26/06/2026
🎉 Miðasala er hafin á styrktarsýningu Team DBB! 🎉
Keppnishópur Dansskóla Birnu Björns er á leið til Dublin á Dance World Cup 2026 og þetta er aðalfjáröflun hópsins fyrir ferðina.
🗓️ Þriðjudaginn 30. júní kl. 18:00 í Austurbæjarbíói (húsið opnar kl. 17:30).
🎟️ Miðaverð:
• Fullorðnir: 3.000 kr.
• Börn yngri en 16 ára: 1.500 kr.
Við miðakaup er einnig hægt að bæta við frjálsu styrktarframlagi eða velja fyrirfram ákveðna styrkupphæð. Einnig er hægt að fara inn á miðasölulinkinn og styrkja Team DBB án þess að kaupa miða. Tilvalið fyrir ömmur og afa eða aðra þá sem komast ekki á sýninguna en vilja styrkja hópinn.
Miðasala: https://tickets.moment.is/event/styrktarsning-team-dbb-gcfiws
Við hlökkum til að sjá ykkur – og þökkum innilega fyrir allan stuðninginn! 💙
Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn með posa.
26/05/2026
Hin óviðjafnanlega Eva Sigríður okkar, nemandi í dans- og söngleikjadeildum DBB, er ein af 12 krökkum sem hrepptu hlutverk í ,,Þegar trölli stal jólunum” í Borgarleikhúsinu næsta vetur. Við gætum ekki verið stoltari og hlökkum til að öll fái að njóta leikgleði og hæfileika Evu Siggu á stóra sviðinu!
14/05/2026
Nemendur okkar í dans- og söngleikjadeild DBB að brillera í uppfærslu Þjóðleikhússins á Línu Langsokk! Til hamingju með frábæra frammistöðu elsku Kristín Þórdís, Lára og Sigurrós Ylfa! Við erum svo stolt af ykkur💖⭐️
05/05/2026
Líf og fjör baksviðs á sýningardögum!
04/05/2026
VERTU MEÐ OKKUR Í SUMAR -
SKAPANDI SUMARSKÓLI DBB 💛🌸✨
Kennarar: Anna Vala & Hrafnkatla
Dans, tónlist, leikir, útivera, sköpun og alls konar verkefni. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá þar sem markmiðið er að nemendur fái að njóta sín í hreyfingu og skapandi starfi.
Við leggjum áherslu á öruggt og uppbyggjandi umhverfi, góða samveru, vináttu og dansgleði.
Námskeiðið hentar öllum, bæði þeim sem hafa dansað áður og þeim sem vilja prófa eitthvað nýtt. Öll hjartanlega velkomin, bæði nemendur innan og utan dansskólans.
Skráning er hafin á dansskolibb.is / Abler.
Takmarkað pláss!
Nánari upplýsingar á dansskolibb.is
📩 Fyrirspurnir: [email protected]
Við hlökkum til að eiga dýrmætar og skemmtilegar stundir með ykkur í sumar! 💗🌞🌷
Dansskóli Birnu Björns
02/05/2026
Spennandi nýjung hjá okkur í sumar -
SKAPANDI SUMARSKÓLI DBB 💛☀️
SKRÁNING ER HAFIN á dansskolibb.is / Abler.
Takmarkað pláss!
Dans, tónlist, leikir, útivera, sköpun og alls konar verkefni. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með áherslu á öruggt og uppbyggjandi umhverfi.
Námskeiðið hentar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Öll hjartanlega velkomin, bæði nemendur innan og utan dansskólans.
Við hlökkum til að eiga dýrmætar og skemmtilegar stundir með ykkur í sumar 💃🏼💃🏼