19/01/2023
NÚ GETIÐ ÞIÐ BYRJAÐ AÐ HLAKKA TIL:
Búið að opna fyrir skráningu á þessari frábæru þríþraut; Skíði-hjól-hlaup sem fer fram 20.apríl (sumardaginn fyrsta).
Vegleg útdráttarverðlaun og keppt í þremur aldursflokkum.
Bláfjallaþríþraut 2023 | Netskraning.is
Skíðaganga ehf Kt. 520417-3030 Hvassaleiti 39 103 Reykjavík Einar Ólafsson Símanr.: +354 696 3699 [email protected]
20/04/2022
Hægt að sækja gögnin i Hjólasprett í Hafnarfirði milli 16:00-18:00 i dag.
11/04/2022
Svona er þetta nú skemmtileg keppni. Allir að skrá sig núna hér:
https://netskraning.is/blafjallatriathlon/
https://www.facebook.com/793697087/videos/10157194002152088/
Bláfjallaþríþraut 2022 | Netskraning.is
Skíðaganga ehf Kt. 520417-3030 Hvassaleiti 39 103 Reykjavík Einar Ólafsson Símanr.: +354 696 3699 [email protected]
11/04/2022
Sexhjól mun fylgja síðasta keppanda eftir síðasta partinn af leiðinni. Ef einhver í fermstu röð verður fyrir því að það springur, þá er gott ráð að hringja í mitt númer svo ég geti brugðist við. Það er 696 3699. Þetta er einskonar neyðarnúmer ef þið lendið í vandræðum.
AFTUR: 696 3699
11/04/2022
Númerin fyrir keppnina þarf að sækja í Hjólasprett, Dalhraun 13, Hafnarfirði á miðvikudaginn frá 16:00 - 18:00.
Þeir sem sækja númerin upp í Bláfjöll rétt fyrir start geta lent í að fara seinna af stað og/eða greiða/mega greiða 2000 kr. aukagjald.
En, númer eitt, tvö og þrjú muna að hafa gaman af þessu.
25/03/2022
Skráning er hafin í eitt skemmtilegasta mót ársins. Bláfjallaþríþrautin 21.apríl. Skíða í 10 km, hjólað í 20 km og hlaupið í 5 km. Fjórða sinn sem mótið er haldið og alltaf verið geðveikt gaman eins og sjá má á myndböndunum og myndunum hér á síðunni. Mótið er til styrktar afreksfólki Ullar.
24/03/2022
Skráning er hafin í þríþrautina 21.apríl.
08/05/2021
Styrkþegar Bláfjallaþríþrautarinnar 2021
Markmið með Bláfjallaþríþrautinni er að safna fyrir afreksfólk Skíðagöngufélagsins Ullar. Í ár fengu styrk þau Snorri Einarsson (landsliðsmaður SKÍ), Kristrún Guðnadóttir (landsliðskona SKÍ) Salóme Grímsdóttir, Mari Järsk og Svavar Ágústsson. Við óskum þeim til hamingju með styrkinn og vonumst eftir enn fleiri þátttakendum á næsta ári.
Við sem stöndum að Bláfjallaþríþrautinni (Einar Ólafs., Egill Guðmunds. og Sveinbjörn Sigurðs. þökkum öllum þátttakendum fyrir keppnina í ár. Sjáumst að ári.
22/04/2021
Einhver gleymdi bakpoka og hjálm í Ásvallalaug. Hann var skilinn edtir þar og ætti að vera að hægt að nálgast hann þar.
22/04/2021
Sigurvegarar dagsins eru allir þátttakendur sem fóru af stað í dag.
Þau sem fóru hraðast af þeim voru þau Jaersk og Kjartan Long.
Í karlaflokki 18-29 ára vann Þórir Ólafsson, í kvennaflokki var Hilda Egilsdóttir nema það sprakk hjá henni og hún náði ekki að ljúka keppni.
Í flokki 30-49 ára unnu þau Kjartan og Mari en í 50+ unnu þau Björk Viðarsdóttir og Hallgrímur Vignir Jónsson.
Aðstæður voru skrautlegar í Bláfjöllum. Rigning og vindur og svo mynduðust sundlaugar á nokkrum stöðum og keppnin breyttist þá úr þríþraut í fjórþraut þegar sundið bættist við. Allir voru samt bara brosandi og skemmtu sér konunglega.
Á hjólaleiðinni sprakk hjá amk þrem og náði td Árni Georgsson að hjóla á sprungnu hjóli heila 11 km. Bara það er afrek. Starfsmaður (undirritaður) pikkaði hin tvö upp á sexhjóli og kom þeim til byggða.
Hlaupaleiðin var svo endasprettur fyrir suma og allir virtust vera kampakátir með mótið.
Mótshaldarar vilja nota tækifærið og þakka öllum fyrir þátttökuna. Starfsmönnum fyrir aðstoðina og aðal styrktaraðilum Hjólasprettur, Fætur toga og Sportval fyrir þeirra framlag.