KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands

KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands

Share

Körfuknattleikssamband Íslands · Icelandic Basketball Accociation

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 06/08/2026

Sófus Máni Bender var tilnefndur af dómaranefnd KKÍ til að fara sem dómari með U18 ára landsliði karla á Norðurlandamótið í Södertalje í Svíþjóð dagana 23. – 28. júní 2026. Við höfum fengið nokkrar reynslusögur okkar dómara sem hafa dæmt erlendis í sumar en það er klárt að dómararnir okkar læra heilmikið á þessum mótum erlendis eins og leikmenn, þar sem þeir læra af erlendum kollegum sínum, rýna vel í eigin frammistöðu og frammistöðu annarra dómara en sömuleðis fræðast þeir um ýmsar aðrar hliðar dómarastarfsins.

Við heyrðum í Sófusi Mána til að bæta í dómarahornið okkar og jafnframt fræðast um hans reynslu fyrr í sumar sem tekur undir með þeim dómurum sem við höfum nú þegar tekið tali:

„Allir dagar byrja á morgunfundi með instructors (dómaraleiðbeinandum) frá FIBA þar sem farið er yfir áherslur FIBA og rýnt er í klippur úr leikjunum okkar. Á þessum fundum ræðum við fram og til baka um það af hverju við dæmdum eins og við dæmdum og förum við saman yfir það hvort ákvarðanir væru réttar eða ekki. Þetta er frábær leið til að læra og vera sjálfsgagnrýninn. Dómaraheimurinn er frábær til að læra sjálfsrýni, þora að gera mistök og hafa mikilla trú á eigin styrkleikum. Þá erum við dugleg að spegla okkur í dómum annarra. Við fáum þessi tækifæri á þessu móti. Við fáum einnig tækifæri til að prufa eitthvað nýtt og til að þróa okkar dómgæsluferil. Helstu áherslur mótsins voru tímasetningar á flautinu og hver í þriggja manna dómarateymi átti að flauta í hvert sinn. FIBA vill helst að einn dómari flauti í hvert sinn.“

Sófus dæmdi eftirfarandi leiki:

Leikdagur 1: Svíþjóð – Danmörk, dæmdi með Andri (EST) og LaTrice (FIN)
Leikdagur 2: Finnland – Svíþjóð, dæmdi með Andris (EST) og Marcus (DEN)
Leikdagur 3: Svíþjóð – Eistland, dæmdi með Casper (DEN) og Lukas (FIN)
Leikdagur 4: Danmörk – Eistland, dæmdi með Ilias (SWE) og Lukas (FIN)
Leikdagur 5: Eistland – Finnland, dæmdi með Casper (DEN) og Akrem (NOR).

„Við vorum með instructora (leiðbeinendur) á öllum leikjunum hjá okkur og fórum við yfir klippur strax eftir leik og ræddum markvisst saman um það hvernig leikurinn var dæmdur. Við fengum endurgjöf á frammistöðu teymisins og það sem við sem einstaklingar gerðum vel og lögðu línurnar um það hvað við ættum að prófa í næsta leik."

Sófus Máni var ánægður með stemninguna innan hópsins og segir:

„Dómarahópurinn var snöggur að þétta raðirnar og mættum við oftast allir að horfa á leikina sem hinir voru að dæma og mættum svo þegar félagar okkar voru að fá endurgjöf og komum með tillögur þrátt fyrir að við værum ekki að dæma. Maður eignast margar nýja vini í svona ferðum og kemur með mikinn dómaralærdóm inn í næsta keppnistímabil hér heima. Þetta er frábært tækifæri sem dómarar fá."

Að lokum kemur Sófus Máni með heilræði út í kosmósinn: „Ég hvet öll þau sem hafa hugsað sér að kíkja á dómaranámskeið að fara sem fyrst og prófa þetta frábæra starf."

Á sama tíma og við þökkum Sófusi Mána kærlega fyrir spjallið og innlitið í dómaraheiminn, tökum við heilshugar undir lokaorð hans um að hvetja öll sem hafa áhuga á að spreyta sig á dómgæslu að gera einmitt það, ekki hika - bara prófa!

