22/04/2026
Hugsið ykkur Snorri Páll að kenna í Golfklúbbnum! Vá hvað byrjendur eru stundum heppnir!!
Komdu inn að leika...
.. með Snorra Páli!
🟢 ⛳️ Golfskóli með öllu fyrir byrjendur
🏌️♂️ Lærðu allt sem skiptir máli í golfi!
Frá grunnatriðum sveiflunnar yfir í golfreglur og siði – kennt á skemmtilegan og einfaldan hátt svo þú mætir klár í slaginn og njótir þín á vellinum í sumar!
📅 3 vikna námskeið
28. apríl – 17. maí
🏆 Útskriftargolfmót og fjör: 19. maí
⏰ Kennslutímar
📍 Þriðjudagar kl 20.00 og 21.00
Sunnudagar kl 10.00 og 11.00
🗓️ Dagsetningar
28.4 · 3.5 · 5.5 · 10.5 · 12.5 · 17.5
🏆 19.5 (golfmót)
Kennari
Snorri Páll Ólafsson – PGA golfkennari
📍 Staðsetning
Golfklúbburinn, Fossaleyni 6
💰 Verð: 37.900 kr.
📧 Skráning: [email protected]
01/04/2026
Páskagolfið á páskatilboði 5.000kr. klst! 5️⃣0️⃣% afsláttur fyrir þá sem koma til að æfa*.
Hvernig er staðan á þér yfir páskana? Langar þig að koma inn að leika? Þú veist að það er stutt í tímabilið. Úrval PXG kylfa til að prófa. Besta púttflöt landsins.
Hjá okkur verður opið að jafnaði frá 11:00 til 19:00. Athugið hópar 3 hermar geta samið um lengri tími.
Bókið í ☎820 9111
2.3 Fimmtudagur: Opið til svona 11:00 til 19:00
3.3 Fössstuuuudaaagurinn laaanngi: Já, já það verður eitthvað opið (11:00 til 19:00), láttu bara heyra í þér.
4.3 Laugardagur: Opið frá 11:00 til 19:00
5.3 Sunnudagur: Opið frá 11:00 til 18:00
6.4. Mánudagur: Opið frá 11:00 eins lengi og þurfa þykir.
*æfingatímar eru víkjandi. Fullt verð er 6.600kr.
Komdu inn að leika...
.. Páskarnir eru þinn tími!
18/03/2026
Hvort sem þú ert byrjandi eða kylfingur með miðlungs til háa forgjöf, sem leitar að auknum stöðugleika, lengd og fyrirgefningu, þá er með kyflur sem henta þínum leik. Öll þessi módel hjálpa til við að vinna gegn:
⚫ Hægri sveiflu
⚫ Slæsi
⚫ Höggum utan miðju (á tá eða hæl)
Komdu í mátun og við finnum út úr því hvaða módel hentar þínum leik best 👉 síminn er 820 9111.
Kostar ekkert að prófa, 45 mátun 10.000kr.
PXG býður upp á fjögur módel sem teljast vera byrjenda kylfur yfir í það að teljast leikbreyti kylfur (e. game improvement), auk þess að bjóða upp á kylfur fyrir kylfinga á hæstu stigum.
Komdu inn að leika...
.. með búnað sem hentar þér!
02/03/2026
Við óskum Auston Kim til hamingju með annað sætið á HSBC Womens World Championship! Hún drævaði best á mótinu, eins og hún hefur gert allt tímabilið - er með lengstu drævin að meðaltali. Ný Lightning dræverinn að koma sterkur inn💪
Við vitum (byggt á fyrri prófum) að þú munt slá lengra og betur með PXG Lightning kylfum, en getur þú slegið lengra en Auston Kim (að meðaltali 262m)?
Allir velkomnir í Fossaleyni 6 að til að prófa. Hægt að bóka í mátun í síma 820 9111.
Komdu inn að leika...
.. með PXG Lightning!
26/02/2026
Golf er erfitt. Gerum það auðveldara. (Og skemmtilegra!)
