfuboltabúðir's post 06/07/2025

Uppgjör Gatorade Körfuboltabúðir⚡️🏀

Frábær þátttaka var í hinar árlegu Gatorade æfingabúðir sem haldnar hafa verið síðan 2001 eða í 25 ára alltaf í júní ár hvert. Fullt var í búðirnar fjórða árið í röð.

Búðunum lauk með úrslitadegi eins og síðasti dagur er jafnan kallaður þar sem krakkarnir kepptu til verðlauna í 1 á 1 keppni, skotkeppni og síðan voru úrslitaleikir í NBA mótinu þar sem búðunum var skipt upp í fjórar deildir Euro deild suður og norður, NBA East og NBA West .

Verðlaunaafhending var í lok búðanna og stuttur fyrirlestur frá Ágústi Björgvinssyni.

Meistarar voru krýndir í hverri deild. Allir leikmenn fengu bol merktan búðunum, Gatorade að drekka og Subway.

Leikmönnum var skipt upp í 12 stöðvahópa sem fóru í gegnum s*x stöðvar daglega í suður og norður deild. 1. Vörn 2. 1 á 1 hreyfingar 3. Skot 4. Sendingar og boltatækni 5. Video 6. Styrkur

Eftir stöðvarnar var NBA mót í fjórum deildum Euro, NBA East og West með s*x liðum í hveri deild. Allar deildir voru blandaðar af stúlkum og drengjum saman í liðum.

NBA West meistarar –
NBA East meistarar –
Euro south meistarar – Athens
Euro north meistarar –

Einstaklings verðlaun
Hot shot meistari í hverjum hóp
Norður 1 - Grétar 53 stig
Suður 1 - Gabriel 52 stig
Norður 2 - Kára 54 stig
Suður 2 - Þorsteinn 48
Norður 3 - Marvin 67 stig
Suður 3 - Róbert 47 stig
Norður 4 – Kolfinna 40 stig
Suður 4 – Írena 43 stig
Norður 5 – Emilía 32 stig
Suður 5 – Júlía 37 stig
Norður 6 – Baltasar 46
Suður 6 – Sturla 33 stig

1 á 1 meistari í hverjum hóp
Norður 1 – Emil Bergsson
Suður 1 – Skarphéðin
Norður 2 – Benedikt Tumi
Suður 2 – Embla Bergdís
Norður 3 – Bjarmi
Suður 3 – Róbert Múli
Norður 4 – Rebekka Ocares
Suður 4 – Íris Tinna
Norður 5 – Aria Dupree
Suður 5 – Ásta Marín
Norður 6 – Daniel Orri
Suður 6 – Ísabella Sif

Fimm manna Stjörnu lið og MVP leikmaður hverri deild.

NBA West
Agape - Arnór Halldórsson- Björn - Gabriel Ágústsson - Benóný Stefan Andrason MVP
Dugnaðarforkur -

NBA East

Euro south

Dominik, Bjarmi, Dagur Dreki, Ariana

Euro north

Einstaklings verðlaun eru valin af þjálfurum hverja deildar

Ps. Erum að vinna í nafnalistum

Photos from Körfuboltabúðir's post 12/06/2025

Gatorade dagur 4
Uppgjör / samantekt kemur á næstu dögum

Photos from Körfuboltabúðir's post 11/06/2025

Gatorade Camp dagur 3

Photos from Körfuboltabúðir's post 11/06/2025

Gatorade Camp dagur 2

Photos from Körfuboltabúðir's post 09/06/2025

Dagur 1 - Gatorade búðir

Photos from Körfuboltabúðir's post 07/06/2025

Jamil Abiad þjálfar í Gatorade búðunum í ár.

Jamil er þjálfari frá 🇨🇦 sem er aðalþjálfari mfl.kv hjá Val og aðstoðarþjálfari mfl. Karla. Jamil er einn vinsælasti einkaþjálfari landsins.

Ekki missa af tækifærinu að fá að æfa hjá Jamil Abiad ásamt mörgum öðrum framúrskarandi þjálfurum.

Gatorade körfuboltabúðir 2025:
📅 9. Júní til 12. júní 17.00-20.30
11 til 18 ára ⛹️‍♀️⛹️‍♂️
Verð 16.500 kr.

