24/07/2026
Meistaraflokkur karla hjá Aftureldingu gerði sér glaðan dag og spilaði 18 holur hér í Brautarholti í gær. En í vikunni tryggði liðið sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta skipti í sögu félagsins. Þetta er hreint út sagt frábær árangur hjá góðum nágrönnum okkar úr Mosfellsbæ!
Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga og alls hins besta í úrslitaleiknum! ⛳⚽
Síðustu vikur hafa verið krefjandi vegna mikillar úrkomu, en nú styttir upp og veðurspáin mjög góð næstu daga. Völlurinn er þéttbókaður í dag, rétt eins og hann á að vera, og helgin er að fyllast. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur! Allir í golf..!! 🌞🏌️♂️🏌♀
23/07/2026
Golfbílar ekki leyfðir 23-27 júlí
Tekin hefur verið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á vellinum dagana 23. til 27. júlí, þ.e. fram á næsta mánudag.
Staðan verður endurmetin á mánudaginn og þá tekin ákvörðun um hvort hægt verði að leyfa golfbíla að nýju eftir það.
22/07/2026
Kæru kylfingar,
Vegna mikillar rigningar undanfarna daga verða golfbílar ekki leyfðir frá og með deginum í dag og fram á föstudag. Staðan verður endurmetin á föstudaginn og þá tekin ákvörðun um hvort hægt verði að leyfa golfbíla um helgina
12/07/2026
Einn sigursælasti kvenkylfingur sögunnar, Nancy Marie Lopez er í golfferð á Íslandi með 50 konum. Nancy sem er nú 69 ára, vann 48 LPGA golfmót á ferlinum og þar af 3 stórmót. Hún spilaði Brautarholtið í gær og er hér á myndinni með Ásdísi Evu starfsmanni okkar.
09/07/2026
It’s been incredible watching everyone experience the new full 18-hole layout and the expanded clubhouse this year. Between the midnight golf rounds and the long summer days, the energy on the course has been unmatched
29/05/2026
Adam Lawrence, editor of Golf Course Architecture, had this to say about the extension at Brautarholt to 18 holes:
“It is very easy to imagine, in a few years’ time, that Brautarholt will similarly be a fixture in rankings of the world’s best and most spectacular courses, and that it will be a required stop for many travelling golfers.” ⛳️🇮🇸
https://www.golfcoursearchitecture.net/content/brautarholt-oceanic-connection
29/05/2026
Sjáumst á vellinum í sumar! Komdu og njóttu dagsins með okkur, prófaðu nýju holurnar og slakaðu á í glænýrri aðstöðu ☀️⛳️🏌️♀️🏌️♂️
21/05/2026
Allar 18 holurnar á Brautarholtsvelli eru nú opnar! ⛳
Loksins getum við fært ykkur þær gleðifréttir að völlurinn er nú allur opinn til spilunar. Við erum ótrúlega stolt af nýju holunum s*x (13–18) og vonum að þið njótið þess að spila þær!
Það eru þó ekki einu góðu fréttirnar, því nýja klúbbhúsið okkar er líka tilbúið! Hér að neðan fylgja nokkrar myndir af þessari glæsilegu viðbót við aðstöðuna okkar sem við erum mjög spennt að sýna ykkur.
Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
14/05/2026
Brautarholtsvöllur opnar á morgun! ⛳
Við opnum fyrstu 12 holurnar í Brautarholti á morgun, föstudaginn 15. maí.
Enn er unnið að lokafrágangi á nýju holunum s*x (13–18) fyrir tímabilið og frestast opnun þeirra um fáeina daga. Við látum ykkur að sjálfsögðu vita um leið og þær verða tilbúnar til spilunar.
Við hlökkum til að sjá ykkur á vellinum!