Við hittumst reglulega, hugleiðum, yogum og syngjum möntrur saman, þetta er heilandi og nærandi iðkun Bhakti Yoga Fusion Flow sem kveikir ljósið hið innra
Mantra
MAN = HUGUR
TRA = HAFA STJÓRN Á
Mantra er Sanskrít og þýðir að hafa stjórn á huganum. Flestar möntrur yogavísindanna eru á Sanskrít. Mantra kemur jafnvægi á hugarstarfssemina og kyrrir hugann. Mantra er þannig lykill af því ferli að vakna til vitundar um hið sanna sjálf, hina eilífu vakandi vitund. Að kyrja möntrur er leið til að kyrra hugann og hækka tíðnina og skapa jákvætt og fagurt an
drúmsloft. Í tungunni eru margir þrýstipunktar sem tengjast ákveðnum líffærum og kyrjun á möntrum örvar þessa punkta og skapar jafnvægi. Möntrurnar innihalda ákveðin hugform og tíðni sem við vekjum upp þegar við kyrjum möntrur. Sanskrít er ævafornt tungumál og mörg helgirit yogavísindanna eru skrifuð á Sanskrít. Talað er um Sanskrít hafi það verið tónað. Sans = Hreinsa
Krít = að
Sanskrít er þannig tungumál sem hreinsar og skapar jafnvægi. Sattvískt tungumál sem hentar mjög vel að skilgreina andlegu vísindin um heilagt líf á helgri jörð. OM
OM er líka skrifað AUM
OM stendur fyrir augnablikið áður en það tekur á sig form, hið eilífa, takmarkalausa, hið algera, það sem var, er og verður, fæðist ekki og deyr ekki, sköpunarkraftinn áður en hann tekur sér form. Í helgum textum er vísað í OM sem hið upprunalega hljóð sem inniheldur öll hljóð og er handan við alla tvíhyggju. Íslenska orðið hljóð minnir okkur svolítið á þennan möguleika. Hljóð getur táknað þögn eða hljóðin sem gera vart við sig í þögninni. Hljóðið í hljóðinu. Eyrað nemur ákveðna tíðniorku sem hljóð. En oft er talað um að alheimurinn tóni og ómi. Plánetur og allir skapaðir hlutir hafa tíðni. OM stendur fyrir einingartíðni alheimsins. OM er mantra og mjög algengt er að ÓMA í upphafi og lok yogatíma. (Fengið að láni úr handbók yogakennarans frá Ástu Arnars)
Ávinningur af því að stunda möntrusöng er :
• Kemur af stað auknu orkuflæði í líkamanum
• Gerir þig ónæmari fyrir neikvæðri orku
• það dregur úr kvíða og þunglyndi
• Kemur jafnvægi á tauga og innkirtlakerfið
• Jafnar út allt hormóna ójafnvægi í líkamanum
• Hjálpar þér að anda rétt þannig að súrefnisflæðið eykst til allra líffæra
• Gefur þér aukna gleði og vellíðan
• Minnkar stress og streitu
• Hjálpar þér að öðlast meiri samúð og kærleika gagnvart sjálfum þér og öðrum.
• Hreinsar burt gömul mynstur úr undirmeðvitundinni
• Hægir á öldrun og allskyns krankleika
• Róar þig niður og gefur þér aukinn styrk
• Hjálpar þér að hugsa jákvætt og öðlast meira frelsi í hugsun.
• Sefar niður eirðarleysi og truflanir í huganum.
• Gefur þér sterkari andlega sjálfsmynd og jafnaðargeð
• Hrekur í burtu neikvæðar tilfinningar eins og öfund, hroka og reiði
• Styrkir ónæmiskerfið.
• Sterkari tenging við líkamann og hans þarfir
• Bætir svefninn þinn
• Fallegri útgeislun, ljómi og betri nærvera
• Örvar framleiðslu allra hamingjuhormóna eins og serótónín og dópamíns.
• Hjálpar líkamanum að gera við sig sjálfur.
• Gefur þér meiri fókus og er góð leikfimi fyrir heilann.
• Opnar innsæið þitt og kveikir á ljósinu í hjartanu þínu
• Sterkari meðvitund og tenging við æðri mátt
• Læknar og heilar bæði þig og aðra
• Eflir þig í starfi og leik
• Hækkar orkutíðnina hjá þér og hreinsar hugann
• Þú öðlast betri stjórn á skapinu þínu og upplifir meiri sátt.
• Byggir þig upp innanfrá og út þar sem þú sendir jákvæð skilaboð til allra fruma líkamans þíns og sálar.