PXG setti fyrir ári síðan á markað kylfur, PXG Wildcat, sem sérstaklega eru hugsaðar til að bæta leik byrjenda, fólks sem leikur sjaldan og eða er með lítinn sveifluhraða í huga.
Það er frábært þegar einn fremsti framleiðandi golfkylfa í heiminum ákveður að sinna þessum hóp sérstaklega.
Villikettirnir eru mættir aftur í Golfklúbbinn og nú á enn betra verði aðeins 249.900 (í stað 274.900) fyrir sett með níu kylfum. Í pakkanum er:
- Dræver
- Brautartré
- Blendingur
- Járnkylfur (7 til W og SW)
- Black Hawk pútter
- PXG burðarpoki
- PXG golfboltar (12 stk)
Allir velkomnir í heimsókn í Fossaleyni 6 (beint á móti Egilshöllinni) til að skoða og prófa. Síminn er 820 9111
Komdu inn að leika...
.. með villiketti!
25/02/2026
Hjá Golfklúbbnum getur þú leikið þér að leika á sömu leikvöllum og PGA Tour leikur á.
📲Þú bókar rástíma í síma 820 9111
Dagatalið hjá PGA Tour og Golfklúbbnum:
🏌FEB 26 - MAR 1 - Cognizant Classic in The Palm Beaches - PGA National - Champion Course
🏌MAR 5 - 8 - Arnold Palmer Invitational presented by Mastercard - Arnold Palmer's Bay Hill Club & Lodge
🏌MAR 12 - 15 - THE PLAYERS Championship - TPC Sawgrass - THE PLAYERS Stadium Course
🏌MAR 19 - 22 - Valspar Championship - Innisbrook Resort and Golf Club - Copperhead Course
🏌APR 2 - 5 - Valero Texas Open - TPC San Antonio (Oaks Course)
🏌APR 16 - 19 - RBC Heritage - Harbour Town Golf Links
🏌APR 23 - 26 - Zurich Classic of New Orleans - TPC Louisiana
Avondale, LA • USA
Komdu inn að leika...
.. á PGA Tour völlum!
07/01/2026
Laust í herma! Tilboðsverð á mánudögum, þriðjudögum og sunnudögum til kl. 16:00 aðeins 4.000kr. klst. Verð frá 17:00 og um helgar kr. 6.000.
Golfklúbburinn er með:
🎯Mesta plássið á hvern hermi
🎯Næg bílastæði
🎯Full Swing golfhermar (besta boltaflugið). Full Swing sér um tæknina í golfhermadeild bestu kylfinga heims TGL
🎯PuttView æfingarflöt - sannkallað töfrateppi
Alltaf hægt að renna við og taka æfingu (æfingakort 2.000kr. hverjar 30 mín.).
Endilega komdu í heimsókn í Fossaleyni 6 og kynntu þér aðstöðuna.
Bókaðu tíma í síma 820-9111 eða með skilaboðum á Facebook.
Komdu inn að leika…
… við bestu aðstæður!
13/12/2025
Verðlækkun til áramóta‼️
Golfklúbburinn lækkar verð fram til áramóta. Klukkustundin verður á 4.000kr. á rótíma (til 15:00 á virkum dögum) og 5.000kr. á prýðistíma.
Golfklúbburinn er um margt öðruvísi en aðrir golfhermastaðir; við erum persónulegur staður, þar sem aðeins er boðið upp á það besta. Við notum Full Swing golfherma sem eru m.a. notaðir í TGL. TGL er hermagolfdeild atvinnumannanna (þið vitið Tiger, Rory og co)
🎯Full Swing hermar (TGL/PGA Tour/Golf Channel)
🎯PuttView æfingarflöt
🎯SwingCatalyst sveiflugreiningarbúnað
🎯PXG golfkylfur
🎯Meira pláss fyrir alla
🎯Næg bílastæði
Endilega kíktu í heimsókn eða hafðu samband í síma 820 9111.
Komdu inn að leika…
… með þínum bestu!