13/06/2026
60. þingi ISU er lokið
Frábær tími með öllu þessu fólki sem hafa það sameiginlega markmið að bæta og efla skautaíþróttir ⛸️
ÍSS sendi 3 fulltrúa og núna í fyrsta sinn sem aðilar að bæði listskautum og skautahlaupi
Takk fyrir okkur
01/06/2026
Afreksæfingabúðir ÍSS fóru fram í síðustu viku ⛸️
Við samnýttum þjálfaramenntun og æfingar fyrir landslið og hæfileikamótun sem gekk mjög vel.
Barbara Luoni kom og kenndi hópnum. Með henni komi tveir skautarar sem var gaman að kynnast.
Frábær vika með gott veganesti inn í sumarið ☀️
26/04/2026
Evrópuráðstefna Speed Skating fór fram í Innsbruck, Austurríki.
ÍSS átti tvo fulltrúa sem var tekið vel á móti sem nýjustu meðlimir ISU Speed Skating
Á næsta ári fer ráðstefnan fram í Reykjavík 🇮🇸
07/04/2026
Edda Sigurlaug Indriðadóttir er sannkallaður brautryðjandi í íslensku skautahlaupi ⛸️
Hún hóf ung að æfa við krefjandi aðstæður á Akureyri og varð Íslandsmeistari aðeins um 15 ára gömul. Á árunum 1951–1953 setti hún fjölda Íslandsmeta og átti um tíma öll helstu met kvenna í greininni.
Á fyrsta Íslandsmótinu keppti hún í of stórum skautum, fylltum með bómull – en vann samt bæði 500 m og 1500 m 💪
Saga Eddu er öflug áminning um hvað dugnaður, kjarkur og elja geta skilað langt – hún lagði grunn að framtíð skautaíþrótta á Íslandi 🇮🇸
Meira um Eddu og hennar skautaafrek á www.iceskate.is
07/04/2026
Fjölnir eru Bikarmeistarar ÍSS 2026
-fjórða árið í röð
01/04/2026
Skautasamband Íslands hefur í dag fengið samþykkta bráðabirgðaaðild að skautahlaupsdeild Alþjóða skautasambandsins (ISU) ⛸️
Um er að ræða mikilvægan áfanga sem er afrakstur margra ára vinnu og öflugs samstarfs við aðildarfélög ÍSS, sem hafa lagt grunninn að uppbyggingu greinarinnar hér á landi.
Aðildin opnar ný tækifæri til þátttöku í alþjóðlegu starfi og keppnum, og við hlökkum til að halda áfram að byggja upp skautahlaup á Íslandi í nánu samstarfi við félögin okkar og alþjóðlega samstarfsaðila.
02/03/2026
Keppendur ÍSS á Sonja Henie Trophy ⛸️
Mótið fer fram í Osló 5.-8. mars
18/02/2026
Byggjum fleiri skautasvell - Vísir
Skautaíþróttir hafa verið stundaðar í Reykjavík, með hléum, frá árinu 1873. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi íþróttafélag á landinu, stofnað formlega 1873 en endurvakið árið 1893. Félagið var svo endurvakið öðru sinni árið 1938. Árið 1967 mættust úrval...
02/02/2026
Nordics fór fram um helgina ⛸️
Lesið um gengi íslensku skautaranna á iceskate.is