Enn hægt að Skrá í Garotarde búðir hér https://forms.gle/agUYzwSf8wPWsSMZ6

Photos from Körfuboltabúðir's post 05/06/2025

Dagskrá Gatorade búðanna 2025

Gatorade körfuboltabúðir í Origo höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 9. júní til fimmtudags 12. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 11 til 18 ára. Spilað er á hár körfur og þeir sem treysta sér í það eru velkomnir.
Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færra þjálfara sem munu þjálfa í búðunum.

Gatorade körfuboltabúðir 2025:
Frá 9. Júní til 12. júní 17.00-20.30
11 til 18 ára stelpur og strákar
Verð 16.500 kr.

Skráning hefur verið frábær síðust ár og færi komist að en viljað. Því mikilvægt að tryggja sér pláss með að skrá snemma.

Skrá í Garotarde búðir hér
https://forms.gle/agUYzwSf8wPWsSMZ6

Frekar upplýsingar
https://www.facebook.com/korfuboltabudirGusta
[email protected]

Dagskrá æfingabúðanna 2025:
Frá kl: 16.30 – 17.00 Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.
17.00 Stöðvaþjálfun: Stöðvaþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í hópa eftir aldri og kyni. Farið er í s*x mismunandi stöðvar á hverjum degi.
Frábæri þjálfarar þjálfa í búðunum í ár eins og undanfarin ár.

1.Styrktarþjálfun
Leikmenn fá að leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum undir handleiðslu Páll Arnar Kendeh íþróttafræðingur og styrktarþjálfara.

2. Video stöð
Á þessari stöð verðu farið í myndbandsgreiningu á körfubolta. Með mismunandi reyndum þjálfurum.

3. Sóknarstöð
Þar sem áherslan er æfa knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum. Einnig hreyfingar án bolta.
Þjálfarar á þessari stöð John Sarge margreyndur unglinga þjálfari frá Bandaríkjunum, sem er að koma gang gert til að þjálfa í Gatorade búðunum í ár. Verðu einnig með sér námskeið eftir búðirnar 14-15. júní. Danielle Rodriguez einn öflugasti leikmaður íslenska landsliðsins og nú nýr leikmaður hjá Njarðvík sem hefur einnig sannað sig sem frábær þjálfari verður á sóknarstöðinni og Aron Páll Hauksson þjálfari frá Val.

4. Fótavinna, sóknar- og varnarhreyfingar 1 á 1
Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna, með 1 á 1 leikjum.
Þjálfarar á stöðinni eru Jamil Abiad einstaklingsþjálfari frá Kanada, sem einkaþjálfari nokkra af bestu leikmönnum landsins. Friðrik Þjálfi Stefánsson þjálfara frá Val mun sjá um stöðina. Friðrik er með skemmtilega YouTube síðu með yfir 230.000 fylgjendum sem má sjá hér https://www.youtube.com/channel/UCAFISGXIxG6paieGk0PHUHA Sigurður Jensson frá Dímon Hvolsvelli.

5. Varnarleikur
Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik liðs, einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 2 á 2 – 3 á 3 o.s.frv.

Þjálfara á stöðinni Kristófer Acox einn besti leikmaður landsins þekktur fyrir sérlega góðan varnaleik. Ólöf Helga Pálsdóttir unglingalandsliðs þjálfari hjá Val. Gunnar Sverrisson þjálfari landsliðs þjálfari frá Haukum.

6. Skotstöð
Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki.
Þjálfarar á stöðinni eru Frank Aron Booker einn allra besti skotmaður Bónus deildarinnar. Hassan Haq þjálfari frá Pakistan og Englandi, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heim. Sem er að koma gang gert til að þjálfa í Gatorade búðunum. Veigar Elí Grétarsson þjálfara frá breiðablik mun einnig þjálfa á stöðinni.

18:30 – Hlé og nesti

19.45- NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East, WNBA og NCAA síðan er spilað mót þá daga sem búðirnar munu standa yfir.

20.20-Stuttur Fyrirlestur og búðum er síðan slitið í framhaldi af honum.

Með fyrirvara um breytingar á dagskrá.
Yfirþjálfari búðanna: Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi færustu þjálfara landsins undanfarna þrjá áratug og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum Hamar, Haukum og Val. Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu frá árinu 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum. Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University , Davidson, NC State, Five Star Basketball Camp, Pocano Invitational, Hoop Group Basketball camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Hlíðarendi
Reykjavík
101