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 05/08/2026

Stelpurnar okkar 🇮🇸 í U18 ára landsliði kvenna eru komnar í 8-liða úrslit B-deildar EuroBasket sem haldin er í Tulcea í Rúmeníu 🇷🇴

Stelpurnar okkar spiluðu lokaleik riðlakeppninnar fyrr í dag gegn Aserbaídsjan 🇦🇿 og úr varð hörkuleikur sem okkar stelpur kláruðu á lokamínútunum eftir að hafa verið undir nánast allan leikinn! Sterkt að enda A-riðilinn með þessum hætti í 2. sæti 👏

Lokatölur leiksins voru 77-74 💪 Þórey Tea Þorleifsdóttir skilaði hæstu framlagi, 21 stigi, en hún var jafnframt stigahæst með 14 stig og gaf einnig 6 stoðsendingar.

Stelpurnar okkar leika gegn Ísrael 🇮🇱 í 8-liða úrslitum keppninnar á föstudag 🏀

Áfram ÍSLAND 🇮🇸



📸 FIBA

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 05/08/2026

U16 ára landslið karla er mætt til Norður-Makedóníu þar sem strákarnir okkar leika í B-deild EuroBasket (EM) í Gevgalija og Skopje en riðillinn okkar spilast í Gevgalija.

Leikjaplan, riðlaskiptingu, myndir frá leikjunum, beint opið streymi frá öllum leikjum og aðrar upplýsingar má finna á opinberri heimasíðu mótsins:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-eurobasket-2026-division-b

Leikjadagskrá strákanna okkar í B-riðli mótsins á íslenskum tímum er eftirfarandi:

6. ágúst kl. 19:00 ÍSLAND - Úkraína
7. ágúst kl. 16:30 ÍSLAND - Norður-Makedónía
8. ágúst kl. 09:00 ÍSLAND - Sviss
10. ágúst kl. 11:30 ÍSLAND - Kýpur
11. ágúst kl. 14:00 ÍSLAND - Króatía

8-liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum um sæti 9-22 hefst fimmtudaginn 13. ágúst og mótinu lýkur laugardaginn 15. ágúst.

U16 ára landslið drengja er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Arnar Freyr Elvarsson - Keflavík
Árni Atlason - Breiðablik
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson - Valur
Baltasar Torfi Hlynsson - Stjarnan
Davíð Breki Antonsson - Keflavík
Hlynur Ingi Finnsson - Sindri
Jón Breki Sigurðarson - Stjarnan
Kormákur Nói Jack - Stjarnan
Marínó Ómarsson - Stjarnan
Sigurður Karl Guðnason - Keflavík
Sindri Logason - Haukar
Úlfur Týr Ágústsson - Stjarnan

Þjálfari liðsins er Dino Stipcic og honum til aðstoðar eru Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson.

Við hlökkum til að fylgjast með strákunum okkar í Norður-Makedóníu næstu dagana.

Áfram ÍSLAND!

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 05/08/2026

U16 ára landslið stúlkna er mætt til Grikklands 🇬🇷 þar sem stelpurnar okkar leika í B-deild EuroBasket (EM) en þeirra hluti mótsins (T3) er leikinn í Ioannina.

Leikjaplan, riðlaskiptingu, myndir frá leikjunum, beint opið streymi frá öllum leikjum og aðrar upplýsingar má finna á opinberri heimasíðu mótsins:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u16-womens-eurobasket-2026-division-b

Leikjadagskrá stelpnanna okkar í F-riðli í T3 hluta mótsins á íslenskum tímum er eftirfarandi:

6. ágúst kl. 14:00 🇮🇸 ÍSLAND – Noregur 🇳🇴
8. ágúst kl. 14:00 🇮🇸 ÍSLAND - Bretland 🇬🇧

Ef íslenska liðið endar í öðru af tveimur efstu sætum riðilsins leika þær í undanúrslitum mánudaginn 10. ágúst en ef þær enda í þriðja sæti riðilsins leika þær um 5. sæti í T3 hlutanum þriðjudaginn 11. ágúst.

U16 ára landslið stúlkna er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Berglind Katla Hlynsdóttir - Stjarnan
Björk Karlsdóttir – Keflavík
Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir – Njarðvík
Elva Björg Ragnarsdóttir – Keflavík
Eva Bryndís Ingadóttir – Haukar
Eva Ingibjörg Óladóttir – Stjarnan
Heiðrún Lind Sævarsdóttir – Keflavík
Hildur E. Kristinsdóttir – Haukar
Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir – Keflavík
Oddný Hulda Einarsdóttir – Keflavík
Rún Sveinbjarnardóttir - Bandaríkin
Valdís Helga Alexandersdóttir - Snæfell

Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson og honum til aðstoðar
eru Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir.

Við hlökkum til að fylgjast með stelpunum okkar í Grikklandi næstu dagana.

