16/08/2026
Bikarmeistaramót í kraftlyftingum í búnaði 2026.
Við Ármenningar áttum 2 keppendur á mótinu.
Jóhanna Rún Steingrímsdóttir (07) keppti í -63 kg flokki Junior. Þetta er annað mót Jóhönnu í kraftlyftingum í búnaði. Jóhanna átti frábæran dag og miklar bætingar.
Í hnébeygju tók hún seríuna:
100 kg-110 kg-120 kg sem er 25 kg bæting í hnébeygju frá því í maí.
Í bekkpressu tók hún seríuna:
32,5 kg-45 kg-50 kg sem er 5 kg bæting frá því í maí.
Í réttstöðulyftu tók hún seríuna:
105 kg-115 kg og í þriðju reyndi hún við 125 kg sem hefði verið bæting en var því miður aðeins of þung.
Samanlagt 285 kg sem er bæting um 25 kg.
Frábær árangur hjá Jóhönnu og Bikarmeistari í kraftlyftingum í búnaði í unglingaflokki.
Þórunn Brynja Jónasdóttir (74) keppti í +84 kg flokki M2.
Í hnébeygju tók hún 165 kg en náði svo ekki gildri lyftu í bekkpressu og féll því úr keppni.
Við óskum Jóhönnu hjartanlega til hamingju með frábært mót og allar bætingarnar.