Körfuboltabúðir Hrunamanna

Körfuboltabúðir Hrunamanna

Share

KÖRFUBOLTABÚÐIR ÍBU Á FLÚÐUM
9.-12. júlí 2026

Hópur 1: árgangar 2018-2020
Hópur 2: árgangar 2015-2017
Hópur 3: árgangar 2013-2014
Hópur 4: árgangar 2008-2012

03/05/2026

🚨UPPSELT Í YNGSTU TVO HÓPANA🚨

Því miður verðum við að loka fyrir skráningu á tveimur yngstu hópunum, tveimur mánuðum fyrir búðirnar.

Við erum sprungin og nú þegar kominn biðlisti í þeim hópum. Við vildum óska þess að geta hleypt öllum að, en það væri á kostnað gæða og okkur er annt um að veita góða þjálfun.

Skráning í elstu tvo hópana er ennþá opin - sem nú þegar er komin metþátttaka í af öllum kynjum!

TAKK fyrir ómetanlegan áhuga ár eftir ár. Búðirnar eru ekkert án ykkar þátttöku ❤️

Complete sports team management app | Abler 29/12/2025

😤 Skráning í fullum gangi!!
😤 Smellið á linkinn hér fyrir neðan.

Complete sports team management app | Abler Simplify sports team management with Abler. All-in-one app for scheduling, chat, payments and more. Trusted by coaches and clubs.

13/12/2025

💥SKRÁNING HAFIN Á ABLER💥

Linkur í fyrstu athugasemd

24/11/2025

💥TAKIÐ HELGINA FRÁ💥

Skráning hefst á Sportabler innan skamms.

Fludir_2025_Day3_AllStar.mov 06/07/2025

Remix frá All-Star laugardeginum, þar sem yngri hóparnir þreyttu þrautabraut og skoruðu m.a. á þjálfarateymi af Suðurlandinu! Að deginum loknum fengu yngri hópar verðlaunapening, ís frá Kjörís og stjörnurnar héldu áfram að gefa eiginhandaráritanir á allt sem hægt var að kvitta á.
All-Star kvöld eldri hópanna skipaði tækniþraut sem þurfti að klára á tíma, og þriggja stiga skotkeppni. Hvoru tveggja keppnir í anda All-Star WNBA/NBA. Sigurvegarar fengu bikara að launum, og allir iðkendur leystir út með EuroBasket varningi sem Marky Mark skildi eftir á föstudaginn.

Fludir_2025_Day3_AllStar.mov

Allt iðar af lífi og fjöri á Flúðum - Vísir 05/07/2025

Við erum að rifna úr stolti af iðkendunum okkar! Sjálfum sér og okkur alltaf til sóma á öllum vígstöðvum.

Búðirnar okkar og Eurobasket bikarinn rötuðu í kvöldfréttir Sýnar fyrr í kvöld, eftir heimsóknina í gær.

Allt iðar af lífi og fjöri á Flúðum - Vísir Allt iðar af lífi og fjöri á Flúðum um helgina því þar eru um tvö hundruð börn og unglingar í körfuboltabúðum. Landsliðsmenn hafa heimsótt búðirnar og EuroBasket bikarinn, sem Ísland keppir um á Evrópumótinu í haust, var til sýnis.

04/07/2025

Árni Þór Hilmarsson, sem stofnaði búðirnar fyrir 14 árum síðan, fékk Heiðrún Kristmundsdóttir til sín í spjall í Uppsveitakastið fyrr í vikunni að ræða Körfuboltabúðirnar, rifja upp ferilinn, ferðalögin og fleira.

Þægileg hlustun fyrir áhugasama 💯

Heiðrún Kristmundsdóttir frá Haga er ein af forsprökkum körfuboltabúða á Flúðum í júlí. Karfan á hug hennar allan og hún hefur komið víða við. Spilað og þjálfað.... annars er bara best að hlusta á hana tala um körfuna, sveitina, hestana og allt sem gaman og skemmtilegt er að gera. Það er ekki að vita nema eitthvað nýtt skjóti upp kollinum sem enginn vissi fyrir. Spurningin er: Á Heiðrún sér uppáhaldssamloku?

Tveir á tali, Þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu hér heldur betur hressan viðmælanda með mjög forvitnilegt efni.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Reykjavík