FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

Share

milli kl. 10-16.00
og föstudaga 10-15.00 Félagið var stofnað 15. mars 1986. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna eldri borgara í hvívetna.

FEB – Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Stangarhyl 4 - 110 Reykjavík • Sími: 588 2111
Netfang: [email protected] • Heimasíða: www.feb.is og
Opnunartími skrifstofu:
Opið mánudaga til fimmtud. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er langstærsta félagið innan Landssambands eldri borgara með yfir 16. 000 félagsmenn. Rétt til að verða félagsmenn eiga þeir sem hafa náð 60 ára aldri og einnig m

Photos from FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni's post 10/06/2026

Langar þig ekki að sjá listaverk Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum “Sjónarhorn flakkarans”? Þá kemur þú með okkur í FEB-ferðum í dagsferð til Vestmannaeyja 15. júní😊 EKKI verður farið nema siglt sé frá Landeyjahöfn.

Nánari lýsing á ferðinni til Vestmannaeyja
Brottför frá Stangarhyl 4 að morgni mánudagsins 15. júní kl. 7:15 (mæting ekki seinna en klukkan 7:00). Gert er ráð fyrir að hópurinn verði kominn aftur til baka um kl. 21:00. Ekið er sem leið liggur austur fyrir Fjall og í Landeyjahöfn, þar sem skipið bíður okkar, og ferjar bæði rútu og hópinn yfir til Eyja. Þar byrjum við á að aka út á Eiðið og inn í Herjólfsdal áður en við fáum hádegisverð á Tanganum. Maturinn er innifalinn í verði ferðar. Eftir hádegi liggur leiðin m.a. út á Stórhöfða, um „nýja hraunið“ og Skansinn, áður en við förum í Eldheima og kynnum okkur afleiðingar Heimaeyjargossins í janúar 1973. Þaðan fer svo hópurinn aftur um borð í skipið og ekur síðan til Reykjavíkur.
Leiðsögumaður: Kári Jónasson
Erfiðleikastig: 1 skór
Verð: 24.000 kr. (3.000 kr. bætast við ef þátttakandi er utanfélagsmaður)

Skelltu þér með okkur 😊

Bókanir fara fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið [email protected].

29/05/2026

Aldurstakmörkin á lækknisvottorðum hafa verið hækkuð þegar kemur að endurnýjun ökuskírteina eldra fólks.

Læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður.

Helstu rök heilbrigðisráðuneytisins fyrir breytingunni eru að heilsa fólks hefur batnað samhliða hækkandi lífaldri . Þá hefur reynslan sýnt að við endurnýjun ökuskírteina hjá þessum aldurshópi er læknisvottorð veitt nær undantekningalaust.

Breytingarnar munu því draga úr álagi sem skapast vegna reglulegrar endurnýjunar ökuskírteina og er því jákvæð breyting fyrir eldri ökumenn auk þess að draga úr óþarfa vottorðaskrifum heimilislækna.

Sjá hlekk á frétt Heilbrigðisráðuneytisins í athugasemdum:

29/05/2026

Vegna forfalla voru 3 sæti að losna til Vestmannaeyja þriðjudaginn 2. júní. Ölduhæðaspá fyrir þann dag lofar góðu, en EKKI verður farið nema siglt sé frá Landeyjahöfn.

Skelltu þér með okkur 😊

Nánari lýsing á ferðinni til Vestmannaeyja
Brottför frá Stangarhyl 4 að morgni þriðjudagsins 2. júní kl. 8:00. Gert er ráð fyrir að hópurinn verði kominn aftur til baka í síðasta lagi kl. 20:00. Ekið er sem leið liggur austur fyrir Fjall og í Landeyjahöfn, þar sem skipið bíður okkar, og ferjar bæði rútu og hópinn yfir til Eyja. Þar byrjum við á að aka út á Eiðið áður en við fáum hádegisverð á Tanganum. Maturinn er innifalinn í verði ferðar. Eftir hádegi liggur leiðin m.a. inn í Herjólfsdal út á Stórhöfða, um „nýja hraunið“ og Skansinn, áður en við förum í Eldheima og kynnum okkur afleiðingar Heimaeyjargossins í janúar 1973. Þaðan fer svo hópurinn aftur um borð í skipið og ekur síðan til Reykjavíkur.
Leiðsögumaður: Kári Jónasson
Erfiðleikastig: 1 skór

Verð: 24.000 kr. (3.000 kr. bætast við ef þátttakandi er utanfélagsmaður)
Bókanir fara fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið [email protected].

Photos from Síminn's post 23/05/2026

Síminn og FEB stóðu fyrir tækninámskeiði fyrir fèlagsmenn í byrjun maí og komust færri að en vildu - stemmt er að því að endurtaka leikinn í haust

08/05/2026

Yndislegir vortónleikar kórs FEB og karlakórsins K*K voru haldnir í Bústaðakirkju þann 8. maí. Bestu þakkir fyrir flutninginn 🎼

„Líta á málefni eldri borgara sem aukastærð“ 08/05/2026

FEB lætur í sér heyra í aðdraganda borgarstjórnarkosninga

„Líta á málefni eldri borgara sem aukastærð“ Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum líta á málefni eldri borgara sem aukastærð, auk þess sem borgaryfirvöld hafa ekki sýnt Félagi eldri borgara (FEB) mikla virðingu.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Stangarhyl 4
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 15:00