Áfram ÍSLAND 🇮🇸

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 04/08/2026

Stelpurnar okkar 🇮🇸 í U18 ára landsliðinu unnu sannfærandi sigur gegn Hollendingum 🇳🇱 í A-riðli B-deildar EuroBasket í Tulcea í Rúmeníu 🇷🇴 Lokatölur 85 - 62!

Liðsframmistaðan var virkileg góð og skiluðu allar sínu hlutverki vel 🏀 Rebekka Rut var stigahæst með 19 stig ásamt því að taka 6 fráköst og stela 5 boltum en Hulda María skilaði hæsta framlagi (16 stig) en hún skoraði 18 stig, stal 9 boltum og tók 5 fráköst 👏

Frábær sigur og nú er það bara lokaleikur riðilsins kl. 13:00 á morgun gegn Aserbaídsjan 🇦🇿 Stelpurnar okkar eru í efsta sæti riðilsins eins og er eftir flotta leiki hingað til.

Áfram ÍSLAND 🇮🇸

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 04/08/2026

U18 ára landslið karla endaði í 15.sæti B-deildar EuroBasket sem haldin var í Rijeka og Opatija í Króatíu 24. júlí - 2. ágúst 2026 🇭🇷 🏀

Strákarnir okkar spiluðu í B-riðli keppninnar og mættu þar Tékklandi, Póllandi, Aserbaídsjan, Portúgal og Úkraínu. Liðið vann þrjá leiki í riðlinum og endaði í 3. sæti B-riðils sem tryggði umspilsleiki um sæti 9-16 í framhaldinu. Liðið var í raun óheppið að komast ekki enn lengra, þ.e. í 8-liða úrslitin og vonbrigðin leyndu sér ekki við að ná ekki alla leið þangað. Tveir nokkuð jafnir tapleikir fylgdu í kjölfar riðlakeppninnar en að lokum kom góður sigur gegn Aserbaídsjan þegar strákarnir okkar tryggðu sér 15. sætið í lokaleiknum.

Liðsheild U18 ára landsliðsins var mikil og andinn í liðinu var góður allan tímann þrátt fyrir nokkra ósigra á leiðinni en það fylgir svona stórmótum að fá allan tilfinningaskalann í fangið.

15. sætið varð niðurstaðan að þessu sinni og vel gert að enda mótið á jákvæðum nótum.

Úrslit leikja Íslands í B-deild EuroBasket í Rijeka og Opatija í Króatíu árið 2026:

Riðlakeppnin B-riðill:

🇮🇸 ÍSLAND 87 - 68 Portúgal 🇵🇹
🇮🇸 ÍSLAND 57 - 88 Tékkland 🇨🇿
🇮🇸 ÍSLAND 95 - 56 Aserbaídsjan 🇦🇿
🇮🇸 ÍSLAND 80 - 67 Úkraína 🇺🇦
🇮🇸 ÍSLAND 71 - 95 Pólland 🇵🇱

Umspil um sæti 9-16:

ÍSLAND 75 - 83 Sviss

Umspil um sæti 13-16:

ÍSLAND 74 - 86 Norður - Makedónía

Leikur um 15. sætið:

ÍSLAND 91 - 73 Aserbaídsjan

U18 ára landslið karla sem lék í B-deild EuroBasket þetta árið í Króatíu var þannig skipað:

Benóní Stefan Andrason - KR
Bóas Unnarsson - Njarðvík
Daníel Geir Snorrason - Stjarnan
Freyr Jökull Jónsson - Breiðablik
Jakob Kári Leifsson - Stjarnan
Jón Árni Gylfason - Skallagrímur
Leó Steinssen - Svíþjóð
Páll Gústaf Einarsson - Bandaríkin
Patrik Joe Birmingham - Bandaríkin
Róbert Óskarsson - Bandaríkin
Steinar Rafn Rafnarsson - Stjarnan
Sturla Böðvarsson - Snæfell

Þjálfari liðsins er Ísak Máni Wíum og honum til aðstoðar eru Mikael Máni Hrafnsson og Ismael Herrero Gonzalez.

Takk fyrir flott mót strákar og til hamingju með ykkur 👏

Áfram ÍSLAND 🇮🇸



📸FIBA

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 03/08/2026

U15 ára landslið drengja er mætt á Nordic Open í Kisakallio í Finnlandi.

Þar munu strákarnir okkar spila þrjá leiki næstu dagana og læra heilmikið á því að spila á erlendri grundu.

