Fjallahjólaklúbburinn

Fjallahjólaklúbburinn

Share

Klúbbur fyrir alla sem hjóla

Klúbburinn samanstendur af breiðum hópi fólks sem hefur hjólreiðamenningu að áhugamáli, vill auka veg reiðhjólsins sem samgöngutækis og vinnur að bættri aðstöðu hjólreiðafólks til samgangna. Markmiðið er að fá sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli og komast í náið samband við móður náttúru, takast á við hana, skilja hana og virða.

11/07/2026

Heiðurshjónin Lilja og Einar leiddu síðustu ferð um Elliðavatn og buðu okkur svo heim í kaffi og veisluborð eftir hjólatúrinn. Við þökkum þeim kærlega fyrir.

Hér má finna myndir úr ferðum sumarsins

https://photos.app.goo.gl/4X44dvjNDdtczyEFA

Næsta þriðjudag er rómantísk hjólaferð um skógarstíga Breiðholtsins. Smá hjólafimi og í lokin má vera að við reynum að finna krá í Breiðholtinu til að stinga okkur inn á. Brottför frá Landsbankanum Mjódd kl 19:00, öll velkomin. Regnfatnaður nauðsynlegur ef marka má veðurspá, en það er jú nauðsynlegt að prófa regngræjurnar líka, ekki satt?

07/04/2026

Við höfum farið þó nokkuð út fyrir bæjarmörkin á þessu ári. Við höfum hjólað á Selfossi, Akranesi og Akureyri. Í Hveragerði og Reykjanesbæ. Ýmist dagsferðir eða helgarferðir með gistingu. Nokkuð ljóst að við gistum ekki í tjöldum að vetrarlagi, við höfum gist í bústöðum eða ódýrri hótelgistingu.

Ef einhver vill ekki láta birta myndir af sér í ferðalögum og öðrum viðburðum, þá verðum við að sjálfsögðu við því.

Næsta ferð er á dagskrá 22 maí. Gist í bústað í Fjárhústungum (í nágrenni Húsafells) og hjólað um nágrennið, hvert verður að koma betur í ljós eftir ástandi vega og slóða í nágrenninu. Heitur pottur, grill og næs. Við getum ferjað hjólin ef á þarf að halda. Takmarkað pláss, fyrstur kemur fyrstur fær. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Hrannar í email [email protected] Kostnaði verður stillt í hóf og dagleiðir skipulagðar miðað við þáttakendur og eins og áður sagði, veðri og færð.

Hér má sjá myndir úr þeim ferðum sem hafa verið farnar á fyrstu þremur mánuðum ársins.

https://photos.app.goo.gl/wQFo7p5cgn4NTpVP6

07/02/2026

Viltu skrifa í árlega tímaritið okkar, Hjólhestinn?

Venju samkvæmt hófst vinna við árlega tímaritið okkar Hjólhestinn í upphafi árs og auglýsum við enn eftir efni. Það er laust pláss fyrir ýmisskonar pistla, ferðasögur, reynslusögur úr starfi klúbbsins og allskonar. Við látum samt aðra að mestu um að fjalla um keppnissportið.

Það væri t.d. gaman að heyra frá einhverjum sem byrjaði nýlega að nota hjólið sem samgöngutæki og heyra hvað dreif viðkomandi af stað og hver reynslan hefur verið. Það má líka fjalla um ferð með klúbbnum eða aðrar skemmtilegar hjólaferðir eða ferðalög eða ævintýri sem fólk hefur upplifað.

Skilafrestur á efni er 21. febrúar. Þó væri gott að heyra sem fyrst frá þeim sem eru með efni í undirbúning. Hver síða rúmar 6-700 orð / 3200-3500 slög en minna með myndum. - Það er skemmtilegra að hafa myndir með. Ef textinn er mjög mikill getum við líka birt góðan kafla í blaðinu og síðan haft söguna alla á vef klúbbsins.

Einnig vantar okkur aðstoð við að afla auglýsinga til að fjármagna blaðið og eru allar ábendingar og aðstoð vel þegin því eins og ávallt er allt starf unnið af sjálfboðaliðum hjá klúbbnum.

Sendið efni á netfang klúbbsins: [email protected]

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sævarhöfð 31
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 19:00 - 21:00