Jæja kæru vinir, nú nálgast jólin óðfluga, lítið er um veiðiferðir og þess vegna tilvalið að eyða auðum stundum í undirbúning vorsins og þeirrar veiði sem fólk ætlar sér að stunda. Mig langar að biðja ykkur ef þið hafið tíma, að deila þessari síðu með vinum ykkar.
Er ekki fluguhnýtingarnámskeið tilvalin jólagjöf? Fátt betra en að sitja við "væsinn" í skammdeginu og gefa hugarfluginu lausan tauminn, finna upp á nýjum veiðivænum flugum, skýra þær jafnvel í höfuðið á barni, barnabarni, eða betri helmingnum.
Engilbert Jensen - Fluguhnýtingar: Námskeið
Nú er Engilbert Jensen að fara af stað með fluguhnýtingarnámskeið fyrir byrjendur, lengra komna, laxaflugur, þurrflugur eða hvað það sem hugurinn girnist!
Sjá frekari upplýsingar í lýsingu (description) Engilbert er frægastur hérlendis fyrir söng sinn og trommuslátt en hjá veiðimönnum er hann í miklum metum fyrir nattni sína við hnýtingar og fengsæld sína í ám og vötnum, hérlendis sem erlendis.
Þess má svo líka geta að hann hannaði veiðistöng fyrir Scott sem hefur fengið góðar viðtökur. http://gbg.is/laxaflugur-2/jensen/
http://www.arvik.is/?c=webp
Sælir kæru vinir! Þið megið endilega deila þessari síðu á veggnum ykkar ef þið eruð í stuði! Enn er hægt að hafa samband og skella sér á námskeið í fluguhnýtingum. Ekki slæmt að eyða vetrinum í að æfa hnýtingar og fylla boxin fyrir komandi sumur! Góðar stundir!
Sæl öllsömul, gaman að sjá að fólki líkar síðan, þið megið endilega hafa samband ef þið hafið áhuga á því að komast á fluguhnýtingarnámskeið hjá Engilberti - allar upplýsingar er að finna í lýsingu síðunnar!
Góðar Stundir!
Mikið væri nú hressandi ef þið gætuð deilt þessari síðu með vinum ykkar og vandamönnum - þeim langar alveg örugglega að læra að hnýta þó kannske þau viti það ekki sjálf! Kannske vita það allir nema þau sjálf? Hér sé stuð!
25/02/2012
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Reykjavík
105