Yama Heilsurækt

Yama Heilsurækt

Share

Staðurinn þar sem þú ræktar bæði líkamlega og andlega heilsu

08/03/2023

Þriggja vikna námskeið hefst 14.mars.
Skráning á https://yama.is/verdskra/
Hentar öllum sem vilja koma að æfa í Yama en fá góðan grunn og kennslu í öllum okkar æfingum.

Glofox Web Portal 06/03/2023

3 vikna grunnnámskeið hefst 14.mars

Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl: 6,7 og 8. Þú velur hvaða tími hentar hverju sinni.
Frábær leið til að byrja æfa hjá okkur og koma hreyfingunni inn í rútínuna.
Verð 19.990kr
Þjálfari Gurrý

Glofox Web Portal Glofox website integration system to book classes, courses, personal trainer slots, facilities and buy memberships

Glofox Web Portal 21/02/2023

Besta leiðin til að byrja æfa!

4 vikna startið, þrjár æfingar á viku, einkafundir, matardagbók og stuðningur ásamt daglegum fróðleik.

Kannski er þetta startið sem þú þarft.

Hentar öllum sem vilja komast af stað í heilsusamlegum lífstíl en við aðlögum æfingar að hverjum og einum og förum varlega af stað.

Þjálfarar Gurrý og Danni.

Glofox Web Portal Glofox website integration system to book classes, courses, personal trainer slots, facilities and buy memberships

Yama Heilsurækt 27/01/2023

Komdu að æfa með okkur í febrúar 💪
Bókaðu viðtal hér

Yama Heilsurækt Schedule your appointment online Yama Heilsurækt

03/11/2022

Nýr hópur 18:30!
4 vikna námskeið með miklu aðhaldi og stuðningi hefst mánudaginn 7.nóv kl 18:30.
Æft er þrisvar í viku á mán,mið og fim kl 18:30.
Einn einkafundur í viku(15mín) með Gurrý þar sem farið er yfir matardagbækur og annað sem þarf að ræða.
Daglegur fróðleikur um hreyfingu, svefn, mataræði og streitu.

Hentar öllum sem eru að koma sér í gang aftur, eru að jafna sig eftir meiðsl og þeim sem vilja aðstoð við að taka til í mataræðinu.

Þjálfarar Gurrý og Danni.

Sendu okkur skilaboð til að fá nánari upplýsingar eða þú getur keypt námskeiðið hér
https://yama.is/verdskra/

Yama Heilsurækt 18/10/2022

Ertu alltaf á leiðinni að byrja æfa?
Viltu æfa í lítilli stöð þar sem þú bætist í hóp þeirra sem æfa reglulega til lengri tíma.

Komdu í heimsókn í Yama og sjáðu hvort við séum ekki staðurinn fyrir þig, staðurinn sem gæti orðið þinn æfingastaður.

Bókaðu viðtal hér

Yama Heilsurækt Schedule your appointment online Yama Heilsurækt

Glofox Web Portal 16/10/2022

4 vikna startið með Gurrý byrjar á þriðjudaginn 18.október kl 7:30.

Stuðningur og aðhald með þremur æfingum í viku, vikulegum einkafundi og daglegur fróðleikur um allt sem viðkemur heilbrigðum lífstíll.

Námskeiðið hentar öllum sem eru að byrja að æfa aftur eftir hlé eða meiðsli og þurfa stuðning/persónulega þjálfun og öruggar æfingar.

Tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 7:30 og föstudögum kl 16:30.

Æfingarnar okkar í Yama eru með mikla áherslu á styrktarþjálfun fyrir allan líkamann og þolþjálfun með stuttum lotum.

Það sem flestum finnst líklega best við æfingakerfið okkar er að við gerum aldrei Burpees 😆 enda frekar glötuð æfing að okkar mati.

Skráning hér
https://yama.is/verdskra/

Við bætum svo við hóp 7.nóvember sem verður á mán,mið og fim kl 18:30.

Glofox Web Portal Glofox website integration system to book classes, courses, personal trainer slots, facilities and buy memberships

13/10/2022

Vissir þú að allir ættu að lyfta lóðum?

Fullorðið fólk ætti að lyfta lóðum minnst tvisvar í viku 💪

07/10/2022

Engin betri að segja frá Yama og því sem við gerum nema fólkið sem æfir hjá okkur.
Ein af okkar jákvæðustu konum segir frá sinni reynslu og upplifun. Ekki annað hægt að segja en við erum sjúklega stolt 😍 og æfingafélaginn VÁ!!!😮

Ég er ekki ein af þeim sem hefur sérstaka mikla þörf á að hreyfa mig. Ég hef samt tekið hreyfingarskorpur reglulega og alltaf með sama markmiðið: að grenna mig á mettíma og helst að þvinga fram árangur með góðu eða illu.

