Vefjagigtar Pilates Rannveigar og Villu

Vefjagigtar Pilates Rannveigar og Villu

Share

Viljum skoða áhuga á að byrja með litla vefjagigtarhópa í Pilatesi. Þar sem lögð er áhersla á að vera með litla hópa með góða leiðsögn og eftirfylgni.

4 vikna námskeið, 2x í viku. Tveir kennarar sem eru báðar menntaðar sem sjúkraþjálfarar og Stott pilates kennarar. Höfum kennt Pilates síðan 2009 og höfum báðar góða reynslu á pilatesi fyrir fólk með vefjagigt og aðra gigtarsjúkdóma.

02/02/2015

Við höfum ákveðið að hefja fyrsta námskeið haustið 2015. En við viljum vekja athygli á öðrum námskeiðum sem við erum með í Gigtarfélaginu. Um er að ræða námskeið í mismunandi styrkleika. Kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum.
Námskeiðin eru:
10.20-11.20 (frekar rólegur tími, hentar vel fyrir fólk með gigt eða eru að koma sér rólega af stað aftur eftir pásu).
12.30-13:20 (Hentar vel fyrir mjög viðkvæma einstaklinga sem þola lítið álag).
16.10-17.10 (byrjendahópur, en þola meira en morgunhóparnir).
17.10-18.10 (framhaldshópur ).
Endilega ef þið hafið áhuga hafið samband í gegnum síðuna okkar, gegnum Gigtarfélagið í síma 5303600 eða beint við okkur Villa (8541440) og Rannveig (8470517).

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Ármúli 5, Gigtarfélag íslands
Reykjavík
105