Upplýsingar um leikjaplan má finna hér: https://koristv.fi/nordicopen/ en þarna má einnig kaupa streymi að leikjunum.

Tölfræði úr leikjum mótsins má finna hér:

https://tulospalvelu.basket.fi/category/44059!kvkp2627/group/303001

Leikjaplan íslenska liðsins má sjá hér á íslenskum tímum:

Mán 3. ágúst kl. 11:15 ÍSLAND - Lettland
Þrið 4. ágúst kl. 15:45 ÍSLAND - Finnland
Fim 6. ágúst kl. 09:45 ÍSLAND - Danmörk

U15 ára landslið drengja skipa eftirfarandi:

Albert Þorleifsson - Breiðablik
Axel Kári Arnarsson - Breiðablik
Benedikt Arnór Þórólfsson - Breiðablik
Einar Jökull Eyþórsson - Selfoss
Guðjón Máni Brjánsson - Álftanes
Guðmundur Nóel Jónsson - KR
Hjörtur Páll Davíðsson - Keflavík
Hrafn Viðarsson - Stjarnan
Jakob Hrafn Þórisson - Þór Þ.
Óttar Ingimar Davíðsson - Fjölnir
Pétur Steinn Gunnarsson - ÍA
Sölvi Hrafn Arnarsson - Breiðablik

Þjálfari liðsins er Ilija Omrcen og honum til aðstoðar eru Gunnar Sverrisson og Hlynur Logi Ingólfsson.

Áfram ÍSLAND 🇮🇸

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 03/08/2026

U15 ára landslið stúlkna er mætt á Nordic Open í Kisakallio í Finnlandi.

Þar munu stelpurnar okkar spila þrjá leiki næstu dagana og læra heilmikið á því að spila á erlendri grundu.

Upplýsingar um leikjaplan má finna hér: https://koristv.fi/nordicopen/ en þarna má einnig kaupa streymi að leikjunum.

Tölfræði úr leikjunum má finna hér:

https://tulospalvelu.basket.fi/category/44061!kvkp2627/group/303002

Leikjaplan íslenska liðsins má sjá hér á íslenskum tímum:

Mán 3. ágúst kl. 09:00 ÍSLAND - Lettland
Mið 5. ágúst kl. 13:30 ÍSLAND - Finnland
Fim 6. ágúst kl. 07:30 ÍSLAND - Danmörk

U15 ára landslið stúlkna skipa eftirfarandi:

Embla Hrönn A. Sigurðardóttir - Stjarnan
Fanney Helga Grétarsdóttir - Njarðvík
Harpa Rós Ívarsdóttir - Njarðvík
Íris Lóa Hermannsdóttir - Valur
Ísabella Sif Elmarsdóttir - Aþena
Luciana Líf Björnsdóttir - Haukar
Margrét Stefanía Friðriksdóttir Hirst - Aþena
Marín Ósk Finnsdóttir Þormar - Stjarnan
Rakel Þorvaldsdóttir - KR
Rósa Kristín Jónsdóttir - Njarðvík
Sandra Rut Sigurðardóttir - Stjarnan
Tara Diljá F. Ragnarsdóttir - Stjarnan

Þjálfari liðsins er Viktor Marínó Alexandersson og honum til aðstoðar eru Aron Páll Hauksson og Helena Haraldsdóttir.

Áfram ÍSLAND 🇮🇸

Photos from KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands's post 02/08/2026

Stelpurnar okkar í U18 ára landsliði kvenna unnu frábæran sigur gegn Portúgal 🇵🇹 í öðrum leik sínum í B-deild U18 EuroBasket í Tulcea í Rúmeníu 🇷🇴

Stelpurnar okkar náðu góðri forystu snemma leiks og létu hana aldrei af hendi. Niðurstaðan varð 21 stigs sigur Íslands, 91-70.

Liðsheildin flott að venju en frammistaða Rebekku Rutar Steingrímsdóttur var virkilega öflug👏 Rebekka skoraði 31 stig, tók 10 fráköst, stal 8 boltum og gaf 4 stoðsendingar 🏀 Framlag upp á 27 stig.

Vel gert hjá stelpunum að sigla góðum sigri í hús fyrir hvíld morgundagsins en næsti leikur liðsins á mótinu er á þriðjudag kl. 10:30 gegn Hollandi 🇳🇱

Glæsilegur sigur - áfram ÍSLAND 🇮🇸



📸 FIBA

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Íþróttamiðstöðinni Laugardal
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00