Fyrir 18 mánuðum byrjaði ég að æfa í Yama. Ég viðurkenni að innst inni var ég með sama gamla markmiðið. Í ljósi þess að mín gamla aðferðarfræði hafði nú ekki gengið frábærlega hingað til ákvað ég að breyta aðeins til. Ég setti það þess vegna sem aðalmarkmið að mæta í Yama þrisvar sinnum í viku, njóta þess að eiga stund fyrir sjálfa mig og vera viðstödd í huganum á æfingu. Löng saga gerð stutt þá náði ég ekki þessu markmiði. Í stað þess að rífa mig niður fyrir það þá hélt ég bara áfram að mæta og gera mitt besta.

Nú er staðan sú að ég æfi 3-4 sinnum í viku og það er ekki í boði að sleppa æfingu. Þetta er gríðarlega mikil breyting fyrir mig persónulega þar sem í gegnum tíðina hef ég verið endalaust tilbúin að gefa afslátt af minni heilsurækt til þess að sinna öðrum verkefnum og skyldum. Minn helsti árangur hingað til er þess vegna sá að ég set mína heilsurækt ofarlega á forgangslista og það hefur haft fáránlega mikil áhrif á lífið, til hins betra.

En af hverju tókst mér þetta í Yama, eitthvað sem mér hefur ekki tekist annars staðar? Ég er sannfærð um að þar skipti tvennt lykilmáli. Í fyrsta lagi uppbygging á æfingunum og viðmót þjálfaranna, sem er einu orði sagt einstakt. Varðandi æfingakerfi Yama þá byggir það á því að halda okkur í Yama samfélaginu í reglulegri heilsurækt til lengri tíma, án meiðsla eða sársauka í stað þess að keyra okkur út þannig að við brennum yfir og hættum. Þetta er einfaldlega æfingakerfi sem byggir upp á langtímaárangri í heilsurækt. Varðandi viðmót þjálfaranna þá er það þannig að okkur er mætt á hverjum þeim stað sem við erum varðandi æfingar. Maður er þannig hvattur til þess að gera sitt besta, hvað sem það nú er, og það að gera sitt besta lætur manni bara líða vel með sjálfan sig.

Ekki er minna lykilatriði að ég er með frábæran æfingafélaga. Við erum samferða á æfingar, hún kemur með kaffi í bílinn og ég vel tónlist til að peppa okkur. Á leiðinni heim tölum við svo um hvað æfingin var skemmtileg, hvað við vorum fáránlega duglegar og bara framúrskarandi í alla staði. Er hægt að biðja um betri byrjun á deginum?

Photos 06/10/2022

Síðasta námskeið ársins 🙏
Sigrumst á sykrinum hefst 17.október og er 4 vikna netnámskeið með vikulegum Zoom fyrirlesturum í beinni, daglegum fróðleik og stuðning í 4 vikur.
Já þetta verður síðasta námskeiðið á þessu ári.

Það er ótrúlega ljúft að vita hvað við erum búnar að fara með mikið af fólki í sykurlausa ferðalagið á þessu ári. Sumir eru ennþá sykurlausir, aðrir tóku sykurinn inn aftur með góðum ráðum hvernig er þá eiginlega best að borða sykur og aðrir koma aftur og aftur til að ná betri tökum á sykrinum/einföldum kolvetnum og blóðsykursveiflunum.

Skráning hér og nánar hér
https://yama.is/product-category/naeringathjalfun/

Photos 04/10/2022

Við vitum að hreyfing gerir kraftaverk fyrir líkamlega og andlega heilsu en við vitum líka að það getur verið erfitt að halda þetta út. Þess vegna er okkar stöð öðruvísi því við höfum ekki trú á því að heilsa hafi upphaf og enda. Að ná árangri er langhlaup og við vinnum alla okkar þjálfun með það í huga.

Í Yama getur þú valið að æfa í litlum hóp eða einkaþjálfun. Við hjálpum þér að ná þeim markmiðum sem þú hefur.

Hóparnir okkar eru litlir því við viljum geta veitt öllum athygli og persónulega þjálfun í öllum tímum.

Einkaþjálfun Yama er fyrir þá sem vilja æfa í fullkomnu næði með þjálfara og hafa stöðina alveg útaf fyrir sig.

Bókaðu heimsókn hér
https://yamafundur.as.me/schedule.php

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Ármúli 40
Reykjavík
109